Þroskaþjálfinn - 1998, Page 18

Þroskaþjálfinn - 1998, Page 18
gengið vel og hefur sífellt verið að styrkjast. Allir þekkja alla. Samfélög hér á Vestfjörðum eru yfirleitt fámenn. Fá- mennið getur boðið upp á marga kosti. Samfélagið er gegnsærra, sem m.a. stuðlar að því að þjónustuþörfin verður ljós fyrr og því auð- veldara að bregðast við með viðeigandi þjónustu. Persónuleg tengsl við sveitarstj ór nir. Fámennið er hér kostur, þar sem ekki þarf að leita til flókins stjórnkerfis með úr- lausn eða samvinnu, heldur er hægt að leita milliliða- laust til þeirra sem hafa ákvörðunarvaldið í höndum sér. Það stuðlar að því að ósk- um er hægt að svara með skilvirkum og hröðum hætti. Þroskaþjálfar 4 Svœðisskrifstofu Vestfjarða. Efri röS: Sóley VeturliSa- dóttir, Hugrún Kristinsdóttir og Hlíf Hrólfsdóttir. NeSri röS: SigfríSur Hallgrímsdóttir, Arnheiður Jónsdóttir og Laufey Jónsdóttir. 3. Mörg kerfi standa að þjónustunni. Þjónusta við fólk með fötlun er á ábyrgð margra aðila. Al- menna félagsþjónustukerfið á að sinna almennum þörfum þeirra, Svæðisskrifstofan á að sinna sértæku þörfunum, heilsugæslan og skólakerfið eiga að sinna þeim almennu og þeim sértæku þörfum sem upp koma og lúta að al- mennu heilbrigði og mennt- un. Oft hefur það verið ann- mörkum háð að tryggja markvissa vinnu þegar þjón- ustan snertir alla þessa aðila. Markmið einstakra þjónustu- þátta eru misjöfn og oft ekki í neinu samræmi við þau markmið sem verið er að vinna að í öðrum kerfum. Slík vinnubrögð skapa því spennu á milli þjónustukerfa sem stundum er erfitt að leysa. Hæft starfsfólk. A Svæðisskrifstofunni er starfandi starfsfólk með góða þekkingu á mál- efnum fólks með fötlun. A öllum skrifstofunum fjórum eru starfandi sérfræðingar í málefnum fatlaðra, t.d. eru starfandi þroskaþjálfar á öllum þjónustusvæðum. VEIKLEIKAR OG HINDRANIR NÚVERANDI ÞJÓNUSTU 1. Fagleg einangrun. Meginveikleika þjónustunnar má rekja til landfræðilegrar legu svæðis- ins og fámennis ýmissa sveitarfélaga. Eins og áður hefur verið komið inn á er samræmd tenging hinna ýmsu þjónustuþátta grundvöllur góðrar þjónustu. Til þess að geta veitt þessa þjónustu þarf því nokkuð góða fag- lega breidd í því starfsfólki sem er til staðar. Fámennið veldur því að ekki er alltaf hægt að koma þessu við. 2. Skortur á sérfræðiþjónustu. Þjónusta sálfræðings hefur verið af skornum skammti og hefur það oft valdið erfiðleikum. Einnig er mikill skortur á sjúkraþjálfun á þremur þjónustusvæðum sem hefur valdið því að fólk með fötlun, sérstaklega börn, hafa þurft að dveljast um lengri eða skemmri tíma á þjónustusvæði I til að fá nauðsynlega þjónustu. Einnig er mikill skortur á iðjuþjálfun og tal- þjálfun. Svæðisskrifstofan hefur reynt að koma til móts við þetta með því að verkefnaráða sérfræðinga og einnig er sjúkraþjálfari í starfi hjá skrifstofunni sem hefur það hlutverk að veita ráð- gjöf og stuðning til annarra svæða. A öllum skrif- stofunum fjórum eru starfandi sérfræáingar í málefnum fatl- aðra, t.cl. eru starfancli Jaroskajjjálfar á öllum Jjjónustu- svæðum. 4. Ör starfsmannaskipti/ lág laun. Eðli starfa með fötluðum er þannig að þau reyna mikið á, bæði andlega og líkamlega. Þetta veldur því að starfs- mannaskipti eru ör. Sérstaklega hefur þetta átt við hjá starfsfólki sem hefur takmarkaða menntun. Oft er ástæðan sú að starfsfólk, þá sérstaklega það sem er ungt, hefur tilhneigingu til að líta á störf af þessu tagi sem tíma- bundin, því það ætlar sér einhvern annan starfa í framtíðinni. Einnig eru launin lág sem veldur því að starfsfólk er laustengdara í starfi en ella. 5. Önnur viðhorf. Viðhorf til þjónustu fatlaðra hafa gengið í gegnum mörg þróunarskeið frá því fyrst var farið að veita hana. Þau viðhorf sem eiga að einkenna framkvæmd þjónustunnar er m.a. að stuðla að þátttöku, jafnrétti og á- byrgð. Þessi sjónarmið eru starfsfólki ekki alltaf ljós. Sérstaklega getur þetta orðið erfitt þegar mikil skipti eru á starfsfólki og erfitt að skapa eðli- lega samfellu viðhorfa í þjónustunni. 18

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.