Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 12

Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 12
12 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Nýtt og glæsilegt geymsluhúsnæði Að Týsnesi 12, Akureyri Með yfir 100 geymslum www.akgeymslur.is GEYMSLUR AK GEYMSLUR l STRANDGÖTU 31 l 600 AKUREYRI l SÍMI 866-2696 geyma@akgeymslur.is l www.akgeymslur.is Stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins verður lagður niður í lok árs. Sjóðurinn var stofnaður fyrir fimmtíu árum og hefur til dagsins í dag fjármagnað hin ýmsu þróunar- og rannsóknaverkefni tengd hrossarækt. Stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins varð til með breytingu á lögum um búfjárrækt árið 1973 í þeim tilgangi að styrkja og lána hrossaræktarsamböndum fjármagn til kaupa á kynbótahrossum sem annars væru mögulega seld úr landi. Starfsemi sjóðsins hefur breyst með árunum en eftir árið 1997 hafa eingöngu verið veitt framlög til þróunar- og rannsóknarverkefna. Fagráð í hrossarækt hefur farið með stjórn Stofnverndarsjóðs. Fjármagnaður af útflutningi hrossa Fjármögnun sjóðsins hefur ætíð verið gegnum útflutning hrossa en á fyrstu árum sjóðsins var upphæðin reiknuð sem ákveðið hlutfall af útfluttum hrossum en á seinni árum hafa útflytjendur greitt 1.500 krónur í sjóðinn fyrir hvert útflutt hross. Bændasamtök Íslands eiga að sjá um innheimtu fyrir sjóðinn en innheimtan hefur verið færð til ríkisins og samkvæmt fundargerðum Fagráðs hefur gjaldið ekki verið innheimt af hverju útfluttu hrossi fyrir árið 2022 og 2023 en ríkið hafi þó staðið skil á greiðslum sjóðsins. Greiðslurnar hafi tekið mið af árlegum útflutningi. Frá upphafi sjóðsins hefur í kringum 200 milljónum verið úthlutað úr sjóðnum sem gerir að meðaltali fjórar milljónir á ári. Verkefnin hafa verið misjöfn en m.a. hafa rannsóknaverkefni á borð við tíðni magasára í útigangshrossum á Íslandi, doktorsverkefni um erfðafræðilegan grunn gangtegunda íslenska hestsins, innleiðing á kynbótamati keppniseiginleika og rannsókn þar sem skoðaður var blóðhagur, blóðgildi og hormónastaða í íslenskum folaldshryssum verið úthlutað styrkur frá sjóðnum. Rannsóknir á borð við burðargetu íslenskra reiðhrossa og líkamsþungahlutfall milli knapa og hesta er stór þáttur í að sýna fram á að íslenski hesturinn geti borið knapa en slík verkefni hafa einnig verið studd af Stofnverndarsjóði. Eftirstöðvar sjóðsins, um 70 milljónir króna, munu renna að mestu í uppfærslu á WorldFeng, upprunaættbók íslenska hestsins, samkvæmt grein Nönnu Jónsdóttur, formanns búgreinadeildar hrossa- ræktar, í síðasta tölublaði Bænda- blaðsins. Átta milljónir króna árlega Í stað Stofnverndarsjóðs geta þeir sem vinna að þróunar- og rannsóknaverkefnum tengdum hrossarækt leitað í þróunarfé búgreina en undir þann stuðning falla einnig nautgriparækt og sauðfjárrækt. Samkvæmt nýsamþykktri reglugerð nr. 1006/2024 munu heildarframlög til þróunarverkefna í hrossarækt vera að lágmarki 8 milljónir króna árlega. /hf Samkvæmt nýsamþykktri reglugerð nr. 1006/2024 munu heildarframlög til þróunarverkefna í hrossarækt vera að lágmarki 8 milljónir króna árlega. Mynd/ Kristina Delp, Unsplash Hrossarækt: Stofnverndarsjóður lagður niður Veiðistjórn rjúpu á tímamótum Staðfest hefur verið stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpu og hún sögð stuðla að sjálfbærum veiðum og viðhaldi stofnsins. Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpu er sú fyrsta sinnar tegundar fyrir dýrastofn á Íslandi. Hún er sögð mikilvægur liður í því að stuðla að sjálfbærum veiðum og að rjúpnastofninn haldi sínu hlutverki sem lykiltegund í sínu vistkerfi. Þá segja stjórnvöld að með áætluninni verði tímamót í veiðistjórnun rjúpu. Héðan í frá verði veiðistjórnun á rjúpu svæðisbundin, þar sem landinu er skipt niður í sex svæði. Fastir þættir sem ekki breytast á milli ára hafa verið staðfestir, svo sem að veiðitímabil hefjist fyrsta föstudag á eða eftir 20. október, veiðidagar séu heilir og veiði sé leyfileg föstudaga til þriðjudaga