Mímir - 01.03.1983, Qupperneq 6

Mímir - 01.03.1983, Qupperneq 6
ekki jafnað við hina afspyrnu góðu útgáfu hans. Hér eru settar á prent Skjöldungasaga, sem að vísu er ekki til í heilu lagi, Knýtlinga- saga og loks lítið ágrip, sem er aðeins til i aldargamalli útgáfu. Sögum þessum fylgja að sjálfsögðu skýringar og formáli, og verð ég manna fegnastur þegar þetta er frá. Mímir: Hvernig er með Islendingasögurn- ar, er búið að kafa til botns í þeim? Bjarni: Nei síður en svo. Þær hafa þau einkenni klassískra bókmennta að það má virða þær fyrir sét frá mörgum sjónarhorn- um, alltaf má fá annað skip og annað föru- neyti, eins og allar upprunaskýringar þeirra bera glöggt vitni. Nýjust af nálinni er sagn- festukenning með breyttu sniði, einhvers konar þjóðfræða og formúlukenning, og má kynnast henni nokkuð í riti Óskars Halldórs- sonar um Hrafnkelssögu, sem kom út fyrir ekki alllöngu í fræðiritum okkar. Að þess- um nýju viðhorfum er verulegur ávinning- ur, þótt skoðanir um þær séu auðvitað skipt- ar. Hin nýja kenning vekur spurningar og sýnir að ekki er ördeyða í fræðunum og lengi má leita sannleikans. Mímir: Hvenær byrjaðirðu á þessu verki, sem þú ert að ljúka núna? Bjarni: Þar drapstu á kýlinu. Ég hef verið að baxa við þetta alltaf öðru hvoru líklega frá því að þið komuð í þennan heim, en ekki af fullri alvöru fyrr en á síðustu árum. Þetta er tafsamt verk, enda gerðar miklar kröfur til vísindalegra vinnubragða, svo að rnenn eiga óhægt um vik með fullri kennslu, en henni fylgja ótrúleg umsvif og annir, og afmælisritin taka líka sinn tíma, því að menn hætta ekki að eiga afmæli, hvað sem á dyn- ur. Auk þess hef ég verið að vasast agnarögn í pólitík, og ekki hefur það bætt úr skák. En hugarbót er að því, að verkið hefur grætt á þessum töfum, ég þykist sjá ýmislegt bet- ur en ég gerði fvrir svona fimm árum. Mímir: En hvað finnst þér um þessa rann- sóknarskyldu og æviráðningu manna hér? Bjarni: Ekki þarf að taka fram, að höfuð- skylda hvers háskólakennara er að fást við rannsóknir, enda verða menn skjótt lélegir kennarar, ef þeir leggja sig ekki fram við rannsóknir af einhverju tagi. Hitt er svo annað mál, að launakjör við þennan Háskóla eru ekki boðleg, svo að menn eru knúnir til að leita sér aukatekna með ýmsu móti, með kennslu eða öðrum störfum. Og það kemur harkalega niður á rannsóknarstarfseminni. Auðvitað kæmi það mjög til greina, að menn flyttust milli starfa eftir langan starfstíma við Háskólann, en þá þurfa menn helst að geta horfið að einhverju öðru. Einhvers staðar verða vondir að vera. Hins vegar er á það að líta, að háskólakennarar, sem hafa eftir langt nám og langan starfstíma öðlast mikla reynslu og þekkingu á sínu fræðisviði, ættu að vera líklegri til afreka að öðru jöfnu í sinni grein en aðrir. Mímir: Nú hafa orðið miklar breytigar á kennslu frá því að þú byrjaðir hér. Hvernig finnst þér hafa tekist til? Bjarni: Tvímælalaust vel. Nú stunda miklu fleiri stúdentar nám í íslensku en þegar ég var í Háskólanum, og mannvalið er því meira. Ég er sannfærður um, að nú útskrif- ast margir úrvalsnemendur í íslenskum bók- menntum. Nám og námstilhögun hefur að sjálfsögðu breyst á undanförnum áratugum og í heild til hins betra. Nefna má, að aldrei var vikið sérstaklega að aðferðafræði eða grundvallarhugtökum bókmenntafræði, við- horfin þrengri, minna skyggnst til útlanda og heilar bókmenntagreinar voru hornreka, svo sem heilagra manna sögur. Og vissulega má það enn bæta. En þá er skylt að hafa í huga, að kennarar í íslenskum fræðum voru ágæt- ir og miklir andans jöfrar, en þeir voru fáir, og viðbúið að einn kennari legði hald á heila 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.