Bændablaðið - 10.10.2024, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 10.10.2024, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Ráðstefna evrópskra frjótækna á Selfossi Árið 1981 voru samtök fag- og stéttarfélaga frjótækna í Evrópu stofnuð í Strasbourg í Frakklandi. Samtökin nefnast Permanent Commission of European Insemination and Animal Breeding Technicians og eru aðildarlönd samtakanna tólf talsins, en Ísland bættist í hópinn árið 2022. S a m t ö k i n halda ráðstefnu sína á tveggja ára fresti í einu af aðildarlöndunum og dvöldu gestir hennar hér á landi frá 11.– 16. september s l . H a f ð i Frjótæknafélag Íslands veg og vanda af skipulagningu ráðstefnunnar og dagskrá tengda henni. Gestir að þessu sinni voru 36 talsins frá níu löndum; frjótæknar, rekstraraðilar sæðinga, sérfræðingar í fósturvísaflutningum og ráðunautar í kynbótastarfi. Ýmsar nýjungar kynntar Sjálf ráðstefnan fór fram laugardaginn 15. september sl. á Hótel Selfossi. Þar kynnti hvert land stöðu á gangi mála þegar kemur að þróun sæðingastarfsemi og ræktunarstarfi. Einnig var farið yfir menntunarmál, kjaramál og kynntar ýmsar nýjungar. Af nýjungum má nefna að FABA í Finnlandi kynnti nýja tækni í notkun hitamyndavéla til að greina vandamál varðandi klaufhirðu kúa áður en þau vandamál verða sýnileg. Viking Genetics kynnti nýja tækni sem kallast CFIT (e. Cattle Feed Intake Technology), en þar er notast við þrívíddarmyndavélar og gervigreind til að bera kennsl á kýrnar, meta þyngd og holdastig einstakra gripa, ásamt því að mæla hversu mikið þær éta. Greiningar bera kennsl á hversu skilvirkar kýr eru í að breyta fóðri í mjólk og eru grundvöllur að kynbótaeinkunn fyrir eiginleikann (e. Saved Feed Index); því hærri einkunn þeim mun skilvirkari er kýrin að breyta fóðri í afurðir og þar með hagkvæmari í framleiðslu. Fyrirtækið IMV, sem framleiðir margs konar búnað og rekstrarvörur fyrir sæðingar, kynnti sæðingatækið AlphaVision sem útbúið er myndavél og gæti komið að góðu gagni við verklega kennslu í kúasæðingum. Fulltrúi Íslands var með kynningu á sæðingaappi sem er í þróun í samstarfi Búnaðarsambandanna, RML og finnska fyrirtækisins MTech og er það nú í prófun hjá frjótæknum hér á landi. Það hefur hlotið nafnið FANG. Vonir standa til að appið komi að mestu til með að taka við af símsvörum og símatímum í framtíðinni. Í appinu koma bændur til með að panta sæðingar og aðra þjónustu frjótækna. Frjótæknar skrá sæðingarnar og fangskoðanir jafnóðum í gegnum appið eftir að verki lýkur á hverjum bæ, jafnframt sem möguleiki er að senda bændum smáskilaboð í upphafi dags um hvenær frjótæknirinn er væntanlegur heim á bæ þann daginn. Góðar móttökur hvarvetna Auk þess faglega var farið með með hópinn vítt og breitt um Suðurland. Skoðaðar voru helstu perlur íslenskrar náttúru, þar á meðal Gullfoss, Geysir, Seljalandsfoss og Skógafoss. Einnig var farið í kynningu á starfsemi MS á Selfossi ásamt góðum heimsóknum á mektarbýlin Gunnbjarnarholt og Þorvaldseyri. Alls staðar var mjög vel tekið á móti hópnum og fékk hann góða kynningu á starfsemi þessara aðila. Einnig bauð Kynbótastöð Suðurlands hópnum í mat að Stóra-Ármóti, þar sem Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur hjá RML, mætti með góða kynningu á íslenska kúastofninum ásamt gangi mála í mjólkurframleiðslunni á Íslandi. Íslenska náttúran gleður Ráðstefnugestir voru einróma um að Íslandsferðin hefði heppnast einstaklega vel og verið fróðleg og