innan veiðitímabils. Þá voru stofnlíkön þróuð og verða notuð til að reikna út ákjósanlega lengd veiðitímabils sem getur verið mismunandi á milli svæða. Þessir föstu þættir eru sagðir stuðla að gagnsæi, fyrirsjáanleika og skilvirkni veiðistjórnunar á rjúpu sem auki traust á milli opinberra stofnana, hagsmunaaðila og almennings. Áætlunin er afrakstur samstarfs Umhverfisstofnunar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Náttúrufræðistofnunar, SKOTVÍS og Fuglaverndar. Samstarfshópurinn fékk einnig aðstoð frá dr. Fred A. Johnson, bandarískum sérfræðingi í veiðistjórnun og stofnlíkanagerð. Rjúpa (Lagopus muta) er eftirsóttasta veiðibráð á Íslandi en árlega ganga að jafnaði fjögur til fimm þúsund manns til rjúpna. Vísbendingar eru um að til lengri tíma litið hafi rjúpnastofn landsins minnkað og er tegundin á válista Náttúrufræðistofnunar Íslands sem tegund í yfirvofandi hættu. Að stofninum steðja ýmsar ólíkar ógnir, en þær helstu eru loftslagsbreytingar, skógrækt, landbreyting og veiði. Rjúpnaveiði hefst 25. október. /sá Rjúpnaveiði hefst 25. október. Eftirleiðis verður veiðistjórnun svæðisbundin, á sex svæðum. Mynd / Pixabay Árnessýsla: Auknar líkur á að lífgas- og áburðarver verði að veruleika Kúabændur á Suðurlandi komu til fundar í Reykholti í Bláskóga- byggð 1. október sem Orkídea boðaði til, þar sem kynntar voru hugmyndir um lífgas- og áburðarver í uppsveitum Árnessýslu. Að sögn Sveins Aðalsteinssonar, framkvæmdastjóra Orkídeu, komu um 30 bændur til fundarins. „Hljóðið í bændum var mjög jákvætt og mikil stemning fyrir því að skoða þetta verkefni áfram og þá í þessari endurbættu útgáfu sem gefur betri rekstrargrundvöll.“ Fýsilegt með fleiri afurðum Áður hafði Orkídea látið gera fýsileikakönnun á fjölbreyttri lífgas- og áburðarverksmiðju með gashreinsun. Þar var gert ráð fyrir að garðaúrgangi garðyrkjubænda og kúamykju kúabænda væri umbreytt í lífrænan áburð og lífgas; koltvísýring og hreinsað metangas. Hún leiddi í ljós að rekstrartekjur myndu standa undir rekstrarkostnaði en ekki fjármagnskostnaði. „Því fórum við þá leið að kanna annan grundvöll fyrir slíku veri þar sem meginafurðir verksmiðjunnar, auk áburðar, yrðu orka, hiti og rafmagn, og koltvísýringur, sem er í dag markaðsvara sem garðyrkjubændur kaupa í miklu magni,“ segir Sveinn. Skoða mögulega aðkomu sjóða „Við teljum okkur vera búin að finna þá leið sem skilar þá rekstrarafgangi til að mæta fjármagnskostnaði við lífgas- og áburðarverið. Þannig að sú sviðsmynd, sem er ekki alveg tilbúin, eykur líkurnar á að verkefnið verði að veruleika,“ heldur Sveinn áfram. „Auk þess kynntum við á fundinum dæmi um lítið og staðbundið lífgas- og áburðarver sem gæti hentað einstökum stórum kúabændum og orkan þá nýtt á bænum. Við erum vongóð um að ný nálgun og fýsileikakönnun gefi þennan fjárhagslega grundvöll og að ráðist verði í verkefnið innan skamms. Við erum líka að skoða hvort og hvernig opinberir sjóðir geti komið inn í verkefnið með styrki, fyrir utan heimamenn.“ Orkídea er þátttakandi í Evrópu- verkefninu Value4Farm sem leggur áherslu á staðbundna orkufram- leiðslu og staðbundna orkunýtingu í nokkrum löndum í Evrópu og fjármagnar meðal annars það verkefni Orkídeu að staðreyna niðurstöður á Íslandi úr svokölluðum sýnidæmum frá þremur Evrópulöndum. Viljayfirlýsing garðyrkjubænda „Við viljum gjarnan sýna fram á okkar vinnu og útreikninga sem dæmi um staðreyndar niðurstöður. En það er ekki megindrifkraftur okkar vinnu við lífgas- og áburðarverið, heldur sú viljayfirlýsing sem garðyrkjubændur í Reykholti og sveitarfélagið Bláskógabyggð undirrituðu 2022, löngu áður en við fengum Evrópustyrkinn, um möguleika á grænum iðngarði í sveitarfélaginu. Grænir iðngarðar, eins og þessi hugmynd gengur út á, byggja á hringrás auðlinda þannig að einhvers konar endurnýting auðlinda innan sveitarfélagsins er grundvöllur þess að hægt sé að kalla svæðið grænan iðngarð. Við erum á réttri leið, ekki spurning,“ segir Sveinn. /smh
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.