Þroskaþjálfinn - 1998, Page 19
HVAÐ ER FRAMUNDAN
Framundan eru nokkrar breytingar á
mnra starfi skrifstofunnar og einnig á
starfseminni allri. Meðal annars má
nefna að verið er að leggja niður
skammtímavistanir og ráða þess í stað
svokallaðar “skammtímafjölskyldur”
sem sinna því sama og gert er í
skammtímavistun en hafa eingöngu
einn í sinni þjónustu. Þjónustan er þá
veitt í heimahúsi viðkomandi skamm-
tímafjölskyldu. Þetta hefur verið
reynt í 8 mánuði og gefist mjög vel.
Svæðisskrifstofan hefur mótað verk-
lagsreglur sem ákvarða hvort börn fá
þjónustu skammtímafjölskyldu eða
stuðningsfjölskyldu. Nú þegar er
komin ákveðin reynsla á þetta fyrir-
komulag og eru foreldrar mjög á-
nægðir með það. Helstu kostir eru að
þeir sem þjónustuna nota líður betur,
stjórnunarþáttur skrifstofunnar
minnkar og ekki þarf að halda úti
dýru húsnæði og öðrum rekstri. Þetta
hefur einnig skapað fjárhagslega hag-
ræðingu.
Alls er áætlað að fjórir til fimm aðilar
fái þjónustu skammtímafjölskyldu en
aðrir sem hafa nýtt sér skammtíma-
vistun fara til stuðningsfjölskyldu.
Annað sem skrifstofan er að gera
breytingar á er að skipuleggja þjón-
ustu við fullorðna fatlaða undir einn
hatt og þjónustu við börn undir ann-
an hatt. Það hefur verið ákveðin til-
hneiging í þá átt að aðskilja þjónustu
við þá sem búa í eigin húsnæði og
vinna á almennum vinnumarkaði frá
þeim sem búa á sambýlum og vinna í
sérúrræðum sem skrifstofan hefur sett
á stofn. Með því að setja allt undir
einn hatt gefst meiri möguleiki á því
að nýta þekkingu starfsmanna á fleiri
en einu sviði í stað þess að binda þá
við einn sérstakan vinnustað.
Það þriðja sem skrifstofan er að vinna
að er varðandi yfirfærslu á málefnum
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Starfsmenn skrifstofunnar hafa skilað
af sér skýrslum um hugsanlega val-
kosti sveitarfélaga varðandi yfirfærsl-
una. Er nú búið að kynna þessa
skýrslu hjá sveitarfélögum á Vest-
fjörðum.
ÞJÓNUSTUSVÆÐIN
Eins og fram hefur komið eru hér á
Vestfjörðum starfandi Svæðisskrifstof-
ur á fjórum þjónustusvæðum og mun
ég aðallega fjalla um starfsemi minni
skrifstofanna vegna
sérstöðu þeirra.
Þjónustusvæði I
nær yfir ísafjarð-
arbæ, ( Þingeyri,
Flateyri, Suður-
eyri og ísafjöró),
Súðavík og Bol-
ungarvík og er
Svæðisskrifstofa
staðsett á ísa-
firði.
Á þjónustusvæði I, á aðalskrifstofu
Svæðisskrifstofunnar skiptist starf-
semin í 5 viðfangsefni sem eru leik-
fangasafn og ráðgjafadeild, frekari lið-
veisla og atvinnumál, sambýli, vinnu-
salur og skrifstofa.
Þjónustusvæði II nær yfir
Strandasýslu og hluta af Norður
ísafjarðarsýslu og er Svæðis-
skrifstofan staðsett á Hólmavík.
Þetta svæði skiptist í 6 sveitarfélög
sem eru Bæjarhreppur, Broddanes-
hreppur, Kirkjubólshreppur, Hólma-
víkurhreppur, Kaldrananeshreppur og
Árneshreppur.
Þjónustusvæði III nær yfir
Vestur Barðastrandasýslu og er
Svæðisskrifstofa staðsett á Pat-
reksfirði.
Þjónustusvæðið nær frá Arnarfirði
suður um, inn í Kjálkafjörð og eru 3
þéttbýliskjarnar, Bíldudalur, Tálkna-
fjörður og Patreksfjörður, á þessu
svæði.
Þjónustusvæði IV nær yfir
Austur Barðastrandasýslu og
hefur Svæðisskrifstofa verið
staðsett á Reykhólum.
Þetta svæði nær frá Kjálkafirði að
vestan að Gilsfirði að sunnan.
A síðasta ári hefur forstöðumaður á
Svæðisskrifstofu á Patreksfirði skipu-
lagt og séð um þjónustu á svæðum III
oglV.
Starfsmenn á þjónustusvæðum II, III
og IV búa við mikla sérstöðu í störf-
um sínum. Þar sér sami starfsmaður
um alla þjónustu við fatlaða á sínu
svæði, hvort heldur um börn eða full-
orðna er að ræða. Beiðnir sem berast
eru mjög mismun-
andi og eðlilega er
mismikil þjónusta
sem hver fær.
Sveigjanleiki er því
mjög nauðsynlegur.
Samgöngur geta ver-
ið erfiðar yfir vetrar-
tímann og getur það
tekið starfsmann
langan tíma að kom-
ast á milli staða.
Dæmi er um að
starfsmaður hafi þurft að ferðast með
snjósleða, snjóbíl eða á skíðum í starfi
sínu.
Eðlilega er fagleg einangrun mikil
þegar maður starfar svona einn út á
svæði, en það hefur verið kostur á
handleiðslu og ráðgjöf frá sálfræðingi
og sjúkraþjálfara frá aðalskrifstofunni
á Isafirði auk stuðnings hins fagfólks-
ins þar. Við skiptum sameiginlegum
verkefnum á milli okkar og vinnum
verkefni saman hvar sem við erum
staðsettar og notumst við síma og fax.
Þar notast vel nokkuð sem við köllum
SEM fundir, reglulegir símafundir
hálfsmánaðarlega sem eru upplýsinga-
og afgreiðslufundir. Eins veitum við
hvor annari stuðning hvar sem við
erum á svæðunum. Þannig hefur
Svæðisskrifstofunni hér á Vestfjörðum
tekist, þrátt fyrir miklar vegalengdir
og þó aðallega samgönguerfiðleika, að
gera þetta að einum og sama vinnu-
staðnum í orðsins fyllstu merkingu,
þó að langt geti verið á milli deilda.
LOKAORÐ
Miklar breytingar hafa orðið á störf-
um þroskaþjálfa á síðustu árum og
verða væntanlega í nánustu framtíð
meðal annars með tilliti til yfirfærslu
málefnis fatlaðra frá ríki til sveitarfé-
laga.
Við þroskaþjálfar hjá Svæðisskrifstofu
Vestfjarða veltum fyrir okkur hver
framtíð okkar stéttar verður.
Dæmi er um aá
starfsmaáur liafi
jjurft að ferðast
með snjósleða,
snjóLí 1 eáa
á skíðum í
starfi sínu.
19
Þroskaþjálfafólag