Lögmannablaðið - 2024, Síða 12

Lögmannablaðið - 2024, Síða 12
12 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/24 innanhússlögmenn þar sem 39,9% kvenna undir 50 ára eru innanhússlögmenn samanborið við 23,8% karla. Munurinn er hins vegar minnstur þegar skoðað er hlutfall þessa aldurshóps sem starfar sem fulltrúar á lögmannsstofum, þar sem 20,3% karla fylla þann hóp samanborið við 31% kvenna. Munurinn milli kynja er hins vegar umtalsvert minni þegar horft er til starfsvettvangs lögmanna eldri en 50 ára. Þannig eru 69,3% karla í þessum hópi sjálfstætt starfandi og 63,9% kvenna. Hlutfall lögmanna í umræddum aldurhópi sem starfa sem fulltrúar sjálfstætt starfandi lögmanna er 2,8% hjá körlum en 1,7% hjá konum, en mesti munurinn kemur hins vegar fram hjá þeim sem starfa sem innanhússlögmenn, en nú starfa 16,6% karla eldri en 50 ára sem innanhússlögmenn samanborið við 30,3% kvenna. Ingimar Ingason Skipulagslög og lög um mannvirki – 24. sept. 2024 Farið yfir helstu reglur skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um mannvirki nr. 160/2010, málsmeðferð skipulagsáætlana, dóma og úrskurði. Kennari Ívar Pálsson lögmaður hjá Landslögum. Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, Reykjavík. Tími Alls 3 klst. Þriðjudagur 24. sept. 2024 kl. 9:00-12:00. Verð kr. 25.200,- fyrir félaga í félagsdeild LMFÍ, kr. 33.600,- fyrir félaga í LMFÍ og LÍ en kr. 42.000,- fyrir aðra. Aðgreining vægs heilaáverka, áfallastreitu og annars konar vanda í kjölfar slysa eða árása: Er þetta alltaf mögulegt? - 7. nóvember 2024 Erfitt getur verið að aðgreina einkenni vægs heilaáverka frá öðrum heilsufarsvanda. Taugasálfræðingar eru stundum fengnir til að aðstoða við slíkt mat ásamt öðrum. Á námskeiðinu verður fjallað um einkennaskörun vægs heilaáverka, krónískra verkja og áfallastreitu sem hafa lík einkenni sem oft er erfitt að sundurgreina. Mikilvægt er fyrir lögmenn að þekkja greiningarvandann sem getur komið upp þegar metnar eru afleiðingar slysa og árása. Kennari María K. Jónsdóttir Ph.D., prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í klínískri taugasálfræði (LSH - Landakot). María hefur ýmiskonar reynslu af heilaáverkum, bæði úr klínísku starfi, dóms-og matsmálum og rannsóknum. Staður Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Tími Alls 2 klst. Fimmtudagur 7. nóvember 2024, kl. 11.00-13.00. Verð kr. 18.000,- fyrir félaga í félagsdeild LMFÍ, kr. 24.000,- fyrir félaga í LMFÍ og LÍ en kr. 30.000,- fyrir aðra. Önnur námskeið á haustönn • Hagnýt fjármál fyrirtækja – fjarnámskeið 24. og 29. október 2024 • Samfélagsmiðlar og stafræn sönnunargögn - 5. nóvember 2024 • Skiptastjórn þrotabúa - 3. og 5. des. 2024 Öll námskeið LMFÍ eru einnig í boði í fjarfundi nema annað sé tekið fram. Nánari upplýsingar og skráning á www.lmfi.is

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.