Goðasteinn - 01.09.1972, Page 65

Goðasteinn - 01.09.1972, Page 65
vorum í blóma lífsins í mikilli þakkarskuld við þetca góða og ánægjulega fólk. Systkinin frá Dalsseli voru öll háttvís, greind og gjörvileg. Þau settu því visst svipmót á allar okkar samkomur. Þau áttu góða gæðinga og síðar bifreiðar. Voru þau því ávallt frjáls og sjálfstæð. En þau voru hugulsöm í meira lagi og naut ég þess oft, er þau tóku mig með sér á skemmtanir til næstu sveita, en það var auðvitað hámark lífsgleðinnar, meðan við enn gátum tileinkað okkur saman ljóðið: „Hve glöð er vor æska, hve létt er vor lund, er lífsstríð ei huga vorn þjáir.“ Frá þessu heimili var Margrét komin. Hún taldi ei eftir sér að söðla gæðinga og fara með mér ásamt fleira fólki inn á Þórs- mörk sumarið 1943, en það var í síðasta sinn er ég kom að Dalsseli. Nesti lagði heimili Margrétar til og það var ckki við nögl skorið. Við lögðumst saman til hvíldar undir berum kvöld- himni, sofnuðum við lindanið og vöknuðum næsta morgun við glaðan söngfuglaklið mitt í hinni djúpu öræfakyrrð. Slíku fær maður ekki gleymt. Þórsmörk, töfraríki íslenzkrar náttúru birtir oss undralönd óbyggðanna. - Margrét var dugleg ferðakona. Hún kunni vöð á hinum ströngu fallvötnum og fór þau ótrauð. cn í æsku okkar var naumast brú á nokkru af þeim stórfljótum, er við þurfum að fara yfir t. d. á íþróttamót eða annað það, sem fara þurfti til næstu byggðarlaga. En þá var þess notið að vera til og hittast. Létum við þá gæðingana leika með okkur, horfðum vonglöð fram á veginn og engu kviðið. Ég var aldrei vör við ungling, sem ekki var sáttur við lífið og glaður í þá daga. Leiðir okkar Margrétar skildu um margra ára skeið, en hún sleit aldrei hlekk í þeirri vinsemdarkeðju, er við bundum ungar. Skrifaði hún mér jafnan hugþekk bréf og gæddi þau fallegum ljóðum. Ég kom eitt sinn örlitla stund í afturelding á heimili hennar í Fljótshlíðarskóla. Börnin voru enn ekki komin á fætur, en ég sá þau og hamingju hinnar góðu móður, sem áfram mun vernda fótspor þeirra um ófarna ævileið. Margrét fylgdi mér til dyra. Við námum staðar á hlaðinu en hún bað mig að líta með sér austur Goðasteinn 63

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.