Goðasteinn - 01.09.1972, Page 81

Goðasteinn - 01.09.1972, Page 81
sínum til að skyggnast um. í sömu andrá var hurðinni hrundið upp og inn ruddust skuggalegir böðlar. Einn þeirra hrópaði: „Ert þú Kóligny?“ „Já, það er ég ungi maður, sýndu hærum mínum virðingu“. En morðinginn sýndi Kóligny hvorki virðingu né mannúð, heldur rak hann í gegn með svcrði sínu hvað eftir annað. Síðan vörpuðu þeir kumpánar líki hans út um gluggann og hrópuðu um leið út í náttmyrkrið: „Það er gert“. I sama mund hófust hryðjuverkin um gjörvalla borgina. Kaþólskir menn, sem undirbúið höfðu manndrápin, settu ljós við glugga þcirra húgenotta, er myrða átti. Gengu þessir menn um með hvítt band um handlegg og stjórnuðu sveitum morðingjanna. Böðlarnir ruddust síðan inn i hús þau, er auðkennd höfðu verið, og hjuggu og stungu alla mótmælendur, sem þar fyrirfundust. Fjölmargir þessara ógæfusömu manna reyndu að forða sér og þustu út úr húsunum, en voru þá drepnir á götunum. Varðmenn stóðu á hverju horni og fvlgdust með hverri hreyfingu. Víða var strætum lokað með ramgerðum hlekkjum til að torvelda flótta- mönnum undankomu. Strax og blóðbaðið var byrjað, missti hinn lítilsigldi konungur alla stjórn á sér og varð sem óður. Hrópaði hann þá í sífellu út um hallargluggana hvatningarorð til morðingjanna um að ganga rösklega fram og öskraði: „Drepið þá, drcpið þá“. Sagt cr einnig að hann hafi skotið á þá, sem hann sá rejma að bjarga sér á flótta yfir ána. Um morguninn lágu líkin eins og hráviði um alla borgina og skríllinn skcmmti sér við að draga þau eftir götunum og varpa þeim síðan í Signu. Morðin í París héldu áfram í þrjá sólarhringa samfleytt. Að þeim tíma liðnum ók konungur með fríðu föruneyti um götur borgarinnar. Hann kom þar sem múgurinn hafði hengt lík Kolignys á fótunum upn í gálga. Byrjað var að slá í líkið og ýmsir af fylgdarmönnunum sneru sér undan lyktinni með viðbjóði. Konungur gekk þá feti framar og sagði: „Það lyktar alltaf vel af föllnum fjandmanni.'1 Jafnframt morðunum í París hófust hryðjuverk út um allt land og þó einkum í bæjunum. Til voru þó þcir héraðsstjórar, sem neituðu að hlýðnast skipunum um þessi manndráp og einn þeirra skrifaði konungi sem svar við skipun hans: „Herra, ég Goðasteinn 79

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.