Goðasteinn - 01.09.1972, Page 76

Goðasteinn - 01.09.1972, Page 76
í höggi við Karl 5. keisara í Þýzkalandi. Þegar Kalvinstrúin tók fyrir alvöru að eflast meðal borgarastéttarinnar í Frakklandi upp úr miðri 16. öld, hóf konungurinn, sem var strangtrúaður á gamla vísu, að ofsækja mcð báli og brandi alla þá, er tóku við hinum nvja sið. Ofsóknir þessar báru ekki tilætlaðan árangur, enda var konungur hvorki vitur né mikill stjórnandi. Þjóðin var líka þreytt eftir langvarandi styrjaldir, fjárhagur ríkisins bágborinn og stjórn- arkerfið í lamasessi. Árið 1559, þegar friður var loks saminn milli Þýzkalands og Frakklands, var svo komið í Frakklandi sakir útbreiðslu Kalvins- trúar, að ekki var nema um tvær leiðir að velja. Annað hvort varð að taka upp umburðarlvndi í trúmálum eða heyja borgara- styrjöld. Og rétt í þessu andaðist Hinrik konungur. Þótt hann að vísu hefði ckki verið líklcgur tii að leiða þjóð sína farsællega fram úr þcim vandræðum, sem að steðjuðu. þá voru synir hans þrír, er fylgdu honum hver af öðrum, milclu síður til þess fallnir, því að þeir voru ungir að árum, líkamlega veikbyggðir og andlega truflaðir. Enda fór svo sem við mátti búast, að óðar gaus upp ófriður milli hinna fjölmörgu aðalsætta, og klofningurinn í trú- málum gerði baráttuna mun illskevttari. Kalvinstrú breiddist eins og fyrr segir upphaflega út meðal borgarastéttarinnar, en ekki leið á löngu áður en allmargir aðalsmenn gengu hinum nýja sið á hönd og fylgdu í því efni fordæmi stéttarbræðra sinna í Þýzka- landi. Einkum jók það tilhneigingu aðalsins til að halla sér að Kalvinstrú, að Anton konungur í Navarra og bræður hans tóku við henni. Bræður þessir voru af Bourbonættinni, sem var hliðar- grein af hinni ríkjandi Valois-ætt og stóð næst eftir konungsætt- inni til ríkiserfða í landinu. Þá voru og áhrifamiklir forystumenn Kalvinista þeir bræðurnir Kaspar og Frans Kolignv, og cinnig þeir voru af aðalsættum. Meiri hluti aðalsins stóð þó með kon- ungsættinni og hélt fast við fornan sið. Hertoginn af Guise var cinn hinn óbilgjarnasti þessara stóraðalsherra og gerðist hann um þessar mundir forsprakki kaþólskra manna i landinu. Hertoginn af Guisc hafði komið ár sinni vel fyrir borð við frönsku hirðina með því að hann gifti systurdóttur sína, Maríu Stuart drottningu í Skotlandi, elzta syni Hinriks 2. í Frakklandi. 74 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.