Mímir - 01.03.1983, Side 46

Mímir - 01.03.1983, Side 46
hvíldarlaus en fær hvíld og ró þegar hann iðrast: XVII,12. hjálparlaus sál má heita, hvíldar ei kann sér leita. XVII,17. sálin hryggðarlaust hvílir. Henni guðs miskunn skýlir. Pessi sálmur er einnig ríkur af myndhverf- ingum, blóðdropar Jesú eru lausnargjald (t.d. 7. og 6. er.) og Miskunnin er akurinn (t.d. 6. er.). Sálmurinn í heild er í raun ein mynd eða myndhverfing þar sem öll hugsun er sögð í myndum sóttum úr raunveruleikanum og auðskildum. Andstæður Það má segja að eitt megineinkenni að- ferðar Hallgríms sé að draga fram andstæður. Oft er um hliðstæður að ræða, eins og Jesús- höfuðprestarnir sem fela þó í sér gundvall- arandstæður, en stundum koma þessar and- stæður fram innan sama erindis og skapa þannig togstreitu og spennu: XVII,14. f.hl. : Faðirinn falt það lét, s.hl. : ef sonurinn gjald það greiddi, XVII,16. f.hl. : dýrasta gjald það var, s.hl. : keyptan akur því eigum, Þessi tvískipting sama erindis er mjög ein- kennandi fyrir Hallgrím og skapar hún mikil átök í sálminum. Eins og fvrr segir skapast líka andstæður í efnismeðferð ogunpsetningu. Fvrst eru dregn- ar uop mjög neikvæðar myndir í mörgum erindum (8. - 12. er.), bersyndug sál í út- legð, síðan greiðir Jesús gjald sitt (13. - 16. er.) os? þá tekur myndin stakkaskiptum og sálin fær hvíld (17. - 20. er.). Einnig felst ákveðin togstreita í þeirri aðferð Hallgríms að kynna í byrjun ákveðnar aðstæður sem eru í píslarsögunni og leggja síðan frjálslega út frá þeim en vera um leið mjög trúr sög- unni. Endurtekningar Endurtekningar geta verið með ýmsu móti, bæði endurtekning á hugsun eða einstökum orðum og orðasamböndum. Endurtekningar á sömu hugsun eru mjög algengar í þessum sálmi og með þeim leggur Hallgrímur áhersl- ur. Til þess að gera frelsun mannanna enn mikilfenglegri og nauðsynlegri fyrir andlega heilsu manna lclifar skáldið í þremur erind- um í röð, 10. - 12. erindi, á eymd mannanna bæði þessa heims og annars. Þannig verður fórn Jesú miklu áhrifaríkari þegar hún kem- ur strax á eftir. Endurtekningar á sömu orðum ganga í gegnum allan sálminn og tengjast líka meg- instefi hans, akur — gjald. Með þessum end- urtekningum fær sálmurinn á sig sterkan heildarblæ. Breyttar endurtekningar á orða- lagi koma líka fyrir í sálminum, t.d.: XVII,15. húðstrýktur, kvalinn, krýndur, á krossi til dauða píndur. Formleg atriði Hallgrímur fer mjög reglulega með bragar- háttinn sem er stafrímaður háttur með þrem- ur risum, með karlrími í fyrri hluta en kven- rími í seinni hluta hverrar vísu. Skáldið getur lagt ákveðna merkingu í rím- orð og stuðla og sett veigamikil orð á áherslu- staði í hverju erindi. í fljótu bragði er ekki hægt að merkja slíkar tilhneigingar í sálmin- um enda er bragarhátturinn mjög einfaldur og býður ekki upp á mikil tilþrif með formið. Hér er ein undantekning, sem er að í bæna- versunum sjö í síðari hluta sálmsins er rímið miklu persónulegra en í sálminum annars. I níu af fjórtán rímpörum í seinustu sjö erind unum eru 1. og 2. persónu- eða eignarfornöfn rímorðin, en til samanburðar er aðeins eitt 44

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.