Þroskaþjálfinn - 1998, Side 30

Þroskaþjálfinn - 1998, Side 30
Leikskólinn Víðivellir I-^eikskólinn Víðivellir tók til starfa 28. febrúar 1977 og er hann fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 6 ára. A Víðivöllum var í upphafi sérdeild fyrir fötluð börn en hún var lögð nið- ur haustið 1994. Á meðan sérdeild starfaði voru að með- altali 10 fötluð börn á deildinni á aldrin- um 1-6 ára. Þroskaþjálfar störf- uðu á deildinni frá opnun hennar og skipulögðu þroska- þjálfun og umönnun barnanna ásamt öðru skipulagi á deildinni. I dag eru 5 þroska- þjálfar á 3 deildum leikskólans. Á Víðivöllum eru 5 börn með viður- kenndan stuðning, allt frá eintim klukkutíma upp í 6 klst. á dag. Börn- in eru á 3 deildum og sjá þroskaþjálf- ar alfarið um þroskaþjálfun þessara barna. Vegna ólíkra fatlana, aldurs og getu barnanna eru ólíkar áherslur í þjálfun- inni. Það sem er sameiginlegt er að öll börnin eru tekin eins lítið út úr almennu dagskipulagi og mögulegt er. Daglegar athafnir eru nýttar til hins ítrasta í þjálfun. Þegar barn er tekið út í þroskaþjálfun er reynt að velja stund- ir sem eru barninu síst mikilvægar. Ekki getum við merkt annað en að viðhorfin séu jákvæð til blöndunar í okkar leikskóla. Á Víðivöllum er löng hefð fyrir veru fatlaðra og þroskaþjálfa og hefur það vafalaust á- hrif á viðhorfin. Því er ekki að neita að töluverðs ótta gætti hjá okkur þroska- þjálfum þegar sérdeildin var lögð nið- ur en sem betur fer var sá ótti ástæðu- laus. Við höfum mjög viðunandi að- stæður til þroskaþjálfunar, vilji er til að koma þjálfunarstundum inn í dag- skipulag, þjálfunarstundir og undir- búningstímar eru virtir. Að sjálfsögðu er ennþá ýmislegt sem betur mætti fara og teljum við það vera verkefni framtíðarinnar að festa þroskaþjálfa í sessi inni í leikskólum, gera góðar starfslýsingar m.a. um samvinnu leikskólakennara og þroskaþjálfa þannig að kraftar og kunnátta allra fullnýtist. Asta S.Loftsdóttir Dagný B. Sigurðardóttir Margrét Magnúsdóttir Rún Halldórsdóttir Sigurbjörg Guðmundsdóttir þroskaþjálfar ...verkefni fram- tíáarinnar að festa {noskaþjálfa í sessi inni í leikskólum, g'era gfóáar starfs- lýsing’ar m.a. um samvinnu leik- skólakennara og {jroskajajálfa Jiannig' aá kraítar og’ kunnátta allra fullnýtist. Eftirtaldir aðilar styrktu útgdfu blaðsins: SlGLUFJARÐARKAUPSTAÐUR Tjarnarsókn GRÁNUGATA 24, 580 SlGLUFJÖRÐUR Tjörn, 621 Dalvík Holtsprestakall Bændasamtök Íslands Holti, 861 Hvolsvöllur Bændahöllin v/ Hagatorg, 107 Reykjavík Seyluhreppur Eðalmúr hf 560 Varmahlíð Stórhöfði 22, 112 Reykjavík J.Á. SF Eiði ehf Suðurgötu 34, 300 Akranes Eiðisvegi 8-9, 900 Vestmannaeyjar Jón Indíafari hf Kennaraháskóli Ísi.ands Lynghálsi 3, 110 Reykjavík Suðurlandsbraut 22, 105 Reykjavík Jarðboranir hf Ármannsfell hf Skipholt 50 d, 105 Reykjavík Funahöfði 19, 112 Reykjavík 30 (í

x

Þroskaþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.