Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 18

Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 18
er eyðingin afturkræf; ljóst er hverju hefur verið eytt. Um nauðsyn þess að gera ráð fyrir eyðingu í slíkum hliðskipuðum setning- um má lesa hjá Eiríki Rögnvaldssyni (1982); um ýmsar aðrar eyðingar í íslensku hjá Höskuldi Práinssyni (1979; einlcum 5. kafli). Ekki er annað að sjá en bæði fornafnseyð- ing og eyðing sem erlvar séu afturkræfar. Að vísu getur stundum verið vafi um hvorri réttara sé að gera ráð fyrir í einstökum setn- ingum, og kann það að virðast mótbára gegn eyðingartilgátunni. Eg held þó að svo þurfi ekki að vera, því að merkingarlega skiptir ekki máli um hvora eyðinguna er að ræða; og það eru einmitt einkum merkingarleg rök sem beitt hefur verið gegn óafturkræfri eyð- ingu (sjá Höskuldur Þráinsson 1979:310). 3.7 Fastar og lausar tilvísunarsetningar Að lokum er rétt að líta nánar á hvað einkenni títtnefndar tilvísunarsetningar tengdar með og merkingarlega; í hvers konar merkingartengslum við aðalsetninguna þær séu. Stundum er gerður munur á föstum (rest- rictive) og ^ausum (non-restrictive) tilvísunar- setningum (og revndar fleiri gerðum auka- setninga, sjá Haraldur Bessason 1975). Kristján Árnason (1980:86) tekur sem dæmi tvíræðni setningarinnar Eskimóar sem búa í snióhúsum eru góðir veiðimenn. Hlutverk tilvísunarsetningarinnar getur hér verið tvenns konar: Annars vegar að afmarka á- kveðinn hóp eskimóa, þ.e. þeir eskimóar sem búa í snjóhúsum eru góðir veiðimenn, og er bá gefið í skyn að til séu eskimóar sem ekki búi í snjóhúsum. Slíkar merkingarþrengjandi tilvísunarsetningar eru kallaðar fastar. Á h.inn bóginn gæti setningin verið fróðleiks- moli sem ætti við um alla eskimóa og mætti umorða sem svo: Eskimóar búa í snjóhús- um, og þeir eru góðir veiðimenn. Þá væri um að ræða lausa tilvísunarsetningu. Allar setningar sem ég hef fundið þar sem Laxness notar og sem tilvísunartengingu eru 16 af síðari gerðinni, þ.e. svipar til lausra til- vísunarsetninga. Við sjáum líka ef við athug- um upptalninguna í (9), að þar er alls staðar um að ræða setningar þar sem tilvísunar- setningin blýtur eðli málsins samkvæmt að vera föst. En er þetta tilviljun; er hugsanlegt að fast- ar tilvísunarsetningar séu tengdar með og, þótt ég hafi ekki fundið þess dæmi? Við fyrstu umhugsun gæti manni dottið í hug að svo væri, með hliðsjón af setningum eins og (39): (39) Ég hlustaði á kvæðin sem voru góð og skemmtileg og allir lofuðu Tilvísunarsetningarnar geta hér bæði verið fastar og lausar; merkt annaðhvort að ég hafi bara hlustað á þau kvæði sem voru góð og skemmtileg og allir lofuðu, en ekki hin; eða verið nánari umsögn um kvæðin, en hafi ekki þrengjandi merkingu. Við gætum því í fljótu bragði búist við að með því að fella niður sem voru fengjum við tilvísunarsetningu tengda með og sem bæði mætti túlka sem fasta og lausa: (40) Ég hlustaði á kvæðin, góð og skemmti- leg, og allir lofuððu En svo er ekki; því að um leið og fyrri tih vísunarsetningin er orðin að viðurlagi í aðal- setningunni er hún aðeins til frekari fróð- leiks en getur ekki þrengt merkinguna (sbr. Kristján Árnason 1980:85—7). Ekki nóg með það; þá er ekki beldur hægt að túlka seinni tilvísunarsetninguna, og allir lofuðu, sem fasta (merkingarþrengjandi) lengur, að ég tel. Ef seinni tilvísunarsetningin væri aftur á móti tengd með sem, finnst mér gegna öðru máli: (41) Ég hlustaði á kvæðin, góð og skemmti- leg, sem allir lofuðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.