Þroskaþjálfinn - 1998, Blaðsíða 26

Þroskaþjálfinn - 1998, Blaðsíða 26
hinn fatlaða og foreldra til að finna út hvaða úrræði þarf til að allt gangi upp. Hún þarf að geta tekið á móti foreldrum með ung fötluð börn og veitt ráðgjöf varðandi alla þætti, sál- gæslu, félagsleg réttindi, þjálfun og ráðgjöf vegna fötlunarinnar. Ráðgjaf- arþjónustan þarf að vera aðgengileg fyrir alla, fatlaða, fjöl- skyldur þeirra og þá staði sem fatlaðir koma á. Þar þarf að vera til staðar góð yf- irsýn yfir úrræði á landsvísu t.d. Grein- ingarstöð, Sjónstöð og fleira, og hafa þarf góð tengsl við þessa aðila. Þekking þroskaþjálfa á þörfum fatlaðra og ráðgjöf varðandi hvernig þjónustu þeir þurfa er ómet- anleg. Starfsfólk félagsþjónustu þekk- ir þennan hóp ekki mjög vel, a.m.k ekki allan þennan breiða hóp, þekkir ekki þarfirnar og veit oft ekki hvaða réttindi og skyldur er um að ræða. A mínum vinnustað eru félagsráðgjaf- ar og sálfræðingar og þar sem ég er ein eftir af þeim sem komu frá Svæðis- Viá verðum að tryg’g'ja JjroskaJij álfum stöður innan skrifstofu, þá er ég sú eina sem þekki málaflokkinn og æ meira af mínum tíma fer í ráðgjöf við annað starfsfólk varðandi málefni þessa fólks og fjöl- skyldna þeirra. Ég hef mest unnið með börn og það þekkja þau minnst. Þau þekkja betur mál fullorðinna, t.d. geðfatlaðra en þó er hópur fullorðinna mikið fatlaðra sem þau þekkja ekki mikið. féla^sjijónustu framtíðarinnar, °É t ar erum við sérfræðing’ar innan almennrar Jjjónustu. Það eru því nokkur atriði sem ég vil sér- staklega leggja á- herslu á. Við verðum að tryggja þroskaþjálf- um stöður innan fé- lagsþjónustu fram- tíðarinnar, og þar erum við sérfræðing- ar innan almennrar þjónustu. Þar sem enn er fylgt eftir stefnu sem kennd er við “blöndun “ er það réttur fatlaðra og okkar að fá að fylgja þeim inn á alla þá staði í þjóðfélaginu sem þeir koma á hvort sem um er að ræða leikskóla, grunnskóla, framhalds- skóla, almennan vinnumarkað, tóm- stundir o.s.frv. Við verðum að tryggja betur stöður okkar á sambýlum og annarri búsetu- þjónustu og í atvinnumálum. Varðandi launamál þá er ekki spurn- ing að við stöndum betur í eigin stétt- arfélagi. Varðandi okkur sem komu á Ráðgjafardeild Akureyrarbæjar þá var það þannig um áramótin að við héld- um okkar launum, réttindum og skyldum gagnvart okkar stéttarfélagi. Laun voru sögð sambærileg sem var ekki rétt. Starfsmenn Akureyrarbæjar fá fyrir 40 stunda vinnuviku álíka laun og við fyrir 40 stunda vinnuviku að viðbættri yfirvinnu. Varðandi það hvað gerist 1999 þegar samningurinn við ríkið rennur út, þá veit enginn hvað verður um okkur, starfsmennina sem enn verðum í starfi. Samningurinn milli Akureyrar og ríkisins nefnir ekki neitt hvernig eigi að ganga frá okkar málum þegar að uppgjöri kemur. Þið sem verðið færð undir sveitarfélögin þurfið að huga vel að þessu, ráðuneytið sem þið starfið hjá gerir það ekkert endilega fyrir ykkur, það er okkar reynsla. Bestu kveðjur frá Akureyri, Karóltna Gunnarsdóttir þroskaþjálfi Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu blaðsins: Myndás Aðalstræti 33, 400 Isafjörbur Steypustöðin ehf Malarhöfða 10, 112 Reykjavík Gunnar Guðni Leifsson Hiiaunbær 4, I i i Reykjavík Bergdal hf Vatnagarðar 12, 104 Reykjavík Ólafur G Gústafsson Kringlan 7, 103 Reykjavík Hótel Tangi HaFNARBYGGÐ 17, 690 VOPNAFJÖRÐUR Snæfell hf Hafnartorg, 620 Dalvík Hitastýring hf Þverholt 15 -A, 105 Reykjavík Hrói Höttur Vesturgötu 52 Vesturgötu 52, 300 Akranes Nasco ehf Höfðabakka 9, 112 Reykjavík Skólaskrifstofa Vestmannaeyja Ráðhúsinu, 900 Vestmannaeyjar Málmsteypan Hella hf Kaplahraun 5, 220 Hafnarfjörður Bakki söluskrifstofa hf Borgartún 29, 105 Reykjavík Vopnafjarðarhreppur Hamrahlíð 15, 690 Vopnafjörður Stórstúka Íslands Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík 26 Þroskaþjálfafélag í s I a n d s

x

Þroskaþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.