Goðasteinn - 01.09.1972, Síða 68

Goðasteinn - 01.09.1972, Síða 68
í Berjaneskoti undir Austur-Eyjafjöllum bjó Andrés Pálsson frá Fit giftur Katrínu Magnúsdóttur ömmusystur minni. Berjanes- kot var enginn venjulegur bær í augum barnsins. „Til góðs vinar liggja gagnvegir" og oft var komið að Berjaneskoti á þeim árum. Bærinn var í gömlum stíl, „horfinn urn með grænt torf“, með skarsúðarbaðstofu, stofu, eldhúsi og búri og öðrum húsum, sem þá heyrðu til sveitabúi. I huga mínum er þokki fegurðar og góðra minna yfir bænum í Berjaneskoti, og frændfólkinu utan yfir Ósinn var fagnað með veizlukosti. Ekki spillti heldur, að rétt hinum megin við lækinn var bærinn hennar Margrétar föðursystur minnar og hans Ólafs. Raunar gat vel svo farið, að maður hitti á Jónsbókarlestur hjá Margréti, en hún las hann af alúð og ást og trú, sem laðaði til að nema mál meistara Jóns. Líklega fór það þó í og með fyrir ofan garð og neðan hjá barni fyrir innan tekt. Og þarna var það, sem ég kynntist Möggu og lárnum. Margrét var dóttir Andrésar og Katrínar, fædd 1898 og því komin um þrítugt, þegar ég fer fyrst að muna að marki til manna. Á unga aldri hafði hún misst sjónina. Tvennt var það, sem mér var þá minnisstæðast um Möggu frænku, annað það, að hún gekk um hús og húsmuni eins og sjáandi væri og hélt öllu í röð og reglu, hitt að hún átti bros og gleði ekki síður en við, sem gengum í glaðaljósi. Komur hennar og Gunnu frænku á Leirum voru vel þegnar á æskubæ mínum, gilti einu, hvort gestirnir þeystu í hlaðið á góðhestum eða komu gangandi beina leið austan ísilagðan Ós- inn, í för þeirra var lífsgleðin söm og jöfn. Eftir föðurmóður sína og alnöfnu, Margréti á Fit undir Fjöll- um, hafði Margrét erft einn hlut, útskorinn trafalár, sem átti sinn heiðursstað í stofunni í Berjaneskoti, og lárinn man ég eins vel og eigandann allt frá fyrstu kynnum. Fjölskyldan í Berjaneskoti flutti suður að Leynimýri við Reykja- vík árið 1937, en þar var þá einn sonurinn, Björn Andrésson, búinn að eiga heimili um nokkurn tíma. Nýr þáttur var hafinn í lífi Margrétar frænku, jöfnum höndum hugsaði hún um heimili aldraðra foreldra sinna og vann inni í borginni með blindu fólki. Fyrst vann hún á vinnustofu Blindravinafélags íslands, en seinna 66 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.