Lögmannablaðið - 2024, Blaðsíða 9
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/24 9
ráð fyrir að rekstur félagsins verði í járnum á næsta ári, m.a.
vegna viðvarandi verðbólgu, samningsbundinna launahækkana
og fækkunar félagsmanna sem hefur fækkað umtalsvert á árinu,
á sama tíma og félagsmönnum hefur fjölgað sem ekki greiða
árgjald sökum aldurs eða veikinda.
Ráðstöfun bókasafns
Samþykkt var tillaga stjórnar LMFÍ um að bókasafn félagsins
verði lagt niður og ráðstafað með þeim fyrirvara að félagið
haldi eftir þeim bókum sem nýtast kunna félaginu. Samþykkt
var að hægt yrði að ráðstafa bókasafninu til háskólabókasafns
endurgjaldslaust, bjóða safnið út í heilu lagi eða bjóða
félagsmönnum að taka þær bækur sem þeir geti nýtt sér.
Ný stjórn
Stefán A. Svensson lögmaður hjá Juris var einn í kjöri til formanns
og það sama gildir um tvo meðstjórnendur til tveggja ára; þær
Hildi Ýr Viðarsdóttur lögmann hjá Landslögum og Sigrúnu
Helgu Jóhannsdóttur lögmann hjá VÍS. Í stjórn sitja áfram þau
Eva Halldórsdóttir lögmaður hjá LLG lögmönnum og Magnús
Hrafn Magnússon lögmann hjá Sigurjónsson & Thor.
Kosið var milli fjögurra lögmanna um sæti þriggja varamanna í
stjórn. Þetta er í fyrsta skipti sem kosið var rafrænt hjá félaginu
og tóku 225 félagsmenn þátt. Í varastjórn voru kosin Auður
Björg Jónsdóttir lögmaður hjá JA lögmönnum, Gísli Guðni
Hall lögmaður hjá Mörkinni og Guðmundur Ingvi Sigurðsson
lögmaður hjá LEX lögmannsstofu.
Í lokin
Að þessu sinni var félagsmönnum boðið upp á að sækja fundinn
í fjarfundi og þegar mest var hlustuðu um þrjátíu manns en í
salnum á Hilton Reykjavík Nordica var álíka stór hópur.
Eyrún Ingadóttir og Ingimar Ingason