Goðasteinn - 01.09.1972, Page 64

Goðasteinn - 01.09.1972, Page 64
með prýði fórnfúsrar eiginkonu og móður. Hún var gift Jónatan Jakobssyni skólastjóra Fljótshlíðarskóla i Rangárvallasýslu. Saman áttu þau þrjú efnileg börn. Lífið var Margréti gjöfult um margt, en það heimti líka af henni þunga skatta, svo sem þá er hún ásamt fjölskyldu sinni yfirgaf heimili sitt í brunarúst, og sluppu þau öll frá því nauðuglega. Eldingu hafði lostið niður að nætur- lagi og hún orðið þessa valdandi. Eftir þetta atvik skrifaði Margrét mér, og ég gat lesið út úr línum þess bréfs hugarfar hennar, er mér fannst á þessa leið: „Vér skulum ei æðrast þó inn komi sjór og endrum og sinn gefi á bátinn“ o. s. frv. En svo sannarlega fann ég að henni var þctta þung raun. Fjölskyldan hugðist reisa nýtt heimili og vænti hamingjusamra daga en þá kom skattheimtan í annari mynd og tilkynnti að mein það, er húsfreyjan bæri, yrði ekki bætt. - Ég kom einu sinni að sjúkrabeði hennar. Þar var hún svo, er við vorum ungar, æðrulaus, rétti mér ljóð, er hún hafði tilcinkað mér, en hún var prýðilega hagmælt. 1 ströngum veikindum var hún hetja. Það var gjöf til hennar frá hljóðlátri móður er ól upp tylft barna með fágætu jafnaðargeði. Yfir henni var hugarró á hverju sem gekk. Minnist ég nú þeirra stunda, er ég dvaldi í Dalsseli með hlýrri þökk í huga. Þar kom ég á nótt sem degi og var jafnan sem eitt af börnunum á heimilinu. Þau fögnuðu mér samciginlega hús- freyjan Guðlaug Helga Hafliðadóttir og Auðunn Ingvarsson kaupmaður og bóndi. Hann var stórbrotinn persónuleiki, mikill vinur vina sinna. Guðlaug var höfðingleg, veitul, elskuleg og hlý. 1 Dalsseli var höfðingjasetur meðan þeirra naut þar við. Þar var einnig listrænt heimili og hljómlist sérstaklega í heiðri höfð. Ég gæti trúað þvi, að vísir að hinni fyrstu hljómsveit í byggðum Rangárvallasýslu væri einmitt komin frá systkinunum í Dalsseli, en þau sáu um þá hlið málanna á íþróttamótum og öðrum Ungmennafélagssam- komum fyrir og eftir 1930. Ég hef oft leitt hugann að því hve gleðistundir okkar ungling- anna undir Eyjafjöllum hefðu verið fáar og fábrotnar, ef þessara listrænu systkina hefði ekki notið við. Tel ég okkur öll, er þá 62 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.