Þroskaþjálfinn - 1998, Page 31
• •
o ldrunardeild Endurhæfingar-
deildar Landspítalans í Kópavogi var
opnuð 18. nóvember 1996.
Astæða þeirrar ákvörðunar að opna
öldrunardeild hér á staðnum
var meðal annars sú að ekki
þótti ráðlegt að leggja flutn-
ing út á sambýli á aldraða ein-
staklinga staðarins, sem flestir
höfðu dvalist hér í áratugi.
Greinarhöfundur frétti,
snemma á árinu 1996, að end-
anleg ákvörðun um opnun
deildarinnar hefði verið tekin
og sótti hið snarasta um
deildarstjórastöðuna, sem
fékkst.
Næst var þá að forgangsraða verkefn-
um og snúa sér að undirbúningi. Mér
fannst nauðsynlegt að kynna mér að-
eins starfsemi annarra öldrunardeilda,
en ég þekkti lítið sem ekkert til þessa
málaflokks hér á landi.
Eg hafði samband við deildarstjóra
öldrunarmála í Félagsmálaráðuneyt-
inu. Til þess að ég fengi sem besta yf-
irsýn yfir mismunandi þjónustutil-
boð, þá ráðlagði hann mér að fara á
þrjá staði; Landakot, Droplaugarstaði
og Skjól. Þar sem ég hef þrettán ára
starfsreynslu á öldrunarstofnunum í
Kanada - hafði ég mjög fastar skoðan-
ir á því hvernig ég vildi ekki hafa
starfsemi deildarinnar. Þess vegna
hafði ég, áður en ég fór af stað, sett
spurningar á blað um það sem mig
fýsti að vita. Spurningar varðandi
stöðugildi, vaktafyrirkomulag, fjölda
íbúa/sjúklinga á hvern starfsmann,
fjölda fag-/ófaglærðra á vakt, tilboð
um afþreyingu og hvernig staðið væri
að upplýsingaflæði til starfsfólks varð-
andi íbúa/sjúklinga. Þar átti ég ekki
bara við sjúkrasögu, heldur einnig
hinn félagslega bakgrunn þeirra. Fyr-
ir utan þessar öldrunarstofnanir, þá
heimsótti ég líka eitt sambýli
í Reykjavík - til að fá enn
breiðari viðmiðun.
Það má geta þess að þrátt fyr-
ir mikið spurningaflóð hjá
mér, þá var mér mjög vel tek-
ið á öllum þessum stöðum og
fékk alls staðar greið svör.
Að þessu loknu ákvað ég að
snúa mér að þeim einstakling-
um sem voru væntanlegir íbú-
ar deildarinnar. Þar sem ég
hef verið deildarstjóri hér á
staðnum frá 1988, þá þekkti ég flesta
sem málið snerti, það auðveldaði mál-
ið til muna. Varðandi þá xbúa sem ég
þekkti minna til hafði ég samband við
viðkomandi deildarstjóra. Við flutn-
inginn á Deild 18 fylgdi íbúunum
einstaklingsáætlun. Á sínum tíma
hafði ég gert heildaráætlun fyrir
31
Þroskaþjálfafélag
íslands