Mímir - 01.03.1983, Page 61

Mímir - 01.03.1983, Page 61
fyrir dúnalogn úti, skrjáfi á einhvern dular- fullan hátt í laufum trjánna. Munur ljóðanna er því fólginn í því að í stað ,,rómantíkur“ kemur „mystík“, í stað einfaldleika dulræðni. Þetta ljóð er innhverfara og stíllinn torræð- ari. Orðavalið er líka til þess að undirstrika mystíkina: tæplega, nærri, einhverjar og ein- asta. Þau eru öll lituð af einhverri undarlegri hógværð, ekki öll sagan sögð og eykur það á dulmögnun ljóðsins. Eins og áður sagði er miðpunktur ljóðsins, grátandi berdreymin kona. Þetta er undarleg mynd og komin í þetta umhvefi verður hún eilítið óhugnanleg. .Þar veldur eiginleikinn, berdreymin, mestu um. Hann er eitt af því sem vísindin eiga enga skýringu við og þegar bætt hefur verið við gráti og konu er mystík- in fullkomin. Eftirfarandi mynd er tilraun til túlkunar: Konan *------------♦ styttan ■A- -ífr- -tgV ".....* Ijós ----------♦ Venus Með því að tefla saman sem andstæðum, styttu og konu, sem greinilega hefur miklar tilfinningar andstætt styttunni, er ætlunin að skerpa þær andstæður sem eru á milli Venus- ar og ljóss sem kveikt er af mönnum, t.d. tindrandi kertaljós eða ljósker. Þeim mögu- leika er einnig haldið opnum að skáldið sé að reyna að tengja þessa dularfullu konumynd hinu merkilega himnadjásni sem ljóðið er ort til. Venusi hæfir ekki annar búningur. Þá má vekja athygli á því að flest ljóð þessa flokks bera dulrænan búning líkan þessum. Höfundur beitir hér eins og áður stílbragð- inu, endurtekning og er það hér heil setning sem látin er enda ljóðið og hefur hún sitt að segja í sköpun kyrrðarinnar, tímaleysisins. Þá má benda á litina, blátt og gult, sem báðir gefa okkur mikilvægar upplýsingar. Þrátt fyrir að yrkisefnið sé algengt, menn hafa um ómunatíð ort um og fyrir stjörnur, verður þessi meðferð efnisins að teljast frum- leg og mega Venus og Bach una vel við slíka gjöf. Fyrir og gegn Skref fyrir skref Vongóða vonlausa Barátta gegn dauða Orð fyrir orð Sigurvíma ósigurvissa Barátta gegn neind Skref fyrir orð fyrir skref Fyrir líf fyrir orð fyrir skref Þetta ljóð ásamt tveim öðrum er birt undir kaflaheitinu „Enn skín sólin þrjósk“. Það kemur nokkuð undarlega fyrir sjónir í fyrstu og ber þar margt til. Myndmál og líkingar eru engar og ljóðið samanstendur af fáum orðum sem eru endurtekin hvað eftir annað. Nafn Ijóðsins eru þau tvö orð sem eru uppistaða þess. Um leið eru þau lykillinn að efni og túlkun Ijóðsins eins og sýnt verður hér á eftir. Ljóðið er þrungið baráttustemningu, þraut- seigri baráttu er barist fyrir eitthvað og gegn einhverju. Ljóðið skiptist í 4 erindi, tvö hin fyrri eru 3 línur hvort en tvö hin síðari aðeins tvær línur. Þegar nánar er að gætt sést að erinda- skiptingin lýtur uppbyggingu ljóðsins. Eftir fyrstu tvö erindin verða n.k. kaflaskipti og mynda þau því ákv. heild. Ljóðið er útleitið og stefnir að ákveðnu marki sem næst í loka- erindinu. Eins og fyrr segir er um tvo höfuðstrauma að ræða í ljóðinu, það er barist fyrir eitthvað og gegn einhverju. Það er þó álitamál hvort tala eigi um tvo strauma því augljósleg sam- svörun er milli þeirra. Um leið og barist er fyrir eitthvað er verið að berjast gegn ein- hverju. En til einföldunar eru þeir aðskildir 59

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.