Mímir - 01.05.1964, Blaðsíða 13

Mímir - 01.05.1964, Blaðsíða 13
mynda hljóðar ein vísan í kvæði Jóns Þorláks- sonar svo: Einatt hýrum augum vann auðs á renna jarðir, ei til handa annað kann en að bregða gjarðir. I Hjálmars lýsingu samsvarar fyrri hluti þessarar vísu síðara hluta 6. vísu, þar sem Hjálmar kveður: . . . aldrei nærri meyjum má maðurinn þessi vera. Síðari lilutinn samsvarar í sama kvæði 10. vísu, sem hljóðar svo: Kannske ei trútt urn kauða þann, að kýrnar muni totta, til nýtra verka neitt ei kann, nema að skafa potta. Og í Lýsingu á strokumanni kemur hug- myndin úr fyrra hluta þessarar vísu enn fram í 17. vísu, þar sem Hjálmar kveður: Astargætnum augum hann oft á stúlkur lítur . . . Jafnvel er að sumu leyti engu líkara en Hjálmar fari ölhi nær kvæði Jóns í Lýsingu á strokumanni en Hjálinars lýsingu. Er í því sambandi fróðlegt að bera saman niðurlagser- indi þessara tveggja kvæða, þar sem sama hug- mynd er notuð í báðum. Sjálfslýsingu lýkur Jón Þorláksson svo: Stundum klúr í orðum er, augun hörð sem tinna. — Ef hann fyrir einlivern ber, eigi þeir sem finna. Lýsingu á strokumanni endar Hjálmar hins vegar þannig: Sú var miðlun gjörð í gær og grein til vægðar undin, ef liann finnur ógift mær, eiga má hún fundinn. Þessa hugmynd notar hann liins vegar ekki í niðurlagi Hjálmars lýsingar. Fleiri slík líkingaratriði mætti tína til, en þess gerist ekki þörf, þar sem tengslin milli þessara kvæða eru augljós hverjum, sem les þau. Ef tímasetning dr. Jóns Þorkelssonar, sem áður getur, er rétt, er það enn óskýrt, hvers vegna Hjálmar hafi ort tvö kvæði sama efnis og svo nauðalík, með aðeins tveggja ára milli- bili. Eins og þegar er getið, bendir varðveizla þessara kvæða heldur í þá átt, að lengra hafi liðið á milli þeirra en dr. Jón telur. Við lest- ur þeirra beggja styrkist sá grunur óneitan- lega. Einkum má benda á fyrra hluta fimmtu vísu í Lýsingu á strokumanni, þar sem Hjálm- ar segir: Öðrum þókti’ í æsku knár, ellin loks liann temur . . . Því er ekki að neita, að það virðist heldur ósennilegt, að rúmlega tvítugur maður taki svo til orða. Við samanburð þessara tveggja kvæða sést og, að Hjálmars lýsing er mun viðvaningslegra verk og sundurlausara en Lýs- ing á strokumanni, sem er tiltölulega fast mót- uð heild og greinilega beygð undir lögmál list- arinnar af mun styrkari höndurn en fyrra kvæðið. Ef til vill má orða það þannig, að Hjálmars lýsing sé ekki laus við að vera stráks- leg, þar sem Lýsing á strokumanni sé ort af miklu meiri vilja skáldsins til að taka sjálft sig alvarlega og kvæðinu ætlað að uppfylla strangari kröfur. Mér virðist því vafalaust, að fyrri tímasetning Lýsingar á strokumanni sé röng, og sé hún ort á síðari árum Hjálmars, jafnvel ekki ósennilega á seinasta hálfa ára- tugnum, sem hann lifði. Skýringin á því, að hann yrkir þarna tvö kvæði saina efnis, sé þá sú, að hann hafi ort Hjálmars lýsingu á yngri árum sínum í Evjafirði, en síðan jafnvel glat- að henni eða gleymt og ort liana upp að nýju á efri árum sínum og sé Lýsing á strokumanni þannig til orðin. Sjálfslýsing Jóns Þorlákssonar getur naum- 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.