Bændablaðið - 10.10.2024, Side 24

Bændablaðið - 10.10.2024, Side 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024Viðtal Rófum af svipaðri stærð er pakkað í 20 kílóa netapoka sem fara svo í verslanir og heildsölur á 500 kílóa brettum. Þegar neytendur sjá íslenskar gulrófur í lausu úti í búð er ekki ósennilegt að þær séu frá Læk. Tvö kíló af fræi Bændurnir á Læk þurfa að hámarki tvö kíló af fræi á ári sem þau kaupa af Fjólu Signýju Hannesdóttur frá Stóru-Sandvík í Flóa, eina aðila landsins sem ræktar gulrófnafræ. Þau eru af sérstöku yrki sem faðir Fjólu þróaði á sínum tíma, en íslenskir rófnabændur kaupa einnig fræ erlendis frá sem dafna vel hér á landi. Hrafnhildur telur ósennilegt að neytendur sjái mun á gulrófum af ólíkum yrkjum, enda sé þetta allt jafngott. Hrafnhildur og Friðrik hafa ekki lent í uppskerubresti. Þau leggja sig fram við að rækta ekki rófur í meira en tvö ár í hverjum garði og þess á milli er spildunum breytt í tún í minnst sjö ár til þess að hvíla jarðveginn. Þá reyna þau að hafa garðana dreifða á því landsvæði sem þau hafa aðgang að til þess að vera með fjölbreyttar aðstæður. „Það skiptir gríðarlega miklu máli í þessu hvernig veðurfarið er. Það var erfitt hjá okkur í sumar þar sem jarðvegshitinn var lágur og sprettan var hæg,“ segir Friðrik. Af þeim sökum drógu þau uppskeruna eins langt fram á haustið og þau gátu, en í betri árum hafa allar rófur verið komnar úr jörð fyrir lok september. Halda í gleðina Friðrik ráðleggur ungum bændum sem eru að hefja búskap að reyna að halda í gleðina og pörum í landbúnaði að vera samstiga. „Og hafa grófar áætlanir til lengri tíma svo allir viti hvert er verið að stefna, því svo fer þetta í alls konar hlykki á leiðinni.“ Hjónin segja rófnabúskapinn standa undir einu starfi, en Hrafnhildur hefur sinnt þrifum og afgreiðslu pantana á veturna. Friðrik vinnur mikið utan bús í smíðum og vélaverktöku, sem Hrafnhildur grípur stundum í. Þau vinna hart að því að greiða niður skuldir eins hratt og þau geta, en stefnan er að stækka og efla vinnsluna, kæligeymsluna og afköstin á næstu árum svo reksturinn standi betur undir sér. „Landbúnaður er í þeirri þróun í dag að annaðhvort þarftu að vera með mörg minni járn í eldinum eða þú þarft að vera þokkalega drjúgur í því sem þú ert,“ segir Friðrik. Netadúkarnir nýtast í mörg ár og er rúllað upp eftir uppskeru. Nýuppteknar gulrófur fyrir hreinsun. 5hlutir sem Friðrik og Hrafnhildur geta ekki verið án 1. Peltorinn: „Hann fylgir okkur um allt.“ 2. Rófnahnífur: Notaður þegar rófurnar eru snyrtar. 3. Vinnslan: Tækjakosturinn gefur afköst við hreinsun og pökkun. 4. Upptökuvélin: „Hún er lykilatriði. Maður fer ekki langt án hennar.“ 5. Netadúkurinn: Hann ver gegn sníkjudýrum og eykur hitann. Hrafnhildur sér að miklu leyti um að snyrta, þrífa og afgreiða gulrófur á veturna. Friðrik vonast til að byggja upp og bæta aðstöðuna á næstu árum. Hrafnhildur og Friðrik keyptu allan tækjabúnað af nágrönnum sínum sem voru að hætta búskap, en hafa endurnýjað mest allt síðan þá. Uppskrift Hrafnhildar að hrásalati með gulrófum Rifnar rófur, ananas, sýrður rjómi og pekanhnetur. Blandað eftir smekk.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.