Bændablaðið - 10.10.2024, Side 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024Af vettvangi ændasamtakanna
Skemmtilegur dagur
Dagur landbúnaðarins er
fram undan, nánar tiltekið á
morgun 11. október, og ég er
ekki í nokkrum vafa um að
hann verður bæði áhugaverður
og skemmtilegur.
Það er nefni-
lega þannig að
hvort heldur
sem umræðan
snýst um hlut-
verk íslenska
landbúnaðarins
eða tækifæri
hans verður
hún bæði
framsækin og
spennandi. Og þegar athyglin
beinist að stöðu landbúnaðarins
í dag og afkomu bænda, sem
vissulega á enn þá í vök að verjast,
skiptir sú staðreynd miklu máli
að um þessar mundir þarf enginn
að velkjast í vafa um þann vilja
stjórnvalda og reyndar þjóðarinnar
allrar að festa hann kirfilega í sessi
til langrar framtíðar.
Í tilefni dagsins er blásið til
málþings á Selfossi og kennir
þar ýmissa grasa. Vonandi verður
umræðan þess eðlis að eftir henni
verði tekið og í þeim efnum horfi
ég ekki síst til fjölmiðla sem sýnt
hafa málefnum okkar mikinn
og þakkarverðan áhuga síðustu
misserin. Með því að leggja við
hlustir á málþinginu geta þeir
eflaust fundið sér áhugaverða
vinkla til þess að fjalla um í
framhaldinu. Á laugardeginum
opna síðan nokkrir bændur á
Suðurlandi hús sín og bjóða
gestum og gangandi bæði að
skoða búreksturinn og kaupa
afurðir sínar beint frá býli.
Málþinginu er langt í frá
ætlað að vera eintal um ágæti
landbúnaðarins. Við munum t.d.
heyra raddir Alþýðusambands
Íslands og Samtaka verslunar
og þjónustu sem væntanlega
munu spegla kröfur neytenda
um ásættanlegt vöruverð og
heimtingu viðskiptalífsins á
viðunandi samkeppnisumhverfi.
Að mínu viti eru báðir hóparnir
kærkomnir samherjar okkar
og þar af leiðandi alls ekki
andstæðingar. Bændur hafa að
sjálfsögðu engin markmið önnur
en að þjóna neytendum sem allra
best. Til viðbótar við hagkvæma
innanlandsframleiðslu er hluti af
því einnig að heyja drengilega
samkeppni við innflutning og
stöðugt fjölbreyttara fæðuframboð
á heilbrigðum grundvelli.
Íslensk þjóð þarf samt að vera
sinn eigin herra að svo miklu
leyti sem unnt er hvað varðar
fæðuöryggi sitt. Í þeim efnum
skiptir landbúnaðurinn miklu
máli og fróðlegt verður að hlýða
á nýráðinn framkvæmdastjóra
Bændasamtaka Íslands, Margréti
Ágústu Sigurðardóttur, fjalla
um þann þátt á málþinginu.
Erindi Arnars Más Elíassonar,
forstjóra Byggðastofnunar, verður
ábyggilega ekki síður athyglisvert.
Stofnunin hefur með aðkomu
Evrópska fjárfestingarbankans
tryggt sér möguleika til þess að
veita allt að 90% lán til kaupa
á bújörðum sem auðvitað getur
skipt nýliðun í bændastéttinni afar
miklu máli.
Ég er viss um að lífleg
umræða mun skapast um bæði
þessi framangreindu mál á þinginu
og sömuleiðis t.d. um gullhúðun
EES-reglugerða sem Margrét
Einarsdóttir, lagaprófessor við
Háskólann í Reykjavík, mun
fjalla um. Erindi Sveins
Margeirssonar, framkvæmdastjóra
nýsköpunar og loftslagsmála hjá
sjávarútvegsfyrirtækinu Brimi,
um tækifærin í endurnýjanlegum
auðlindum og upplýsingagjöf
um sjálfbæra þróun, verður
ábyggilega ekki síður athyglisvert.
Fjöldi góðra gesta, sem of
langt mál er að telja upp hér,
mun svo taka þátt í pallborðs-
umræðum sem eflaust verða
líflegar. Fróðlegt verður svo
að fylgjast með sófaspjallinu
svokallaða við matvælaráðherra,
Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
Í samskiptum okkar síðustu
vikur og mánuði hefur hún bæði
sýnt málefnum landbúnaðarins
mikinn áhuga og skilning. Við
höfum rætt um mikilvægi þess
að nýir búvörusamningar muni
í senn verða til þess að eggja
íslenska bændur til dáða og
tryggja neytendum óaðfinnanlegt
aðgengi að fyrsta flokks matvæla-
framboði.
