Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 57

Mímir - 01.03.1983, Blaðsíða 57
úr grænu birki um flugheiðan himin sólþýður vindur strýkur boga sínum um brúna mold Þetta litla ljóð samanstendur af aðeins 7 ljóðlínum, þar af mynda 4 fyrra erindið en 3 hið síðara. Það er með þetta ljóð eins og mörg önnur að nafn þess er að nokkru leyti lykill að túlkuninni. Ytri bygging ljóðsins virðist í fyrstu fremur þýðingarlítil fyrir heildarmyndina, en þegar nánar er að gætt kemur annað í Ijós. Erindaskiptingin er grundvölluð á framrás atburða. I hinu síð- ara er orsökin en afleiðingin í hinu fyrra. Með því að setja þetta fram sem tvær sjálf- stæðar myndir nær skáldið meiri áhrifum en ella, og einnig hefur sú uppröðun sem hann velur, þ.e. orsök atburðar á eftir, þau áhrif að undirstrika og fullkomna myndina og skýra fyrra erindið nánar. Hrynjandin er jöfn og reglubundin, því hver ljóðlína hefur tvö áhersluatkvæði Hún styður því þá kyrr- látu stemningu sem ríkir í ljóðinu. Einnig má minnast á það að síðara erindið er ein- stuðlað. Hægt er að nálgast efni og efnistök ljóðs- ins í gegnum rnyndmálið, sem um leið er athyglisverðasti þáttur þess. Það sem skilur fyrsta erindið frá hinu síðara er að ein ákveð- in ,,persónugerving“ gengur í gegn um allt erindið þ.e. sú hnitmiðaða líking að gefa tónunum líf fuglsins. Þessa gervingu byggir skáldið á orðunum: vængjaður þróttur, stíga, og flugheiðan himin. Þau bera uppi þá mynd sem erindið sýnir. ,,Tónar“ stíga upp af! grænu birki trjánna eins og fuglar sem lyfta sér til flugs! Og skýring þessara tóna kemur svo í síðara erindinu. Þeim veldur vindur- inn með blæstri sínum. Þá liggur fyrir upp- runalega vrkisefnið: gnauð vindsins í laufum trjánna! Þessi hversdagslegi samleikur í nátt- úrunni fær skáldlega meðferð á þann hátt að vindurinn er persónugerður, látinn strjúka boga sínum um brúna mold, jörðina. Þar með höfum við náð fram grundvallarafstæðum vindur *---------♦ jörð. Samspili þess- ara frumefna líkir skáldið við fiðluleik, þar sem vindurinn er fiðluleikarinn en jörðin með sínu græna birki, er hljóðfærið. Það sést líka með tilvísun til nafns ljóðsins, fiðla og skógur, sem eru heiti beggja liða líkingar- innar, skógurinn verður fiðla. Það er einnig athyglisvert að skoða þann þverskurð sem skáldið nær af veruleikanum, þ.e. hinum skynjanlegu ,,elementum“ alheimsins! ------ mold------birki-------VINDUR----------him- inn------sól----- Þessi þverskurður gefur ljóðinu auðvitað meiri vídd. ,,Hljóðfæraleikarinn“ er innan ramma því hann er þungamiðja og drifkraft- ur Ijóðsins og hefur nokkra sérstöðu í þess- um hóp. Þetta yrkisefni og efnistök þau sem skáld- ið viðhefur leiða hugann að stíl hans. Ein- kenni stílsins virðast vera, ef dæma á af þessu ljóði, hnitmiðað orðfæri og smekklegt lík- ingaval, sem nýtt er til fullnustu sbr. þegar fuglinn hefur verið valinn sem boðberi tón- anna, þá er hvert orð valið í samræmi við það eins og komið hefur fram hér að fram- an. Kyrrð og rósemi, mér liggur við að segja rómantík Ijóðsins, er einnig náð með hárfínu orðavali. Orð eins og: sólþýður og strýkur eru sem dæmi um það. Þá verður það að teljast býsna nærtækt og jafnframt áhrifaríkt að tákna hljóð með tónum. Brúna mold, höfðar til litaskynjunar lesanda og styrkir þar með heildarmyndina. Umgjörð ljóðsins er skógarkyrrðin sem fyrir utan að vera efni þess, umlykur ljóðið á all sérstakan hátt. Það má því segja að hér hafi tekist að færa ofur hversdagslegt atvik í listrænan búning. Með því er átt við að örsmátt atvik úr heimi náttúrunnar fær skyndilega listrænt gildi, er klætt í búning tónlistar. Sjálft heldur skáldið sig fyrir utan myndirnar og lætur lesandanum það eftir að njóta þeirra og túlka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.