Þroskaþjálfinn - 1998, Page 6

Þroskaþjálfinn - 1998, Page 6
nun Stof stéttarfélagfs jM_eð breytingum á lögum um kjarasamning opinberra starfsmanna nr: 94/1986 opnuðust möguleikar fyrir hina ýmsu faghópa til að stofna sín eigin stéttarfélög. Samnings- og verkfallsrétturinn færðist úr höndum heildarsamtakanna (BSRB) til félag- anna sjálfra. Innan Starfsmannafélags ríkisstofnana (SFR) voru ásamt þroska- þjálfum nokkrir faghópar m.a. leikskólakennarar, meinatækn- ar og sjúkraliðar sem uppfylltu skilyrði laga til stofnunar stéttarfélaga og sáu sér hag í því að stofna sín eigin félög og gerðu það á næstu árum eftir breytingarnar á lögunum. Þroskaþjálfun er lögverndað starfsheiti og eru starfsleyfi gefin út af Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Þroskaþjálfar starfa samkvæmt lögum nr. 18/1978 og reglu- gerð nr. 215/1987 um störf, starfs- hætti og starfsvettvang þroskaþjálfa. Kristrún Sigurjónsdóttir og GuSmundur Grímsson frá SNR. Langur aðdragandi I Félagi þroskaþjálfa störfuðu í gegn- um tíðina kjaranefndir sem unnu að kjaramálum og jafnframt áttum við lengst af einn mann í samninganefnd SFR, en eftir að sérkjarasamningar lögðust af gekk okkur æ verr að koma okkar sjónarmiðum á framfæri og drógumst við stöðugt aftur úr í laun- um miðað við aðrar sambærilegar fag- stéttir. Það er ekki síst þessi þáttur sem olli því að umræðan um stofnun stéttarfélags verður öflugri sem og sú staðreynd að það var eini möguleiki okkar til að komast að samningaborð- inu og fá að semja sjálf um kaup okk- ar og kjör. I Fréttamola sem Félag þroskaþjálfa sendi út 1992 setti þáverandi formað- ur fagfélagsins Margrét Ríkarðsdóttir fram ýmis atriði sem vörðuðu stofn- un stéttarfélags þroskaþjálfa og má segja að umræðan hafi síðan haldið nánast óslitið áfram. A ráðstefnu þroskaþjálfa sem haldin var að Botni í Eyjafirði í maí 1992 var undirritaðri ásamt Árna Má Björnsyni falið að kanna möguleika á stofnun stéttarfé- lags með eða án aðildar að SFR. Upp- lýsingum var safnað saman og þær kynntar félagsmönnum ýmist í frétta- molanum eða á fundum félagsins. Niðurstöður þá voru á þá leið að hæp- ið væri að við gætum fjárhagslega staðið ein og sér undir slíkum rekstri. En áfram var málið skoðað. I mars 1996 voru lagðar fyrir þáverandi stjórn félagsins upplýsingar um stofn- un stéttarfélags og í framhaldi af því gerð könnun meðal þroskaþjálfa um vilja til stofnunar stéttarfélags með aðild að SFR. Miklar umræður voru um málið og fannst ýmsum sem að skrefið væri of stutt og fara ætti alla leið og stofna stéttarfélag án aðildar að SFR. Þroskaþjálfar voru og eru enn að stærstum hluta ríkisstarfs- menn og félagsmenn í SFR og var því ekki um breytingar að ræða hjá þeim við stofnun stéttarfélags. Hins vegar var þó nokkur hópur þroskaþjálfa í hinum ýmsu bæjarstarfs- mannafélögum og skipti miklu máli að þeir yrðu með í nýju fé- lagi og að þeirra réttindi væru tryggð. Þau atriði sem oft bar á góma í um- ræðunum um stofnun stéttarfélags voru t.d. réttur til úthlutunar úr starfsmenntunarsjóði, aðgangur að sumarhúsum ofl. Misjafnt er eftir fé- lögum hvernig þessu er háttað. Hér ber að hafa í huga að vinnuveitandinn (ríki og Reykjavíkurborg) greiða 0.22% (sveitarfélög 0.30%) af heild- arlaunum starfsmanna í starfsmennt- unarsjóð þess félags sem viðkomandi er í sem og 0.22%í orlofssjóði sem fé- lögin hafa notað til uppbyggingar á orlofshúsum. Onnur atriði sem skipta ekki minna máli s.s. veikindaréttur, fæðingarorlof, réttindi og skyldur eru bundin lögum og breyttust því ekki hjá neinum í tengslum við stofnun Sólveig Steinsson, formaÓur Þroskaþjálfafélags Islands Þroskaþjálfafólag í s I a n d s

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.