Goðasteinn - 01.09.1972, Side 82

Goðasteinn - 01.09.1972, Side 82
hef skýrt íbúum borgarinnar og hermönnum setuliðsins frá fyrir- mælum yðar og í ljós hefur komið að hér er að finna góða borgara og hrausta hermenn, en ekki einn einasta böðul“. En þessi landstjóri var aðeins einn af fáum, cr ekki hlýddu, og skömmu síðar dó hann á dularfullan hátt. Flestir gerðu sem konungur bauð. I morðum þessum er talið að á milli 20 og 30 þúsund húgenottar hafi verið drepnir í öllu landinu. Svo til allir aðal- bornir foringjar þeirra höfðu fallið og var það með naumundum að Hinrik af Navarra fékk borgið lífinu með því að játa í skyndi kaþólska trú. Það tók hann að vísu ekki nærri sér, því að hann átti til að bera miklu meira frjálsræði í trúmálum, heldur en venja var á þessum tímum ofstækis og trúarhaturs. Sýndi hann það við fjölmörg tækifæri. í löndum mótmælenda fylltust menn skelfingu við tíðindin um blóðbrúðkaupið í París og víðast hvar blöskraði fólki frarn- ferði kaþólskra manna í Frakklandi. En Filippus konungur á Spáni fagnaði þessum atburðum og átti vart nógu sterk orð til að þakka Katrínu af Medici afrek hennar í þágu trúarinnar. Sagt er að í það eina skipti hafi menn séð þenna alvörugefna þjóð- höfðingja brosa. Páfinn í Róm varð einnig glaður og hrærður vfir því að svo margir villutrúarmenn hefðu verið drepnir. Lét hann syngja Te deum í hátíðarguðþjónustu og skjóta heiðurs- skotum guði til dýrðar. En hinn ungi og veiklaði konungur, Karl 9., sem að nafninu til bar ábyrgð á ódæðisverkunum, átti ekki næðissama daga ólifaða. Samvizkan þjakaði hann og skelfingar Bartólómeus- næturinnar stóðu honum sífellt fyrir hugskotssjónum. Líf hans varð sem samfelld martröð. Hann bókstaflega tærðist upp og dó aðeins tveimur árum eftir þessa atburði, liðlega tvítugur að aldri. Fjöldamorðin á húgenottum í París og víðar í Frakklandi ágústdagana 1572 vöktu, svo sem við var að búast, viðbjóð og skelfingu í löndum mótmælcnda. En Katrín af Medici hlaut þakklæti og hlýjar kveðjur frá páfanum og Filippusi 2. á Spáni. Reyndar lék þessi ítalska ekkjudrottning nokkuð tveimur skjöld- um eftir atburðina. Frammi fyrir páfanum og kaþólsku þjóðhöfð- 80 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.