Bergmál - 01.11.1956, Síða 27
1 9 5 6 ------------------:-----
á höfðinu, eða ef til vill skipt
henni fyrir einhvern kjörgrip
hjá öðrum strák. Verst var með
Maju litlu. Hánn settist og fálm-
aði eins og ósjálfrátt eftir sígar-
ettu. Eliza settist á stólarminn
hjá honum. Hún tók að lýsa
fyrir honum í hálfum hljóðum
allri viðhöfninni á stöðinni,
hvernig lúðrasveitin hefði geng-
ið fram og byrjað að spila, strax
og sást til lestarinnar, og sjálf-
ur herragarðseigandinn hefði
verið mættur í nýjum Rolls
Royce til að aka honum frá
stöðinni inn á torgið í miðju
þorpinu.
Það skrjáfaði í pappír og
Tommy hrópaði upp yfir sig af
hrifningu. Hann slóst við Maju
systur sína um skyrtu Seths.
„Þetta er aðeins fatnaður, sem
einhver ítölsk stúlka þvoði fvrir
mig,“ sagði Seth, er Eliza leit
forvitnislega til barnanna.
Skyndilega ráku börnin upp
óp, samtímis. Þau höfðu rifið
blaðið utan af skyrtunni og með'
sigurópi veifaði Tommy nú lit-
fagurri hálsfesti yfir höfði sér.
Og við ihlið hans stóð Maja litla
með tvær pappaöskjur í fang-
inu. Hún rétti Tomma stærri
öskjuna án þess að mæla orð frá
vörum, og opnaði því næst hina.
----------------------- Bergmál
í öskjunni var aflöng flaska
grænleit, það var ilmvatn.
Tommy rétti nú mömmu sinni
hálsfestina og opnaði því næst
sína öskju.
Hann stundi er hann leit ofan
í hana, orðlaus af undrun og
hrifningu. Hún var troðfull af
marglitu, tyrknesku konfekti,
sem var svo girnilegt að maður
fékk vatn í munninn af að horfa
á það.
Seth sat sem steingervingur
og starði á þetta eins og dáleidd-
ur. Hann kingdi aftur og aftur
einhverjum klump, sem. settist
að í hálsi hans, og óvenjulegar
tilfinningar fengu hjarta hans
til að slá óeðlilega hratt. Eliza
stóð frammi fyrir speglinum og
festi hinar gylltu perlur um
hálsinn á sér. Hún leit til hans
yfir öxl sér ástþrungnum aug-
um. „Þú og kanínurnar þínar,“
muldraði 'hún.
En Seth heyrði ekki hvað hún
sagði. Hann reyndi af öllum
mætti að muna hvað hún hét nú
aftur, þessi ítalska stelpa.
Fjandakornið að hann gat
nokkuð munað það.
Endir.
25