skemmtileg. Erlend tengsl af þessu tagi eru faglegur styrkur fyrir innlenda frjótækna, auk þess að víkka sjóndeildarhring stéttarinnar. Bændur og fyrirtæki sem tóku á móti hópnum fá miklar þakkir fyrir þeirra framlag, sem og styrktaraðilar ráðstefnunnar, sem eru Nautastöðin á Hesti, Búnaðarsamband Suðurlands, Búnaðarsamband Eyjafjarðar og Auðhumla svf. en án þeirra myndarlega framlags hefði þessi viðburður vart orðið að veruleika. Næsta ráðstefna samtakanna verður svo haldin í Þýskalandi árið 2026. Höfundur er formaður Félags frjótækna. Andri Már Sigurðsson. Hópurinn við fjósið í Gunnbjarnarholti. Myndir / Aðsendar Páll Eggert Ólafsson á Þorvaldseyri leiðir ráðstefnugesti í allan sannleika um búskapinn. Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) hyggst endurvekja Íslandsmeistaramótið í rúningi í tengslum við Haustfagnað félagsins sem er haldinn árlega um veturnætur. Mótið fer einmitt fram fyrsta vetrardag kl. 13, l a u g a r d a g i n n 26. október, í reið- höllinni í Búðar- dal. Mótið var haldið síðast árið 2018 þegar Jón Bjarnason frá Skipholti 3 í Hrunamannahreppi bar sigur úr býtum. Var það í ellefta skiptið sem Íslandsmeistari í rúningi var krýndur en mótið hafði þá verið haldið óslitið í Dölunum frá árinu 2008. Það er okkur sönn ánægja að koma mótinu á laggirnar á ný eftir nokkurra ára hlé. Það stóð til að mótið færi fram 2020 á degi sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu en kórónuveirufaraldurinn kom í veg fyrir það á sínum tíma og mótið fór í smádvala. Í millitíðinni hefur komið ný og öflug kynslóð rúningsmanna og -kvenna sem hefur nú tækifæri til að bera saman bækur sínar og keppa á mótinu. Tilgangurinn er jú sá að gera rúningi hátt undir höfði sem eins konar íþrótt, sem krefst mikillar tækni og styrks til að ná góðum árangri. Gæði ullar byggir að miklu leyti á fagmennsku og góðum vinnubrögðum við rúning og því tilvalið um leið að miðla slíku með viðburði sem þessum. Það er feiknagaman að fylgjast með flottum rúningi. Skráning á mótið fer fram á netfangið steinthor99@gmail.com eða í síma 858-1999 til og með þriðjudagsins 22. október. Á Haustfagnaði FSD eru einnig lambhrútasýningar og á þeim jafnvel gripir boðnir til sölu, veitt eru verðlaun fyrir góðan árangur í ræktunarstarfinu auk þess sem félagið stendur um þessar mundir fyrir ljósmyndasamkeppni með þemað „Sauðkindin á óvæntum stöðum“. Allt þetta verður hægt að finna í reiðhöllinni í Búðardal fyrsta vetrardag ásamt markaðnum „Matur er mannsins megin“, þar sem matur úr héraðinu verður í fyrirrúmi ásamt handverki. Rúsínan í pylsuendanum er svo sviðaveislan að Laugum í Sælingsdal í samvinnu við Dalahótel. Þar verða á boðstólum svið, reykt og söltuð, með tilheyrandi og góð skemmtun undir stjórn Gísla Einarssonar, auk þess sem Tindatríóið kemur fram og hagyrðingar munu fara um víðan völl. Sauðfjárbændur í Dölum hlakka því innilega til helgarinnar, sem er sannkölluð uppskeruhátíð og eru öll önnur áhugasöm um sauðfé, rúning, mat og eða mannfögnuði hvött til að mæta og eiga góða stund. Höfundur er formaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu. Íslandsmót í rúningi Steinþór Logi Arnarsson. HVERNIG VÆRI AÐ FARA FREKAR INN UM GLUGGANN? Liftroller er lausn sem auðveldar allan flutning á byggingarefni á færibandi inn og út af verkstað. Þannig minnkar álagið á starfsfólki. www.byko.is/leiga | leiga@byko.is | 515 4020 LEIGUVARA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.