Þroskaþjálfinn - 1998, Qupperneq 4
útgfáíuráái
egar við hér fyrir austan gáfum
kost á okkur í útgáfuráð vorum við
þroskaþjálfarnir fimm talsins. Þó eng-
in af okkur hefði reynslu af útgáfu-
störfum slógum við til.
En fljótlega fór að reytast af hópnum
og á fyrsta fundi ráðsins sl. haust hafði
ein af okkur flutt suður og önnur
flutti eftir áramót. Dæmigerður
landsbyggðarvandi.
Varðandi efni blaðsins ákváðum við að
það ætti fyrst og fremst að fjalla um
störf þroskaþjálfa og vera skrifað af
þroskaþjálfum.
Einnig lögðum við áherslu á að fá efni
frá sem flestum landshlutum og tókst
það með ágætum eins og sjá má hér í
blaðinu.
Það er vel við hæfi að nú komi út
fréttablað Þroskaþjálfafélags Islands
þar sem miklar og margvíslegar
breytingar hafa átt sér stað og eiga
eftir að verða enn meiri.
Efni þessa blaðs ber merki um þessar
hræringar og má þar m.a. nefna stofn-
un stéttarfélags þroskaþjálfa, breyt-
ingar á starfsvettvangi þroskaþjálfa
og flutning málefna fatlaðra frá rfki til
sveitarfélaga sem fyrirhugaður var um
áramót '98 - '99 en hefur nú verið
frestað um óákveðinn tíma. Það skal
tekið fram að greinar í blaðinu varð-
andi málefni þetta voru ritaðar áður
en sú ákvörðun var gerð opinber.
Einnig koma hér fram mismunandi
sjónarmið varðandi framtíð þroska-
þjálfa og þroskaþjálfamenntunar og
hvetjum við alla þroskaþjálfa til að
velta þeim fyrir sér. Vel mætti hugsa
sér áframhald á þeirri umræðu í næsta
blaði.
Vonum við að greinar þær sem hér
birtast vekji áhuga lesenda og efli fag-
vitund og umræðu innan félagsins.
Við þökkum öllum þeim sem sent
hafa efni í blaðið og öðrum sem að því
hafa staðið.
Að lokum skal það tekið fram að allar
greinar eru birtar á ábyrgð höfunda.
Með bestu kveðju.
Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu blaðsins:
Hjörtur Sveinsson og co ehf Bíldshöfða i6, II2 Reykjavík Apótek Suðurnesja ehf Hringbraut 99, 230 Keflavík
Kaupfélag Skagfirðinga Ártorg i, 550 Sauðárkrókur Apótekið Skeifan Skeifan 8, 108 Reykjavík
Héraðsbókasafn Borgarfjarðar Bjarnarbraut 4-6,310 Borgarnes Kirkjufell Bugðutangi 5, 270 Mosfellsbær
K.E.A Hafnarstræti 91-95, 600 Akureyri Kjötvinnsla B.Jensen Lóni, 601 Akureyri
Kaupfélag Súðavíkur ehf AðALGÖTU 38, 420 SÚÐAVÍK Afltækni ehf Barónsstígur 5, 101 Reykjavík
Iðunnar apótek ehf Domus Medica Egilsgata 3, 101 Reykjavík Kaupsel hf Gilsbúð 5, 210 Garðabær
Arkform Skúlagötu 63, 101 Reykjavík Káiisneskjör Borgarholtsbraut 71, 200 Kópavogur
Arnardalur sf Þinghólsbraut 58, 200 Kópavogur Kópsson Bílaþrif Bíldshöfða 6, 112 Reykjavík
Apótek Blönduóss Flúðabakka 2, 540 Blönduós EIeilbrigðisstofnunin Blönduósi Flúðabakka 2, 540 Blönduós
4
Þroskaþjálfafélag
í s I o n d s