Mímir - 01.05.1964, Blaðsíða 9

Mímir - 01.05.1964, Blaðsíða 9
4 Ef hann sleppur umtals frí, aðrir dæmið fanga, lögmáls reglan lætur því lýsing fyrir liann ganga. 5 Öðrum þókti’ í æsku knár, ellin loks hann temur, upp úr jörðu hann er hár hartnær álnum þremur. 6 Geiplar oft um grímu stund gamanyrðismálum, tvisvar áttatíu pund tekur á metaskálum. 7 Ivinnar, munn og kjálkabý klæðir skeggið blakka, jarpt á kolli stendur strý strokið yf’r á hnakka. 8 Ofarlega eyrun smá una hvirfilbjörgum, ennið bratt og brúnin há búið hrukkum mörgum. 9 Nauðar ei um nokkra þörf, nærsta ríklundaður, ásýndin og augun djörf, ærið tillitshraður. 10 Leggur flatt þá lítur við, líkt sem illa sæi, hnakkabein og heljarlið hefur í stærsta lagi. 11 Þegar Iians er sál ósjúk, svara þvkir greiður, nettvaxinn á niðurbúk, nokkuð herðabreiður. 71-2 ICinnar .../... blakka: Tíðum lifir örbirgð í/ aldinn geymir stakka B. 83 og brúnin há : (og brúnin há) B. 91 nokkra : neina B. 92 nærsta : nokkuð B. 12 Oft hans mæða hryðjur Iióst, hljóðs er þungur kliður, allt er loðið líf og brjóst og lengra máske niður. 13 Orð hans þykja óhagstæð, ef til þykkju leiðist, Iiöggorms rís á enni æð, einkum þá hann reiðist. 14 Er á meiði mistilteins mark, sem aldrei sleppir, fremsta köggul fingurs eins frá harndómi kreppir. 15 Þrumir oft með þunga brún, þjáður á samvizkunni, ýmsra tíða ritar rún, ræðir stef af munni. 16 Hatar slaður og húsgangs raus, hræsni í forsmán grefur, aldrei sést liann iðjulaus, oftar lítið sefur. 17 Astargætnum augum hann oft á stúlkur lítur, tóbak ærið tyggja kann og tryllist nær sem þrýtur. 18 Ef liann finnst í alda hring, upp er lýsing haldið, fjötra skal og færa’ á þing fyrir kennivahlið. 121 máske : máski B. 134 hann : hans [greinilega aðeins pennaglöp] B. 152 þjáður á samvizkunni : og þönkum beldur vönd- um B. 154 ræðir stef af munni : og rekur úr fornum bönd- um B. 16 ekki í B. 171 Ástargætnum : Ástargjörnum B. 173 ærið : mikið B. 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.