Markmiðin eru metnaðarfull
og áskorandi og vonandi mun
niðurstaða samningaviðræðnanna
endurspegla þennan sameiginlega
vilja.
Íslenskt samfélag er í
bílstjórasætinu þegar umgjörð
íslenska landbúnaðarins er annars
vegar. Það er sem betur fer sinn
eigin gæfu smiður. Við erum
vissulega ekki óháð aðstæðum í
alþjóðasamfélaginu, stríðsátökum,
náttúruhamförum, hlýnun jarðar
o.s.frv. Í aðalatriðum ráðum
við samt för þegar nýting hinna
íslensku náttúruauðlinda okkar,
ræktun, framleiðsla matvæla
og gæði þeirra er annars vegar.
Andhverfa þess að hafa örlögin
í sínum eigin höndum sést t.d. í
þeim ógnunum sem felast í súrnun
og mengun sjávar fyrir auðlindir
hinna alþjóðlegu hafsvæða. Þar
ráðum við auðvitað engu í stóra
dæminu og heldur engu um ógnir
í Atlantshafinu eða íslenskri
landhelgi. Sjórinn hvorki þekkir
né virðir nokkur landamæri.
Önnur mikilvæg útflutnings-
verðmæti okkar Íslendinga eru
einnig háð ytri aðstæðum sem við
höfum litla sem enga stjórn á sjálf.
Tískustraumar ferðamennskunnar
geta t.d. eflaust verið fallvaltir
enda þótt hreinleiki og fegurð
íslenskrar náttúru glati vonandi
aldrei aðdráttarafli sínu. En það
eru einmitt duttlungar þeirrar
sömu móður jarðar, t.d. með
eldsumbrotum sínum, sem
geta nánast á einni nóttu orðið
alvarleg hindrun fyrir móttöku
milljóna ferðamanna á hverju
ári eða dregið úr kjarki þeirra
og áhuga á að sækja heim þessa
óútreiknanlegu eyju elds og ísa.
Á þessum þáttum höfum við enga
stjórn frekar en t.d. hinum miklu
sveiflum í heimsmarkaðsverði á
áli sem ráða svo miklu um tekjur
okkar af raforkuframleiðslunni.
Eitt breytist samt ekki og
ávallt er hægt að ganga að því
vísu: Fólk þarf að borða. Og
væntanlega mun það heldur ekki
breytast að landsmönnum haldi
áfram að fjölga. Til viðbótar munu
kröfurnar um gæði matvælanna
og heilbrigðan uppruna þeirra
verða stöðugt fyrirferðarmeiri. Þar
getur íslenskur landbúnaður staðið
hnarreistur í fylkingarbrjósti,
jafnt hér á heimamarkaði sem
annars staðar. Þess vegna verður
umræðan á degi landbúnaðarins án
efa bæði fróðleg og skemmtileg.
Trausti Hjálmarsson, formaður
Bændasamtaka Íslands.
Pistill formanns
Eitt breytist
samt ekki og
ávallt er hægt
að ganga að því
vísu: Fólk þarf
að borða ...
Trausti
Hjálmarsson.
13. nóvember- Vestfirðir
Kl. 12:00 - Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði
Kl. 17:00 - Félagsheimilið Patreksfirði
8. nóvember
Kl. 12:00 - Félagsheimilið Tjarnarlundur, Búðardalur
4. nóvember
Kl. 12:00 - Félagsheimilið Félagslundur, Flóahreppur
Kl. 16:00 - Félagsheimilið Hvoll, Hvolsvelli
5. nóvember
Kl. 12:00 - Flatey á Mýrum
Kl. 20:00 - Barnaskólinn á Eiðum
6. nóvember
Kl. 12:00 - Öxi, Kópaskeri
Kl. 17:00 - Félagsheimilið Breiðamýri, Þingeyjarsveit
Kl. 16:00 - Miðgarður, Varmahlíð
7. nóvember
Kl. 12:00 - Hlíðarbær, Akureyri
Kl. 20:00 - Félagsheimilið Þinghamar, Borgarbyggð
Landbúnaður hefur þá sérstöðu
að vera frumframleiðandi, hvort
sem um ræðir matvæli, timbur
eða önnur hráefni sem ræktuð eru
á landi.
