Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 38
38 Á faglegum nótum Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024
Rabobank:
Fonterra að ná vopnum sínum á ný
Hin árlega skýrsla hollenska land-
búnaðarbankans Rabobank um
tuttugu stærstu afurðafyrirtæki
heims í mjólkuriðnaði, kom út
nýverið.
Sem fyrr er margt einkar áhuga-
vert í þessari samantekt stærsta
landbúnaðarbanka heims, en á
hans vegum starfa sérfræðingar á
ólíkum fagsviðum í landbúnaði.
Stóru tíðindin eru að svo virðist
sem nýsjálenska afurðafélagið
Fonterra sé nú loks á réttri leið og
að ná fyrri stöðu sem eitt af sterkustu
afurðafyrirtækjum í heimi. Undan
þessu forna félagi hafði fjarað í mörg
ár, enda hafði félagið staðið í mjög
umdeildum fjárfestingum í Kína
sem kostuðu á endanum milljarða
að komast út úr.
Heildarumsvif jukust um 0,3%
Eftir hreint ótrúlegt gengi 20 stærstu
fyrirtækja heims á næstsíðasta
rekstrarári, þegar heildarvelta þeirra
jókst um 8,1%, var gengið allt annað
síðasta rekstrarár þegar velta þessara
20 fyrirtækja jókst ekki nema um
0,3%, mælt í Bandaríkjadölum.
Skýringin á þessari miklu breytingu
á milli ára skýrist, að sögn
sérfræðinga Rabobank, fyrst og
fremst af lækkuðu mjólkurverði en
auk þess voru nokkur stórfyrirtæki
í þónokkrum vanda á rekstrarárinu.
Meirihluti stórfyrirtækjanna
gáfu eftir
Eitt það áhugaverðasta á þessum
lista Rabobank í ár, sjá meðfylgjandi
töflu, er sú staðreynd að meirihlutinn
af stærstu fyrirtækjum heims í
mjólkuriðnaði voru að gefa aðeins
eftir, þegar horft er til heildarveltu.
Þannig varð veltuminnkun hjá 6 af
10 stærstu fyrirtækjunum á milli
ára, mælt í bandarískum dollurum.
Þessi tekjulækkun fyrirtækjanna
sex var svo umtalsverð að þrátt
fyrir að hin fyrirtækin fjögur hefðu
bætt við umsvif sín á milli ára, þá
varð heildartekjusamdráttur meðal
þessara 10 stærstu fyrirtækja.
Fór heildarveltan þannig úr
187,1 milljarði dollara niður í
183,9 milljarða dollara sem er
heildarsamdráttur um 1,7%.
Veltan segir ekki allt
Þrátt fyrir að veltutölur síðasta
rekstrarárs líti e.t.v. ekki eins vel út
og margir hefðu óskað er samt ljóst
að veltan segir ekki alla söguna,
enda skiluðu mörg af þessum
stærstu fyrirtækjum heimsins
í mjólkuriðnaði umtalsverðum
hagnaði. Sum meira að segja juku
hagnaðinn á milli ára, þrátt fyrir að
heildartekjurnar hafi dregist saman.
Með öðrum orðum náðu sum
fyrirtækin að nýta betur framleiðslu-
getu sína og mögulega aukið
áherslu á framlegðarhærri vörur.
Það er í raun afar góður árangur
ef litið er til þess hve erfiður þessi
alþjóðlegi mjólkurvörumarkaður
er, þar sem mörg stór alþjóðleg
innkaupafyrirtæki verslunarkeðja
ráða miklu.
Lactalis stækkar og stækkar
Eins og áður segir var gengi
fyrirtækjanna misjafnt á síðasta
rekstrarári en athygli vekur þó hve
stöðugu flugi franska fyrirtækið
Lactalis er á. Í fyrsta skipti í
sögunni fer heildarvelta eins
fyrirtækis í mjólkuriðnaði yfir
30 milljarða dollara eða um nærri
4.200 milljarða íslenskra króna!
Frá fyrra rekstrarári nam veltu-
aukning Lactalis 5,6% sem er
ein mesta aukning 10 stærstu
fyrirtækjanna á listanum. Einungis
Fonterra jók veltu sína hlutfallslega
meira, eða um 6,3%, en vissulega
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Röð árið Breyting Röð árið Nafn Höfuðstöðvar Ársvelta, Ársvelta,
2024 á milli ára 2023 milljarðar USD* milljarðar ÍSK**
1 1 Lactalis Frakkland 30,2 4.170
2 ↑ 3 Nestlé Sviss 24,1 3.327
3 ↓ 2 Dairy Farmers of America Bandaríkin 21,7 2.996
4 4 Danone Frakkland 19,7 2.720
5 5 Yili Kína 17,5 2.416
6 ↑ 9 Fonterra Nýja-Sjáland 15,1 2.085
7 ↓ 6 Arla Foods Danmörk 14,8 2.043
8 ↓ 7 FrieslandCampina Holland 14,1 1.947
9 ↓ 8 Mengniu Kína 13,9 1.919
10 10 Saputo Kanada 12,8 1.767
11 11 Unilever Holland/Bretland 8,7 1.201
12 ↑ 16 Schreiber Foods Bandaríkin 7,4 1.022
13 13 Savencia Frakkland 7,4 1.022
14 ↓ 12 Gujarat Cooperative MMF Indland 7,2 994
15 ↓ 14 Müller Milk Þýskaland 6,7 925
16 ↑ 17 Sodiaal Frakkland 6,3 870
17 ↓ 15 Agropur Kanada 6,1 842
18 18 DMK Þýskaland 5,9 815
19 19 Froneri Bretland 5,7 787
20 ↑ - Grupo Lala Mexíkó 5,6 773
* Veltutölur fyrirtækjanna eru oft byggðar á áætlun Rabobank
** Miðað við miðgengi Seðlabanka Íslands 6. september 2024
Veltuminnkun var hjá sex af tíu stærstu afurðafyrirtækjunum í mjólkuriðnaði á milli ára, mælt í bandarískum dollurum. Mynd / Seges