Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 36

Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 36
36 Á faglegum nótum Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Saga skógræktar á Íslandi er rakin til stofnunar Skógræktar ríkisins 1907 en skógrækt bænda á bújörðum með aðkomu ríkisins á sér styttri sögu. F l j ó t s d a l s - áætlun er talin vera upphaf skóg- ræktar á bújörðum og hófst hún formlega 25. júní 1970. Síðan var verkefnið Nytjaskógrækt á bújörðum sett af stað með laga- setningu 1984 og var hún stunduð á nokkrum stöðum á landinu þar sem skilyrði til skógræktar þóttu góð. Þegar velgengni þess verkefnis fór að koma í ljós vildu fleiri bændur taka þátt og svo fór að Héraðsskógar á Austurlandi tóku til starfa 1991 og í kjölfarið komu Suðurlandsskógar 1997 á grundvelli lagasetninga. Árið 1999 voru sett lög um landshlutaverkefni í skógrækt og á grundvelli þeirra laga voru landshlutaverkefnin Vesturlandsskógar og Norður- landsskógar stofnuð og tóku þau við samningum um nytjaskógrækt á bújörðum auk þess að gera samninga við bændur um skógrækt á jörðum þeirra. Upphaf má rekja til áhuga bænda Skjólskógar á Vestfjörðum voru einnig stofnaðir á grundvelli þessara laga en á Vestfjörðum hafði ekki fengist samþykki fyrir því að fara í nytjaskógrækt á bújörðum þar sem skilyrði til skógræktar voru ekki talin nægjanlega góð. Áhugasamir bændur í Önundarfirði og Dýrafirði voru ekki sáttir við þá niðurstöðu og stofnuðu sitt eigið verkefni sem fékk nafnið Skjólskógar á Vestfjörðum árið 1997. Þegar lög um landshlutaverkefni voru sett 1999 tók landshluta- verkefnið á Vestfjörðum við nafni og hlutverki eldri Skjólskóga og gerðu samninga við áhugasama bændur líkt og í öðrum landshlutum. Upphaf skógræktar á bújörðum má yfirleitt rekja til áhuga bændanna sjálfra á skógrækt og þeirrar umræðu og áhrifa sem þeir höfðu sjálfir á stjórnsýsluna og þingmenn. Þennan áhuga má líka sjá í stofnun félaga skógarbænda um allt land en þau eru fagfélög líkt og hjá öðrum bændum. Fyrsta skógarbændafélagið var stofnað á Fljótsdalshéraði 1988 og síðan fylgdu aðrir landshlutar í kjölfarið eftir því sem skógrækt óx fiskur um hrygg á hverju svæði. Landssamtök skógareigenda voru stofnuð 1997 og stóðu félög skógarbænda um allt land að samtökunum en þeim var ætlað að vinna að hagsmunum skógarbænda og atvinnugreinarinnar skógræktar. Málþing í Sælingsdal Árið 2021 sameinuðust Landssamtök skógareigenda Bændasamtökum Íslands og við hlutverki LSE tók búgreinadeild skógarbænda innan Bændasamtakanna. LSE var lagt í dvala og undanfarin ár hefur stjórn búgreinadeildar skógarbænda, SkógBÍ, unnið að hagsmunamálum skógarbænda. Tilgangur SkógBÍ er að sameina þá sem stunda skógrækt í atvinnuskyni, hvort sem þeir eru eingöngu með skógrækt eða stunda jafnframt aðrar búgreinar. Það er því ótvíræður hagur skógarbænda að sameinast undir hatti SkógBÍ til að leggja sitt af mörkum til að vinna saman að hagsmunum skógræktar á bújörðum og auka vægi skógræktar sem búgreinar. Slíkt vægi skiptir sérstaklega miklu máli þegar horft er til samskipta við ríki og stofnanir þess þar sem skógrækt undir hatti Bændasamtaka Íslands á aukna möguleika á að ná til ráðuneyta og annarra stofnana ríkisins. Á málþingi Félags skógarbænda á Vestfjörðum, sem haldið verður á Laugum í Sælingsdal þann 12. október næstkomandi, verður saga skógræktar á bújörðum rakin með dæmum frá Vestfjörðum og Vesturlandi auk fleiri fyrirlestra en á málþinginu verður félagsmálum skógarbænda og umræðu um þau gert hátt undir höfði. Ljóst er að þeir skógarbændur sem voru félagar í LSE hafa ekki allir gengið til liðs við SkógBÍ og því má slagkraftur í samstöðu skógarbænda vera töluvert meiri. Því fleiri sem ganga til liðs við búgreinadeild skógræktar innan Bændasamtaka Íslands, því öflugri verður hagsmunabarátta okkar og samstaðan verður sýnilegri. Samstaða er nauðsynleg Við sem stöndum að málþinginu á Laugum hvetjum því alla bændur sem eru með skógrækt á sínum bújörðum, hvort sem það er skjólbeltaræktun, skjólskógaræktun, timburskógrækt eða útivistarskógar með eða án annarra búgreina til að skoða af fullri alvöru hvort aðild að Bændasamtökum Íslands, búgreinadeild skógarbænda, sé ekki til þess fallin að efla eigin hagsmuni jafnt sem heildarinnar. Ef þið eruð í vafa um kosti þess að gerast félagar í SkógBÍ þá hvetjum við ykkur til að mæta á málþingið á Laugum, hlusta á fyrirlestrana og spyrja fyrirlesarana spurninga sem þið viljið fá svör við og fá þannig upplýsingar um hvað felst í aðild að SkógBÍ og Bændasamtökum Íslands. Samstaða er nauðsynleg til að ná árangri, við sjáum það best í skóginum okkar, tré á berangri eiga erfitt uppdráttar þar sem þau eru ein að berjast en þau tré sem standa saman í skóginum dafna flest betur í sameiginlegu skógarskjóli. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á Laugum í Sælingsdal og taka þátt í umræðum, spjalla um skóga og skemmta okkur saman. Höfundur er formaður Félags skógarbænda á Vestfjörðum. Skógrækt á bújörðum Lilja Magnúsdóttir. ALLT FRÁ FYRSTU HUGMYND AÐ FULLBÚNU HÚSI ▶ Hönnun og ráðgjöf ▶ Framleiðsla ▶ Uppsetning ▶ Verkefna- / byggingastjórn Súlur stálgrindarhús fyrir atvinnu-, iðnaðar- og íbúðarverkefni kristjan@sulurehf.is www.sulurehf.is 669 0803 Starfsmenn Suðurlandsskóga á Selfossi sumarið 2011. Tuttugu og fimm milljónasta plantan gróðursett hjá Héraðsskógum sumarið 2011. Skógarbændur á Vestfjörðum á keðjusagarnámskeiði á Þingeyri 2013. Myndir / LM Bændablaðið www.bbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.