Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 17

Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 17
frú Valgerði á Mosfelli (Grikklands- árið, 25) Stundum hefur verið gert ráð fyrir því að slíkir forsetningarliðir, einkunnir og viður- lög væru allt saman styttar tilvísunarsetning- ar (sjá t.d. Jón Gunnarsson 1973:95—6; sjá einnig um líkindi einkunna og viðurlaga við tilvísunarsetningar hjá Kristjáni Árnasyni 1980:85—7). Björn Guðfinnsson bendir líka á „til frekari leiðbeiningar við ákvörðun viðurlags, að það — ásamt ákvæðisorðum þess — jafngildir yfirleitt tilvísunarsetningu eða tíðarsetningu“ (1943:24—5). Við getum því hugsað okkur að í djúpgerð hverrar af setningunum (32)—(37) séu tvær hliðskip- aðar tilvísunarsetningar, tengdar saman með aðaltengingunni og. Þá er tilvísunarorðinu vfirleitt sleppt í seinni setningunni, ,,og ber að varast að endurtaka það á eftir tengingun- um (og, en, eða)“ segir Jakob Jóh. Smári (1920:203). Þannig væri t.d. (34) leidd af setningu á við: (38) Ekkert man ég þegar við fluttum úr steinbænum við götuna og í nýja timburhúsið sem var uppi í lóðinni, og (sem) enn stendur T þessari setningu, sem og hinum fimm, er því hæst að gera ráð fyrir að evtt sé sem var úr fvrri tilvísunarsetningunni, En um leið og umsögninni er evtt hættir bað sem eft'r er (upfii ílóðinni) að vera sjálfstæð setning, og verður að forsetningarlið í aðalsetningunni, eins og í (34). I stað þess að tengia saman tvær tilvísunarsetningar, eins og í (38), teng- ir or nú í yfirborðsgerð saman aðalsetningu og tilvísunarsetningu í (34); þ.e. hefur í yfir- borðsgerð stöðu tilvísunartengingar. 3.6 Evðingar og hömlur á þeim Sjálfsagt verða ýmsir tortryggnir á slíkar eyðinsar orða og setningarliða, og spyria sem svo: Hvernig getum við leyft okkur að tala um einhverja ,,eyðingu“ í setningum á við (32)—(37); er ekki eðlilegast að gera ráð fyrir að djúpgerðin sé eins og yfirborðsgerð- in? Ef við gerum ráð fyrir einhverjum slílc- um ,,eyðingum“, erum við þá ekki komin út á hættulega braut og farin að fjarlægjast raunveruleikann ískyggilega? Er þá hægt að gera ráð fyrir alls konar setningarliðum í djúpgerð og eyða þeim síðan eftir þörfum með ummyndunum, þannig að þeir komi hvergi upp á yfirborðið? Rökin fyrir því að gera ráð fyrir eyðingu í umræddum setningum eru raunar að nokkru leyti komin fram; með eyðingunni getum við skýrt hina afbrigðilegu notkun og hjá Lax- ness, og sagt fyrir um hvenær hægt sé að nota og sem tilvísunartengingu. En fleira hangir á spýtunni; við getum nefnilega líka sagt fyrir um hvenær ekki sé hægt að nota og í þessu hlutverki. Það er sem sé þegar við erum með setningar sem ekki er hægt að hugsa sér að séu leiddar af djúpgerð þar sem og er aðaltenging. Ef við lítum á setninga- gerðirnar sem taldar eru upp í (9), þar sem og kemur aldrei fyrir í tilvísunarmerkingu, sjá- um við að þetta er einmitt sameiginlegt ein- kenni þeirra. Sé eyðingartilgátunni hafnað, er engin sérstök skýring sjáanleg á því að og skuli aldrei notað í tilvísunarmerkingu í þess- um setningum. Um eyðinguna er það að segja að auðvitað væri hægt að hugsa sér eyðingu heilla liða eða setninga; en slík eyðing er vanalega tal- in óleyfileg af því að hún er óafturkræf (non- recoverable deletion, sjá t.d. Höskuldur Þrá- insson 1979:310); þ.e., það er ekki hægt að vita hvort eða hverju hefur verið eytt. Þannig er óleyfilegt að segja að eyðingarummyndun geti verkað á setningu eins og Hann kom i gær, evtt atviksliðnum og gefið Hann kom. Aftur á móti má evða t.d. frumlagi seinni setningarinnar í tveim hliðskipuðum ef bað hefur sömu tilvísun: Jón kom og ]ón drakk kaffi; og fá út Jón kom og drakk kaffi (sbr. Höskuldur Þráinsson 1980:88), af því að hér 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.