Umræðan um
loftslagsaðgerðir
í landbúnaði þarf
að taka mið af
þeirri sérstöðu. Í
umsögn Bænda-
samtakanna um
nýja og uppfærða
aðgerðaáætlun
stjórnvalda í
loftslagsmálum
er lögð höfuðáhersla á að
kvaðir, markmið og aðgerðir í
loftslagsmálum landbúnaðarins
byggi á og taki mið af fæðuöryggi,
matvælaöryggi og sjálfbærum
rekstri býla. Þessar áherslur
tengjast beint skyldum Íslands í
alþjóðamálum og stefnumörkun
stjórnvalda, svo sem stefnum um
matvæli, landbúnað, þjóðaröryggi
og byggðaáætlun.
Bændasamtökin horfa þess
vegna jákvæðum augum á aðgerða-
áætlun stjórnvalda í loftslags-
málum. Sú sviðsmynd sem margir
aðilar hafa dregið upp af áætluninni
um að henni fylgi eintómur
kostnaður og enginn ávinningur er
ekki í samræmi við mat samtakanna.
Flestar aðgerðir í aðgerðaáætlun
stjórnvalda sem snúa að landbúnaði
hafa jákvæð langtímaáhrif á afkomu
og jákvæð efnahagsleg áhrif þó
stofnkostnaður geti verið hindrun.
Í umsögn Bændasamtakanna
kemur fram að íslenskir bændur eiga
í reynslubankanum bæði aðgerðir
og útfærslur í stuðningskerfi
landbúnaðar með jákvæðum hvötum
sem hafa skilað góðum árangri við
innleiðingu nýrra aðferða. Öflugt
skýrsluhald og ráðgjafarþjónusta
í landbúnaði er líklega eitt besta
dæmið um innleiðingu á aðferðum
sem hafa skilað mikilli þekkingu,
framförum og bættri afkomu
bænda. Þessar aðgerðir hafa
einnig skilað gríðarlegum árangri
í loftslagsmálum en frá árinu 2005
hefur náðst tæplega 30% samdráttur
á hverja framleidda einingu í
íslenskum landbúnaði. Þannig má
í reynd fullyrða að með sterkum
grunnstoðum og jákvæðum hvötum
sé hægt að halda áfram á sömu braut
árangurs.
Af því mikið hefur verið talað
um umsögn Viðskiptaráðs um
aðgerðaáætlunina þá verður að
nefna að ráðið lagði það mat á
aðgerðir í landbúnaði að nánast
engar þeirra hefðu jákvæð áhrif.
Þetta mat ráðsins byggir á
einhverjum misskilningi. Sem
dæmi má nefna er innleiðing á
umhverfisbókhaldi landbúnaðarins
aðgerð sem snýst fyrst og fremst
um að nýta þær upplýsingar
sem bændur eru þegar að skrá í
skýrsluhaldið. Bændur eru alvanir
að skrá upplýsingar í skýrsluhaldið
og vinna með þau gögn sem
bústjórnartæki. Kynbótastarfið
byggir sem dæmi á þess háttar vinnu.
Umhverfisbókhald, loftslagsbókhald
eða hvaða nöfnum sem það er nefnt
er í grunninn bara tól til að fylgjast
með notkun á aðföngum, afurðasemi
á búum og tengslum þessara þátta
við kolefnislosun. Samhliða gefa
slík tól möguleika á að bændur
geti borið sig saman við önnur
sambærileg bú og þannig sett sér
markmið í sínum rekstri. Í þessu
samhengi verður að hafa í huga að
bætt afurðasemi og minni notkun
aðfanga er í báðum tilfellum jákvæð
stærð í afkomu bænda.
Þessa dagana vinna Bænda-
samtökin að útgáfu á Loftslagsvegvísi
landbúnaðarins þar sem nánar verður
fjallað um einstakar aðgerðir í
loftslagsmálum og tengingu þeirra
við aðgerðaáætlun stjórnvalda.
Grunnstefið er að við höldum áfram
á sömu braut árangurs, styrkjum
grunninn, innleiðum hratt nýjar
sannprófaðar aðgerðir og nýtum
til þess jákvæða hvata. Með allt
þetta að leiðarljósi mun íslenskur
landbúnaður vera vel fær um að
halda áfram að leggja sitt af mörkum
í loftslagsmálum og framleiða
loftslagsvænstu afurðir heims.
Höfundur er sjálfbærni-
sérfræðingur hjá BÍ.
Hilmar Vilberg
Gylfason.
Eru loftslagsmál
bara kostnaður?
OG VINNUM ÚR ÞEIM
LAUSNIR
TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is
Í loftslagsvegvísi landbúnaðarins verður
nánar fjallað um einstakar aðgerðir í
loftslagsmálum og tengingu þeirra við
aðgerðaáætlun stjórnvalda. Mynd / sp