Bændablaðið - 10.10.2024, Side 14
14 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024
Skógrækt:
Gott fræár í birkinu
Söfnun birkifræs hefur gengið ágætlega þetta
haustið og víðast talsvert af fræi.
Land og skógur stendur að átakinu
Söfnum og sáum birkifræi í samvinnu við
skógræktarfélög landsins, Lionshreyfingunni
o.fl. Safna má birkifræi fram undir jól
eða svo lengi sem það hangir á trjánum
og þannig ekki sérstök útmörk á
söfnunarátakinu.
Hægt að safna fram eftir vetri
Söfnunin hófst á degi íslenskrar náttúru um miðjan
september, með söfnun birkifræs í Reykhúsaskógi í
Eyjafjarðarsveit á vegum Lionsklúbbsins Sifjar. Mikið
var af fræi á trjám og það orðið vel þroskað. Hið sama
virðist gilda víðast hvar um landið og því gott fræár.
Er fólk hvatt til að safna birkifræi og þannig stuðla
að útbreiðslu birkis. Fá má fræsöfnunaröskjur og skila
fræi í Bónus, Olís eða til starfsstöðva Lands og skógar.
Fólk getur einnig sjálft sáð fræi þar sem vænlegt er
fyrir það að dafna.
Stækka birkiskóga
Tilgangurinn með verkefninu er að efla
útbreiðslu birkiskóga, meðal annars með
því að virkja almenning til söfnunar
og dreifingar birkifræs, en einnig að
veita fræðslu til félagasamtaka, skóla,
fyrirtækja og stofnana um vernd og
endurheimt birkiskóga.
Markmiðið er að þekja birki-
skóglendis fari úr 1,5 prósentum landsins
í 5 prósent fram til ársins 2030. Með
verkefnum, sem einkum miða að
útbreiðslu birkiskóga og birkikjarrs, vilja íslensk
stjórnvöld taka svokallaðri Bonn-áskorun og þar með
auka landgæði, efla jarðvegsauðlindina og styrkja
byggð í landinu.
Á Íslandi hafa tvær tegundir birkiættkvíslarinnar
þrifist í þúsundir ára og eru báðar mjög einkennandi
fyrir íslenska náttúru. Annars vegar er ilmbjörk (birki)
og hins vegar fjalldrapi sem er mjög smávaxinn runni
og myndar því ekki skóg eða kjarr. /sá
Dóra Svavarsdóttir, formaður Slow Food Reykjavík, á hátíðinni í Tórínó. Myndir / Aðsendar
Steinunn Lilja kynni taðreykt sauðakjöt og rófustöppu.
Við hlið hennar er hrossabóndi frá Kyrgyzstan.
Soðið perlubygg, kryddað með muldum
beltisþara og sölvum og toppað með
skyrsósu og sjávartrufflu (þangskeggi).
Hópur matgæðinga á vegum Slow
Food Reykjavík hélt til Tórínó
á dögunum til að taka þátt í
matarhátíðinni Terra Madre, sem
haldin er annað hvert ár í borginni.
Að sögn Dóru Svavarsdóttur,
formanns Slow Food Reykjavík,
sóttu um þrjú hundruð þúsund
manns hátíðina í ár frá 120 löndum,
en 16 Íslendingar tóku beinan þátt
að þessu sinni.
Dóra segir að yfirskrift
hátíðarinnar í ár hafi verið „Við
erum náttúran“. „Nýju verkefni
innan Slow Food samtakanna,
„Slow Food Farms“, var formlega
ýtt úr vör. Markmiðið er að búa
til tengsla- og fræðslunet bænda
sem stunda vistvænan landbúnað
eða vilja gera betur í vistvænum
landbúnaði. Tengja þá við mat-
reiðslumenn og ferðaþjónustu
til að tryggja sölu á afurðum og
fækka milliliðum og tryggja góðan,
hreinan og sanngjarnan mat og hafa
fræðsluhraðla sem nýtast bændum í
átt að sjálfbærni,“ segir hún.
Íslensku þátttakendurnir voru
hluti af þrjú þúsund manna hópi
alþjóðafulltrúa Slow Food, alls
staðar að úr heiminum, sem taka
virkan þátt í dagskrá hátíðarinnar.
„Auk þess kom hópur á vegum
Farskólans, miðstöðvar símenntunar
á Norðvesturlandi. Þá ferðuðust
20 bændur og smáframleiðendur
um Piemonte-héraðið og hittu
aðra smáframleiðendur og aðila í
ferðaþjónustu.
Svo komu þau á Terra Madre í
lok ferðar og fengu Slow Food-
hugsjónina beint í æð,“ segir Dóra.
Smakk-vinnustofa um fjörunytjar
Jafnan er á þessum hátíðum
lögð áhersla á meðal íslensku
þátttakendanna að kynna matarhefðir
landsins og segir Dóra ekki hafa verið
vikið frá venjunni í þetta skiptið.
„Steinunn Lilja Svövudóttir, bóndi
í Haukholtum og matreiðslumaður,
stóð að smakk-vinnustofu um grafið
og reykt kjöt þar sem fólk fékk
taðreykt sauðkjöt með rófustöppu.
Gerður var góður rómur af kjötinu
og viðleitninni að viðhalda þeim
menningararfi sem felst í nýtingu
taðsins til reykingar. Eins var hún í
pallborði um visthæfni landbúnaðar
og hvernig hægt sé að ná jafnvægi
í náttúrunni með beitarstjórnun og
hóflegri nýtingu.“
Dóra segist sjálf hafa verið með
smakk-vinnustofu um nytjar og
tekið sérstaklega fyrir fjörunytjar,
sögu þeirra og hvernig „nýnorræna
eldhúsið“ hafi aukið veg matþörunga
á undanförnum árum. Hún hafi borið
fram soðið perlubygg, kryddað með
muldum beltisþara og sölvum og
toppað með skyrsósu og sjávartrufflu
(þangskeggi). Eins tók hún þátt í
pallborði um mikilvægi ábyrgra nytja
úr skógum.
Guðmundur Guðmundsson, sem
er matvælafræðingur og í stjórn
Slow Food Reykjavík, var fulltrúi
Slow Food Reykjavík í vinnustofu
um Bragðörkina, þar sem skráð
eru gæðamatvæli eða afurðir sem
eru talin búa yfir menningarlegu
verðmæti. Í dag eru 26 íslenskar
tegundir þar skráðar.
Harðfiskur og skreið
skráð hjá UNESCO
Dóra tók að sér verkefnastjórn fyrir
Íslands hönd vegna umsóknar um
að harðfiskur og skreið verði skráð
sem menningararfur hjá UNESCO,
en verkefnið er unnið í samstarfi við
Slow Food Bergen og Slow Food í
Nígeríu, Ítalíu og Spáni.
„Ferðir sem þessar eru
nauðsynlegar til að styrkja
tengslanetið, finna kraftinn og fá
innspýtingu í verkefnin hér heima,“
segir Dóra að lokum um ferðina til
Tórínó. /smh
Slow Food:
Íslenskar matarhefðir bornar á borð í Tórínó
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Gleraugu með glampa og rispuvörn
Sérsmíðum samdægurs í
styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0
19.900 kr.
Margskipt gleraugu
Margskipt gler frá Essilor
(afgreiðslutími +/- tv r vikur)
39.900 kr.
gleraugu
umgjörð og gler
Birki (Betula pubescens) að hausti. Almenningur er hvattur til að safna birkifræi meðan tíðin er þokkaleg. Mynd / Couleur