Goðasteinn - 01.09.1972, Blaðsíða 80
þau hryllilegu áform um að lama húgenottahreyfinguna svo í eitt
skipti fyrir öli, að hún ætti sér ekki framar viðreisnarvon, með
því að láta myrða alla leiðtoga þeirra og fyrirmenn, sem vegna
hátíðahalda brúðkaupsins voru saman komnir í París um þessar
mundir. Kaþólskir vinir ekkjudrottningarinnar tóku þessari uppá-
stungu með mikilli gleði, en konungur var, þrátt fyrir ósjálfstæði
sitt, lengi vcl tregur til að veita samþykki og tilskipun um svo
níðingsleg glæpaverk. Móðir hans setti þá saman sögu um yfir-
vofandi samsæri húgenotta og sagði Koligny flutaforingja vera
forsprakka þess. Taugar konungs voru ekki sterkar og máttu ekki
við þcssum áróðri. Lét því konungur um síðir undan og sam-
þykkti að gefa út tilskipun um húgenottamorðin. Við það tæki-
færi á þessi veikgerði unglingur að hafa hrópað að móður sinni
og hertoganum af Guise: „Drepið þá, en drepið þá alla, svo að
enginn þeirra verði eftir til að ákæra mig“. Þar með var ekkert
lengur til fyrirstöðu og Katrín og hertoginn undirbjuggu óhæfu-
verkin með svo mikilli leynd, að ekkert kvisaðist út um áform
þeirra til húgenotta, sem uggðu ekki að sér.
Aðfaranótt 24. ágúst, nóttina fyrir messu heilags Bartolo-
meusar, skyldi látið til skarar skríða. Konungur sat skelfingu
lostinn í höll sinni. Móðir hans vék ekki frá honum, talaði sífellt
í hann kjark og hughreysti á alla lund. Klukkan var langt gengin
þrjú og algjör kyrrð ríkti í borginni við Signu, þar sem allir
virtust sofa svefni hinna réttlátu í húmi ágústnæturinnar. Senn
skyldu morðin hefjast og enn hikaði konungur, þar sem hann
sat í hnipri og svitnaði í angist. Móðir hans lagði þá fastar að
honum en nokkru sinni áður og loks tókst henni að þvinga þenna
veikgeðja ungling til að gefa skipun um að kirkjuklukkunum
skyldi hringt, en það var hið ákveðna merki. Klukkan sló þrjú
og andartaki síðar hljómuðu kirkjuklukkur út um alla borgina.
Þá kom í ljós að ekki sváfu allir værum svefni, því að hvar-
vetna spruttu vopnaðir morðingjar út úr fylgsnum sínum og
hófust brátt hin æðislegustu manndráp. Morðingjar Kolignys voru
fljótir á vettvang og varð hinn aldraði og særði leiðtogi meðal
fyrstu fórnarlambanna í þessum hryðjuverkum. Hann hafði vaknað
sem margir aðrir við kirkjuklukkurnar og gengið út að glugga
78
Goðasteinn