Bergmál - 01.11.1956, Side 6
Október — Nóvember
B E R G M A L--------------------
ég helzt sem sjaldnast. Hún
angrar oftast áheyrendur og
hún angrar mig sjálfan.
En ef iþið endilega viljið ..“
Árið 1863 starfaði ég sem að-
stoðarlæknir í Orléans. í þess-
ari yfirstétta-borg, þar sem allt
úir og grúir af gömlum höllum
aðalsmanna, er erfitt að finna
hæfilegan samastað fyrir pipar-
svein. Ég hefi alltaf haft þörf
fyrir dálítið olnbogarúm og
hreint andrúmsloft og því leigði
ég mér all-stórt herbergi á
fyrstu hæð í stóru húsi, sem var
nokkuð afskekkt í útjaðri borg-
arinnar. Það hafði upphaflega
verið byggt sem geymsluhús og
jafnframt íbúðarhús fyrir
pappaverksmiðju eiganda. En
verksmiðjueigandinn hafði orð-
ið gjaldþrota og húsið verið selt
ofan af honum með öllu sem í
því var fyrir spott-prís. Nýji
eigandinn hirti ekkert um að
halda húsinu við. Hugðist græða
á því að selja það aftur nokkr-
um árum síðar, því að borgin
var einmitt að þenjast út á þeim
tíma og færðist óðfluga nær
þessu afskekkta húsi. Eigandinn
hafði víst rétt fyrir sér, því að
eftir því sem ég bezt veit, stend-
ur nú nýtízku íbúðarhverfi á
þessum stað.
Á. þeim tíma sem ég bjó þarna
mátti húsið sem sagt kallast út-
vörður borgarinnar, svo af-
skekkt og einmanlegt var þar,
og við götuna sem lá út að þessu
húsi stóðu einungis vöruskemm-
ur og hálf-fallin hús, sem löngu
var hætt að búa í.
Ég leigði helminginn af íbúð
hússins, sem var fjögur her
bergi. í þeim tveim herbergj-
um, sem lágu að götunni hafði
ég vinnustofu og svefnherbergi.
í öðru bakherberginu hafði ég
veiðarfæri og annað dót sem
niér fylgdi þá, hitt stóð autt.
Mér leið ágætlega í þessari vist-
arveru. Ég hafði til umráða
svalir, sem lágu meðfram allri
framhlið hússins. Eða réttara
sagt, ég hafði helming þessara
svala til umráða því að þeim
var skipt í tvennt með svolítilli
járngrind, sem að vísu var ekki
mjög há.
Ég hafði búið þarna næstum
tvo mánuði er ég kvöld eitt í
júlí kom inn í íbúð mína og sá
þá mér til undrunar að ljós log-
aði innan við glugga í íbúðinni
við hliðina, en sú íbúð hafði
4