Mímir - 01.03.1983, Síða 48
blóð Jesú og aðeins með því að þvo sér ur
þeirri laug hreinsast hjartað. Hér teflir hann
fram andstæðum sem eru samstæður í senn:
V eraldlegt
Pílatus
vatn
hræsnisþvottur
Andlegt
Maðurinn
iðrunartár/blóð Jesú
hjartaþvottur
í þriðja hluta útleggingarinnar kemur hann
að múgæsingunni og illa grunduðum slagorð-
um sem mælt eru í reiði og hugsunarleysi.
Fyrri hluti 9. erindis er þverstæða, lvðurinn
bað um blóðhefnd, um það blóð sem eitt gat
þvegið manninn af synd heimsins. Síðari
hlutinn er síðan heilræði þar sem hann setur
þetta fram á hnitmiðaðan hátt.
Meginstefin í þessum sálmi skiptast í
þrennt í útleggingunni:
1) Dómur Pílatusar — Ótti/Mútur
(1. og 3. - 6. erindi)
2) Handaþvotturinn — Hræsnin
(2. og 7. - 8. erindi)
3) Hróp almúgans — Hugsunarleysi
(2. og 9. erindi)
Bænagjörðin í síðasta erindinu sameinar síðan
þessa þrjá hluta og snýr þeim upp í lofgjörð
til drottins. Jesús var dæmdur en hann verð-
ur sjálfur dómari okkar mannanna og biður
Hallgrímur hann um að snúa dómsmönnum
þessa heims frá villu síns vegar. Síðustu tvær
Ijóðlínur erindisins sem eru nánast endurtekn-
ing á síðustu vísuorðum 2. vers, orðunum
sem lýðurinn æpti í reiði sinni, fá allt aðra
merkingu í því samhengi sem þær eru nú í:
XXVIII,10.
Dottinn Jesú, sem dæmdur vart,
dómari kemur þú aftur snart.
Dómsmenn láttu til dýrðar þér
dómana vanda rétt, sem ber.
Þvo þú hendur og hjörtu með.
Hrein trú varðveiti rósamt geð.
Þitt blóð flekklaust, sem flóði á kross,
frelsi það börnin vor og oss.
Myndmáí
Það efni sem Hallgrímur yrkir um í þess-
um sálmi er miklu áþreifanlegra en efni 17.
sálms. Hann þarf því ekki að grípa til mynda,
í eins ríkum mæli og þar, því að atvikin skýra
sig sjálf. Til þess að skýra út von'skuverk Píla-
tusar tekur hann dæmi úr sinni eigin samtíð
sem viðmiðun. Það er einungis þegar hann
talar um handaþvott Pílatusar sem ástæða er
til að grípa til myndmáls. Hjartaþvotturinn er
andstæða hans og skýrist í samhengi við hann,
hann er hreinn og tær.
Andstæður
í þessum sálmi notar Hallgrímur hliðstæð-
ur úr sinni eigin samtíð til frekari skýringar:
Pílatus — Dómarar 17. aldar
hræsni — hræsni (t.d. í trúmálum)
hræðsla — ótti við yfirboðara
mútur — mútur
Þó að 1700 ár skilji á milli þá viðgengst
sama athæfið og svikin. I 10. versi teflir
hann fram andstæðu gegn þessum mönnum,
Jesú sjálfum sem verður dómari okkar allra.
Andstæður koma líka fram í handaþvottin-
um sem spratt af hræsni en hjartaþvotturinn
er því aðeins mögulegur að maður iðrist í
hjarta sínu. Flandaþvotturinn er áþreifanlegur
en hjartaþvotturinn er huglægur og þarf því
hlutlæga samsvörun.
Þessi sálmur er skýrari og opnari en 17.
sálmur og auðskildari. Hallgrímur notar
hvorki myndmál né andstæður í eins ríkum
mæli og þar.
Endurtekningar
Endurtekning á hugsun fer eftir kafla-
skiptingunni sem er í útleggingunni. í 7. og
8. versi klifar hann t.d. mjög á orðunum þvo
-— vatn/blóð. En slíkar endurtekningar fara
eftir efniriu hverju sinni.
Formleg atriði
Þessi sálmur er undir sálmahætti og er
rímið alltaf karlrím, aabbccdd.
46