Mímir - 01.03.1983, Page 42

Mímir - 01.03.1983, Page 42
sig sjálft, eins og þeir orða það, — láti heím- ildirnar tala. Ritið sé þess vegna eins konar ,,undirbúningsvinna“. Pað er nokkuð til í þessu, en það er hins vegar ranglega álykt- að hjá þeim að fyrir þetta sé ritið „hálfklár- að verk“. Bókin geymir ýmsar frumathugan- ir á ákveðnu skeiði íslenskrar ljóðagerðar. Fyrir mér vakti að kanna ákveðin atriði mód- ernismans, reyna að kortleggja hann á ís- lensku sviði, ef svo mætti segja. Ollum má vera ljóst að þegar ég hóf þetta verk var svo að segja allt óunnið á þessum vettvangi og heimildir dreifðar og ókannaðar. Eg geri mér vonir um að þetta rit mitt geti verið upphafið að nákvæmari rannsóknum í einstökum atrið- um á afmarkaðri sviðum. Það er vel ef ritið getur vakið málefnalega umræðu og umhugs- un um atómskáldatímabilið og aðdraganda þess eins og það hefur þegar gert á fundi ís- lenskunema í Háskóla Islands. Starf mitt og aðferð voru að verulegu leyti fólgin í því að draga saman heimildir, vísa á þær, vinna úr þeim, sýna þær í samhengi og í samprófun. Það er ásetningur minn að leyfa heimildunum að tala sem mest þó að ég að sjálfsögðu dragi mínar ályktanir og setji fram niðurstöður. Mér er ljóst að menn verða seint sammála um íslensku ljóðbreytinguna. Hún hefur löngum valdið deilum og kallað fram furðulega vanstilltar álitsgerðir. Enn virðast sumir þættir málsins viðkvæmir, en mikilvægt er að geta rætt það fordómalaust og án þess að telja sig hafa fundið stórasann- leik í málinu eða heimta hann af öðrum. Bók mín um atómskáldin er framlag til rannsókna á íslenskri nútímaljóðlist, en henni var aldrei ætlað að flytja lausnarorðið um hana. Ég vona hins vegar að hún geti vísað mönnum til átta á leiðinni sem aldrei tekur enda, nefni- lega vegi bókmenntakönnunar, og ég hef reyndar íengið marga vitnisburði um að hún hefur gert það. 40

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.