Bændablaðið - 10.10.2024, Side 14

Bændablaðið - 10.10.2024, Side 14
14 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Skógrækt: Gott fræár í birkinu Söfnun birkifræs hefur gengið ágætlega þetta haustið og víðast talsvert af fræi. Land og skógur stendur að átakinu Söfnum og sáum birkifræi í samvinnu við skógræktarfélög landsins, Lionshreyfingunni o.fl. Safna má birkifræi fram undir jól eða svo lengi sem það hangir á trjánum og þannig ekki sérstök útmörk á söfnunarátakinu. Hægt að safna fram eftir vetri Söfnunin hófst á degi íslenskrar náttúru um miðjan september, með söfnun birkifræs í Reykhúsaskógi í Eyjafjarðarsveit á vegum Lionsklúbbsins Sifjar. Mikið var af fræi á trjám og það orðið vel þroskað. Hið sama virðist gilda víðast hvar um landið og því gott fræár. Er fólk hvatt til að safna birkifræi og þannig stuðla að útbreiðslu birkis. Fá má fræsöfnunaröskjur og skila fræi í Bónus, Olís eða til starfsstöðva Lands og skógar. Fólk getur einnig sjálft sáð fræi þar sem vænlegt er fyrir það að dafna. Stækka birkiskóga Tilgangurinn með verkefninu er að efla útbreiðslu birkiskóga, meðal annars með því að virkja almenning til söfnunar og dreifingar birkifræs, en einnig að veita fræðslu til félagasamtaka, skóla, fyrirtækja og stofnana um vernd og endurheimt birkiskóga. Markmiðið er að þekja birki- skóglendis fari úr 1,5 prósentum landsins í 5 prósent fram til ársins 2030. Með verkefnum, sem einkum miða að útbreiðslu birkiskóga og birkikjarrs, vilja íslensk stjórnvöld taka svokallaðri Bonn-áskorun og þar með auka landgæði, efla jarðvegsauðlindina og styrkja byggð í landinu. Á Íslandi hafa tvær tegundir birkiættkvíslarinnar þrifist í þúsundir ára og eru báðar mjög einkennandi fyrir íslenska náttúru. Annars vegar er ilmbjörk (birki) og hins vegar fjalldrapi sem er mjög smávaxinn runni og myndar því ekki skóg eða kjarr. /sá Dóra Svavarsdóttir, formaður Slow Food Reykjavík, á hátíðinni í Tórínó. Myndir / Aðsendar Steinunn Lilja kynni taðreykt sauðakjöt og rófustöppu. Við hlið hennar er hrossabóndi frá Kyrgyzstan. Soðið perlubygg, kryddað með muldum beltisþara og sölvum og toppað með skyrsósu og sjávartrufflu (þangskeggi). Hópur matgæðinga á vegum Slow Food Reykjavík hélt til Tórínó á dögunum til að taka þátt í matarhátíðinni Terra Madre, sem haldin er annað hvert ár í borginni. Að sögn Dóru Svavarsdóttur, formanns Slow Food Reykjavík, sóttu um þrjú hundruð þúsund manns hátíðina í ár frá 120 löndum, en 16 Íslendingar tóku beinan þátt að þessu sinni. Dóra segir að yfirskrift hátíðarinnar í ár hafi verið „Við erum náttúran“. „Nýju verkefni innan Slow Food samtakanna, „Slow Food Farms“, var formlega ýtt úr vör. Markmiðið er að búa til tengsla- og fræðslunet bænda sem stunda vistvænan landbúnað eða vilja gera betur í vistvænum landbúnaði. Tengja þá við mat- reiðslumenn og ferðaþjónustu til að tryggja sölu á afurðum og fækka milliliðum og tryggja góðan, hreinan og sanngjarnan mat og hafa fræðsluhraðla sem nýtast bændum í átt að sjálfbærni,“ segir hún. Íslensku þátttakendurnir voru hluti af þrjú þúsund manna hópi alþjóðafulltrúa Slow Food, alls staðar að úr heiminum, sem taka virkan þátt í dagskrá hátíðarinnar. „Auk þess kom hópur á vegum Farskólans, miðstöðvar símenntunar á Norðvesturlandi. Þá ferðuðust 20 bændur og smáframleiðendur um Piemonte-héraðið og hittu aðra smáframleiðendur og aðila í ferðaþjónustu. Svo komu þau á Terra Madre í lok ferðar og fengu Slow Food- hugsjónina beint í æð,“ segir Dóra. Smakk-vinnustofa um fjörunytjar Jafnan er á þessum hátíðum lögð áhersla á meðal íslensku þátttakendanna að kynna matarhefðir landsins og segir Dóra ekki hafa verið vikið frá venjunni í þetta skiptið. „Steinunn Lilja Svövudóttir, bóndi í Haukholtum og matreiðslumaður, stóð að smakk-vinnustofu um grafið og reykt kjöt þar sem fólk fékk taðreykt sauðkjöt með rófustöppu. Gerður var góður rómur af kjötinu og viðleitninni að viðhalda þeim menningararfi sem felst í nýtingu taðsins til reykingar. Eins var hún í pallborði um visthæfni landbúnaðar og hvernig hægt sé að ná jafnvægi í náttúrunni með beitarstjórnun og hóflegri nýtingu.“ Dóra segist sjálf hafa verið með smakk-vinnustofu um nytjar og tekið sérstaklega fyrir fjörunytjar, sögu þeirra og hvernig „nýnorræna eldhúsið“ hafi aukið veg matþörunga á undanförnum árum. Hún hafi borið fram soðið perlubygg, kryddað með muldum beltisþara og sölvum og toppað með skyrsósu og sjávartrufflu (þangskeggi). Eins tók hún þátt í pallborði um mikilvægi ábyrgra nytja úr skógum. Guðmundur Guðmundsson, sem er matvælafræðingur og í stjórn Slow Food Reykjavík, var fulltrúi Slow Food Reykjavík í vinnustofu um Bragðörkina, þar sem skráð eru gæðamatvæli eða afurðir sem eru talin búa yfir menningarlegu verðmæti. Í dag eru 26 íslenskar tegundir þar skráðar. Harðfiskur og skreið skráð hjá UNESCO Dóra tók að sér verkefnastjórn fyrir Íslands hönd vegna umsóknar um að harðfiskur og skreið verði skráð sem menningararfur hjá UNESCO, en verkefnið er unnið í samstarfi við Slow Food Bergen og Slow Food í Nígeríu, Ítalíu og Spáni. „Ferðir sem þessar eru nauðsynlegar til að styrkja tengslanetið, finna kraftinn og fá innspýtingu í verkefnin hér heima,“ segir Dóra að lokum um ferðina til Tórínó. /smh Slow Food: Íslenskar matarhefðir bornar á borð í Tórínó Hamrahlíð 17 Hús Blindrafélagsins Sími • 552-2002 ÓDÝR Margskipt gleraugu Verð 39.900 kr Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur) Gleraugu með glampa og rispuvörn Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0 19.900 kr. Margskipt gleraugu Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tv r vikur) 39.900 kr. gleraugu umgjörð og gler Birki (Betula pubescens) að hausti. Almenningur er hvattur til að safna birkifræi meðan tíðin er þokkaleg. Mynd / Couleur

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.