Lögmannablaðið - 2024, Síða 8

Lögmannablaðið - 2024, Síða 8
8 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/24 athugasemdir félagsins þá gætir nokkurs viðbragðsleysis vegna þessa í ráðuneytinu,“ sagði hann. Þá lægju í ráðuneytinu heildstæðar tillögur að breytingum á lögmannalögum, breytingar á lögum um að dómarar rökstyðji úrlausnir um málskostnaðarkröfu, tillögur um gjafsókn þegar mál eru ómerkt og heimvísað í hérað en af því hlytist tjón sem að lögmenn þyrftu oft að bera. Einnig væru tillögur um breytingar á frestum í kærumálum, sem yrðu þá í svipuðu horfi og í áfrýjunarmálum, svo lögmenn gætu tekið sumarleyfi eins og aðrir: „Við höfum þá einnig óskað eftir breytingum á kærumálum hjá Hæstarétti en nú þarf að skila greinargerðum til varnar áður en kæruleyfi er veitt með tilheyrandi óþarfa kostnaði þegar kæruleyfi er synjað“ Sigurður sagðist vonast til þess að þessi mál myndu þokast áfram á næstunni. Sigurður Örn fjallaði einnig um félagsdeildina og sagðist vera afskaplega stoltur af því að félagið hóf að taka þátt í mentorprógrammi sem Lögfræðingafélag Íslands hefði rekið um nokkurra ára skeið. „Mér fannst aðdáunarvert hve margir eldri og reyndari félagar voru tilbúnir til að gefa tíma sinn til að leiðbeina ungu fólki um næstu skref á þeirra starfsferli. Ég held að svona mentorprógramm skipti miklu máli,“ sagði hann. Þá ræddi Sigurður um nefndir félagsins og mikilvægi þeirra. Á síðasta ári bárust 51 mál til úrskurðarnefndar, sem kvað upp 31 úrskurð, og til laganefndar bárust 45 umsagnarbeiðnir frá nefndum Alþingis og ráðuneytum. Eitt af mikilvægum hlutverkum Lögmannafélagsins er að mæla fyrir réttarbótum og fóru nefndarmenn laganefndar alls átta sinnum fyrir fastanefndir Alþingis á síðasta ári. Þetta var í síðasta skipti sem Sigurður flutti ársskýrslu félagsins og kvaddi hann með þeim orðum að honum þætti afskaplega vænt um félagið og að það hefði verið sér heiður að starfa innan þess. Að því loknu þakkaði hann öllum þeim sem hefðu unnið með honum þessi ár, jafnt skrifstofu félagsins og þeim fjölmörgu lögmönnum sem hafa gefið tíma sinn til að taka þátt í starfi félagsins. Rafrænir fundir og greiðsla árgjalds Gerð var breyting á 3. mgr. 4. gr. samþykkta LMFÍ þannig að stjórn getur hér eftir ákveðið að félagsmenn geti tekið þátt í félagsfundum rafrænt, þ.m.t. greitt atkvæði án þess að vera á fundarstað. Þá var einnig gerð sú breyting á 4. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins, sem kvað á um að félagsmenn 70 ára og eldri þurftu ekki að greiða árgjald og nýir félagar greiddu ekki árgjald á því almanaksári sem þeir yrðu félagsmenn. Hér eftir fæst einungis undanþága á greiðslu árgjalds á grundvelli 2. mgr. 19. gr. laga um lögmenn nr. 77/1998 sem kveður á um að telji lögmaður sér ekki fært vegna aldurs eða heilsufars að hafa opna skrifstofu geti hann leitað undanþágu stjórnar LMFÍ. Ástæður breytinganna liggja einkum í þeirri staðreynd að Lögmannafélagið er skylduaðildarfélag og lögbundið eftirlitshlutverk þess gagnvart félagsmönnum og kostun úrskurðarnefndar lögmanna, sem félagsgjöldum er m.a. ætlað að standa undir, er óháð aldri þeirra. Með sama hætti fela umræddar breytingar í sér að framvegis verða nýjum félagsmönnum gert að greiða árgjald frá þeim tíma sem málflutningsréttindi þeirra verða virk, en áður voru nýir félagsmenn undanþegnir greiðslu árgjalds á því ári sem þeir gerðust félagsmenn. Rökin að baki þessu eru í grundvallaratriðum þau sömu og gagnvart þeim félagsmönnum sem orðnir eru 70 ára. Þá var samþykkt að hækka árgjaldið úr 83.000 krónum í 90.000 krónur. Er um að ræða 8,4% hækkun sem þó er töluvert undir þeim vísitöluhækkunum sem orðið hafa. Þrátt fyrir þetta má gera Um 30 manns sátu aðalfundinn sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica en svipaður fjöldi hlustaði í fjarfundi. Hjördís Halldórsdóttir lögmaður á LOGOS stjórnaði aðalfundinum.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.