Mímir - 01.03.1983, Page 10

Mímir - 01.03.1983, Page 10
EIRÍKUR RÖGNVALDSSON: „TILV(SUNARTENGINGIN“ OG í BÖKUM HALLDÖRS LAXNESS 1. INNGANGUR Fáir munu treysta sér til að svara því hvað geri stíl Halldórs Laxness frábrugðinn stíl annarra manna. Þótt bækur hans séu hver annarri ólíkar, og stíll þeirra eftir því mis- munandi, þykjast margir alltaf geta séð Lax- ness skína í gegn, því að ýmis einkenni stílsins séu alltaf fyrir hendi og leyni sér ekki. En hver eru þau þá? Hér verður ekki reynt að svara þeirri spurn- ingu, heldur tekið til athugunar eitt þeirra fáu sem liggja í augum uppi. Það er notk- un Laxness á aðaltengingunni og þar sem flestir rnyndu hafa tilvísunartengingu, 1 sem eða er:o (1) ... þetta mjólkurkaffi var aldrei gert sætt, heldur át maður með því rauðan kandíssykur og er í rauninni það eina sælgæti sem ég hef metið sem vert er um dagana . . . (Ungur eg var, 55) (2) Nú stóð mér reyndar opin leið í lær- dómsdeild Mentaskólans og heyrði undir venjulega námsbraut embættis- manna . . . (Sjömeistarasagan, 9) Hér verður fyrst, í 2. kafla, athuguð notk- un Laxness á tilvísunartengingum í ýmsum bókum sínum, og sýnt hvernig dæmum um þessa notkun og fer mjög fjölgandi í síðustu bókum skáldsins. Síðan er í 3. kafla fjallað um hvernig greina beri og í slíkum setningum, og hvaða takmarkanir séu á notkun þess sem tilvísunartengingar að fornu og nýju. Niður- stöður eru svo dregnar saman í 4. kafla. 2. TALNING TILVÍSUNARTENGINGA 2.1 Aðferðir Til að athuga notkun Laxness á tilvísun- artengingum voru skoðaðar allar skáldsögur hans sem í frumútgáfu báru sérstakt heiti, svo og endurminningabækurnar fjórar frá síð- asta áratug, ,,essay-rómanarnir“ svonefndu; alls 25 bækur. Aðferðin var sú, að taldar voru 100 fyrstu tilvísunartengingarnar í hverri bók, og niðurstaðan sett í töflu. Nú er slík talning ekki alltaf einföld handa- vinna. Mörkin milli tilvísunarsetninga annars vegar og samanburðarsetninga, tíðarsetninga, skýringarsetninga og liðfelldra aðalsetninga hins vegar eru oft óljós. Ég fór þá leið að hafa tilvísunarsetningar sem fæstar; þ.e. taldi það eitt tilvísunarsetningar sem máltilfinn- ingin sagði mér að útilokað væri að greina á annan veg. Ef farin hefði verið hin leiðin, að telja allt tilvísunarsetningar sem mögulegt var, hefði hlutfall og sem tilvísunartengingar hækkað talsvert, því að mikið er af setning- um á við þessar: (3) Karlinn var trékarl með plukkur í augnastað og hét Palli í Nesi (Heim- an ég fór, 12) (4) Oft var í félagsskap hans glaðvært fólk, en sjaldan hávært, og hafði lángar set- ur í tjaldinu (Grikklandsárið, 47) 8

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.