Goðasteinn - 01.09.1972, Qupperneq 85

Goðasteinn - 01.09.1972, Qupperneq 85
yrði með einhverjum ráðum að koma til móts við andstæðinga sína. Hann átti til að bera töluverða slægð í stjórnmálum ásamt þeim ágæta hæfileika að geta alltaf fundið málamiðlun í hverjum vanda. Honum var ljóst að kaþólsk trú átti miklu meiri ítök í þjóðinni en hinn nýi siður. Það var því ekki um aðra leið að ræða út úr sjálfheldunni, ef Frakkland átti að öðlast frið og fá dugandi forsjármann, sem það vissulega þarfnaðist eftir allan ófriðinn og upplausnina, en að Hinrik gengi aftur hinni gömlu trú á hönd. Það gerði hann líka um síðir og var hátíðlega skírður til kaþólskrar trúar árið 1593. Árið eftir hélt hann svo inn í Parísarborg sem viðurkenndur konungur í öllu landinu. Við það tækifæri á hinn dugmikli ráðgjafi hans Sully að hafa sagt að París væri þó alltaf einnar messu virði. Segja má eftir þessi endalok að kaþólska kirkjan bæri sigur af hólmi úr hinum grimmilegu og langvinnu trúarbragðaátökum. En það var einnig jafnljóst að mótmælendatrúnni hafði ekki verið útrýmt og hinn nýi konungur, sem nefndist Hinrik 4., gleymdi ekki fyrri trúbræðrum og stríðsfélögum, heldur tryggði réttindi þeirra á allan hátt. Árið 1595 hafði Hinriki 4. tekizt að brjóta á bak aftur alla andstöðu gegn sér í Frakklandi, sneri hann sér þá gegn hættulcgasta óvini sínum erlendis og lýsti yfir stríði á hendur Spáni. Ófriður sá varði í þrjú ár, og yfirburðir Hinriks og hers hans sannfærðu kaþólska andstæðinga konungs heima í Frakklandi um að þeir mættu vart vænta nokkurs stuðnings frá trúbræðrum sínum á Spáni í framtíðinni. Frá fyrstu stundu konungdóms síns vann Hinrik 4. markvisst að því að sætta hin stríðandi öfl í landinu jafnframt því sem hann treysti konungsvaldið, en því hafði hnignað geigvænlega á tímum borgarastyrjaldanna og á stjórn- arárum hinna veikgerðu sona Katrínar af Medici. Hann gerði sér ljóst, að hvggilegra væri að vinna forna fjendur til fylgis við sig með góðu, en að láta þá sæta hörðum kostum. Hann hcfndi sín aldrei á yfirbuguðum andstæðingum, heldur fyrirgaf þeim og vingaðist við þá. Gjafir og embætti lét hann þeim í té, er þiggja vildu, og kaþólskir menn voru eins velkomnir í þjónustu hans og húgenottar. Með þcssum og öðrum ráðum ásamt Goðasteinn 83
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.