Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 25

Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 25
voru engar andstæður heldur einungis tvö stig eilífðarinnar. En þetta er vissulega ekki skoðun Steingríms. Hjá honum virðist bernskan vera hinn glataði veruleiki, sá tími þegar heimurinn var heill og einstaklingurinn lifði í sátt við tilveruna og í beinum tengsl- um við guð. Bernskan er tími hins fagra og óspillta, áður en sorg og syndir heimsins komu til sögunnar, sá tími þegar hugarburðir andans fengu að skína óáreittir. Þessi þrá eftir bernskunni kemur víða fyr- ir í ljóðum Steingríms t.d. í Svanir eða Há- fjöllin. I kvæðinu Skógarsjónin birtist þessi söknuður sem nokkurs konar narkissismi. Það sem mælandi kvæðisins þráir er hann sjálfur áður en syndafallið skall á og hinn mannlegi heimur gerði inrás í veröld hans. Skógarsjón- in, unga stúlkan sem birtist skáldinu svo ó- vænt er í raun og veru mvnd af honum sjálf- urn. Ur hennar bjarta svip mér sýndist skína Það sálarlíf, sem fyllti mína þrá, Sem systurlega drevmdi drauma mína Og djörfum huga lyfti jörðu frá. (41) En eins og Narkissus náði engu sambandi við spegilmynd sína, eins missir Steingrímur skógarsjónarinnar þegar heimurinn rumskar við henni. Hin óbreytanlega æskufegurð er enda ekki til nema í dauðanum. Fegurðin og lífið verða eki sameinuð vegna þess að lífið er stöðug framþróun. Og hugarburðir bernsk- unnar leysast upp og hverfa út í buskann. Eg eldri varð og hratt þeir sjónum hurfu, Tá, hurfu til að birtast aldrei meir, Oa fyrr en varði sorgir að mér surfu, Jafn sárar þær sem fagrir voru þeir. (Hugarburðir, 290) Einungis minningin um fegurðina lifir eft- ir, í senn töfrandi og særandi. Töfrandi vegna þess yndis sem hún veitti skáldinu, en særandi vegna þess að hann hefur enga von um að endurheimta hina glötuðu para- dís. Hugarburðirnir virðast endanlega tapað- ir; og skáldið hefur enga tryggingu fyrir heimkomu eftir dauðann, allt útlit er fyrir að maðurinn sé moldarvera sem eigi ekki sam- leið með hinni lifandi náttúru. í bók sinni um Steingrím birtir Hannes Pétursson drög að nokkrum ljóðum hans, n.k. prósaljóð sem eru ort í síðasta lagi 1860— 1861. Þar kom hvað gleggst fram í verkum Steingríms skilin milli mannlífsins og náttúr- unnar; hugsjón skáldsins og veruleikinn ná ekki að samþýðast, e.t.v. vegna þess að hann getur gefið sig hvorugu fullkomlega á vald, hann sættir sig ekki við veruleikann, en veit að hugsjónin er að miklu leyti blekking. I einu þessara ,,prósaljóða“, drögum að kvæð- inu Nótt, ávarpar skáldið sólina, táknmynd hugsjónarinnar, guðs sem er í senn fegurðin og sannleikurinn. Fagurt skín þú á hin fjarlægu fjöll, það er sem ég sæi út úr veröldinni, út um glugga fangelsis míns, inn_í Jieim. fegurðarinnar. En þú ert villuljós, þú skín á himninum til að spotta eymd vora, þú devr til að rísa upp í dýrð, og vér lifum til að rotna. I... I Hverf þú og láttu nóttina, systur dauðans, breiða vængi sína yfir það, sem er hennar, dagurinn villir, geislaglit hans er tál, nóttin er dagur hins innra manna.' Með því að skoða náttúruna sér skáldið hve mannlífið er í raun og veru aumlegt; allt deyr til að lifna á ný nema maðurinn, hann lifir til að deyja og rotna. Sólin, tákn fegurðarinnar er villuljós og dagurinn er ein- ungis vitnisburður um takmörk og ófullkom leika mannsins. Því er hann bölvaður. Nótt- in og draumarnir eru eina hæli skáldsins. Hugsjónin og raunveruleikinn verða ekki sætt, það finnst engin málamiðlun þar á milli. Jarðlífsfanginn eygir enga leið til að opna þær dyr sem liggja milli veraldarinnar og heims fegurðarinnar. Og dauðinn er engin frelsun. 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.