Goðasteinn - 01.09.1972, Side 63
Guðrún Jakobsdóttir:
Minning
Margrét Auðunsdóttir
Fœdd 28. maí 1912.
Dáin 10. febrúar 1912.
Skáld Rangæinga, Þorsteinn Erlingsson, kveður svo til æskunnar:
„Hve glöð er var æska
hve létt er vor lund,
er lífsstríð ei huga vorn þjáir.“
Ljóð þetta vil ég nú tileinka vinkonu minni Margréti Auðuns-
dóttur frá Dalsseli undir Eyjafjöllum, en hún andaðist á síðast-
liðnum vetri. Það verða einmitt minningar frá æskudögum okkar,
er ég mun dvelja við, því að eftir það skildu leiðir.
Fundum okkar bar fyrst saman á sólbjörtum vordcgi við barna-
skólapróf að Yzta-Skála. Margréti hafði ég aldrei séð áður, en
oft heyrt um hana talað. Mér varð strax starsýnt á hve gjörviieg
hún var, með létta brá, þykkar fléttur og frjálst viðmót. Já, ég
hafði aldrei séð hana, þó bjuggum við í sömu sveit, en fundir
voru fáir á bernskudögum okltar, því býlin aðskildi hin stóra
elfa, Markarfljót. Yfir það fór enginn að óþörfu. Eftir þennan
fyrsta fund tókst traust vinátta með okkur, er eigi lauk fyrr cn
Margrét nú hefur skilað sínu lífshlutverki. Það hafði hún rækt
Goðasteinn
61