Goðasteinn - 01.09.1972, Síða 89

Goðasteinn - 01.09.1972, Síða 89
yfirgnæfandi meiri hluta þjóðarinnar að slíks eru fá dæmi í sögu Frakklands og alls engin, þegar haft er í huga að hann varð árum saman að berjast til ríkis og viðurkenningar. Til þessara vinsælda hans lágu fjölmargar orsakir. Hann hafði bundið endi á borgara- styrjöldina og friðað landið. Einnig hafði honum heppnast á ótrú- lega skömmum tíma að rétta við efnahag og efla athafnalíf lands- manna, svo að velmegun og almenn hagsæld blómstraði meira en dæmi voru til áður. Þá hafði hann leiðrétt allt embættiskerfið og upprætt misferli og lögleysur. Og hann sýndi svo frábært frjáls- lyndi og sveigjanleik í trúmálum að slíkt var algjört einsdæmi um þjóðhöfðingja og jafnvel mann í hvaða stöðu sem væri á tímum formyrkvaðs ofstækis og trúarhaturs 16. og 17. aldar. En það var miklu fleira, scm renndi stoðum undir óvenjulegar vinsældir og ást þjóðarinnar á þessum dugmikla konungi. Ber þar einkum að nefna alþýðlega framkomu hans, glaðværð og karlmennsku. Einnig var hann glæsimenni í útliti og hinn riddara- legasti í hvívetna, svo að konur hrifust mjög af honum og neytti þessi Iífsglaði konungur þeirra yfirburða sinna í ríkum mæli. En lítt skeytti hann um konunglegan skrúða og gekk að jafnaði svo hirðuleysislega til fara, að engin leið var til að þekkja hann a klæðnaði frá bændum og öðrum erfiðismönnum. Spunnust af þeim sökum og öðrum margar sögur um konung. 1 einni slíkra sagna segir frá því, er konungur var einu sinni sem oftar á gangi í útjaðri borgarinnar. Mætti hann þá bónda, gaf sig á tal við hann og spurði, hvert ferð hans væri heitið. Bóndi kvaðst ætla inn í borgina og freista þess að fá að sjá kónginn, sem svo mikið væri af látið. En gallinn væri bara sá, að hann vissi ekki hvernig konungur liti út og mundi hann því eiga erfitt með að þekkja hann frá öðrum mönnum. Það ættu ekki að verða nein vandræði, sagði Hinrik 4. Gættu vel að, þegar þú sérð mann, sem hefur hattinn á höfðinu, þegar allir aðrir taka af sér höfuðfatið, þá er það konungurinn. Þeir urðu síðan samferða inn í borgina og brá þá svo við að allir, scm þeir mættu, viku tii hliðar og tóku ofan. Er þannig hafði gengið um hríð og sífellt fjölgaði höttum á lofti, tók bóndinn að undrast og segir við förunaut sinn: ,,Ann- ar hvor okkar hlýtur að vera konungurinn, því að það eru aðeins Goðasteinn 87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.