Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024
Ráðstefna evrópskra
frjótækna á Selfossi
Árið 1981 voru samtök fag- og
stéttarfélaga frjótækna í Evrópu
stofnuð í Strasbourg í Frakklandi.
Samtökin nefnast Permanent
Commission of European
Insemination and Animal Breeding
Technicians og eru aðildarlönd
samtakanna tólf talsins, en Ísland
bættist í hópinn árið 2022.
S a m t ö k i n
halda ráðstefnu
sína á tveggja
ára fresti í einu af
aðildarlöndunum
og dvöldu gestir
hennar hér á
landi frá 11.–
16. september
s l . H a f ð i
Frjótæknafélag
Íslands veg og vanda af
skipulagningu ráðstefnunnar og
dagskrá tengda henni. Gestir að þessu
sinni voru 36 talsins frá níu löndum;
frjótæknar, rekstraraðilar sæðinga,
sérfræðingar í fósturvísaflutningum
og ráðunautar í kynbótastarfi.
Ýmsar nýjungar kynntar
Sjálf ráðstefnan fór fram laugardaginn
15. september sl. á Hótel Selfossi.
Þar kynnti hvert land stöðu á
gangi mála þegar kemur að þróun
sæðingastarfsemi og ræktunarstarfi.
Einnig var farið yfir menntunarmál,
kjaramál og kynntar ýmsar nýjungar.
Af nýjungum má nefna að FABA í
Finnlandi kynnti nýja tækni í notkun
hitamyndavéla til að greina vandamál
varðandi klaufhirðu kúa áður en þau
vandamál verða sýnileg. Viking
Genetics kynnti nýja tækni sem
kallast CFIT (e. Cattle Feed Intake
Technology), en þar er notast við
þrívíddarmyndavélar og gervigreind
til að bera kennsl á kýrnar, meta
þyngd og holdastig einstakra gripa,
ásamt því að mæla hversu mikið
þær éta. Greiningar bera kennsl á
hversu skilvirkar kýr eru í að breyta
fóðri í mjólk og eru grundvöllur að
kynbótaeinkunn fyrir eiginleikann
(e. Saved Feed Index); því hærri
einkunn þeim mun skilvirkari er
kýrin að breyta fóðri í afurðir og
þar með hagkvæmari í framleiðslu.
Fyrirtækið IMV, sem framleiðir
margs konar búnað og rekstrarvörur
fyrir sæðingar, kynnti sæðingatækið
AlphaVision sem útbúið er myndavél
og gæti komið að góðu gagni við
verklega kennslu í kúasæðingum.
Fulltrúi Íslands var með kynningu
á sæðingaappi sem er í þróun í
samstarfi Búnaðarsambandanna,
RML og finnska fyrirtækisins
MTech og er það nú í prófun hjá
frjótæknum hér á landi. Það hefur
hlotið nafnið FANG. Vonir standa til
að appið komi að mestu til með að
taka við af símsvörum og símatímum
í framtíðinni. Í appinu koma bændur
til með að panta sæðingar og aðra
þjónustu frjótækna. Frjótæknar
skrá sæðingarnar og fangskoðanir
jafnóðum í gegnum appið eftir að
verki lýkur á hverjum bæ, jafnframt
sem möguleiki er að senda bændum
smáskilaboð í upphafi dags um
hvenær frjótæknirinn er væntanlegur
heim á bæ þann daginn.
Góðar móttökur hvarvetna
Auk þess faglega var farið með
með hópinn vítt og breitt um
Suðurland. Skoðaðar voru helstu
perlur íslenskrar náttúru, þar á meðal
Gullfoss, Geysir, Seljalandsfoss
og Skógafoss. Einnig var farið í
kynningu á starfsemi MS á Selfossi
ásamt góðum heimsóknum á
mektarbýlin Gunnbjarnarholt og
Þorvaldseyri. Alls staðar var mjög
vel tekið á móti hópnum og fékk hann
góða kynningu á starfsemi þessara
aðila. Einnig bauð Kynbótastöð
Suðurlands hópnum í mat að
Stóra-Ármóti, þar sem Guðmundur
Jóhannesson, ráðunautur hjá RML,
mætti með góða kynningu á íslenska
kúastofninum ásamt gangi mála í
mjólkurframleiðslunni á Íslandi.
Íslenska náttúran gleður
Ráðstefnugestir voru einróma um
að Íslandsferðin hefði heppnast
einstaklega vel og verið fróðleg
og skemmtileg. Erlend tengsl af
þessu tagi eru faglegur styrkur fyrir
innlenda frjótækna, auk þess að
víkka sjóndeildarhring stéttarinnar.
Bændur og fyrirtæki sem tóku á
móti hópnum fá miklar þakkir fyrir
þeirra framlag, sem og styrktaraðilar
ráðstefnunnar, sem eru Nautastöðin á
Hesti, Búnaðarsamband Suðurlands,
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
og Auðhumla svf. en án þeirra
myndarlega framlags hefði þessi
viðburður vart orðið að veruleika.
Næsta ráðstefna samtakanna verður
svo haldin í Þýskalandi árið 2026.
Höfundur er formaður
Félags frjótækna.
Andri Már
Sigurðsson.
Hópurinn við fjósið í Gunnbjarnarholti. Myndir / Aðsendar
Páll Eggert Ólafsson á Þorvaldseyri leiðir ráðstefnugesti í allan sannleika
um búskapinn.
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu
(FSD) hyggst endurvekja
Íslandsmeistaramótið í rúningi
í tengslum við Haustfagnað
félagsins sem er haldinn árlega
um veturnætur.
Mótið fer
einmitt fram fyrsta
vetrardag kl. 13,
l a u g a r d a g i n n
26. október, í reið-
höllinni í Búðar-
dal. Mótið var
haldið síðast
árið 2018 þegar
Jón Bjarnason
frá Skipholti 3
í Hrunamannahreppi bar sigur úr
býtum. Var það í ellefta skiptið sem
Íslandsmeistari í rúningi var krýndur
en mótið hafði þá verið haldið óslitið
í Dölunum frá árinu 2008.
Það er okkur sönn ánægja að
koma mótinu á laggirnar á ný
eftir nokkurra ára hlé. Það stóð til
að mótið færi fram 2020 á degi
sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu
en kórónuveirufaraldurinn kom í veg
fyrir það á sínum tíma og mótið fór í
smádvala. Í millitíðinni hefur komið
ný og öflug kynslóð rúningsmanna
og -kvenna sem hefur nú tækifæri
til að bera saman bækur sínar og
keppa á mótinu. Tilgangurinn er jú
sá að gera rúningi hátt undir höfði
sem eins konar íþrótt, sem krefst
mikillar tækni og styrks til að ná
góðum árangri. Gæði ullar byggir
að miklu leyti á fagmennsku og
góðum vinnubrögðum við rúning
og því tilvalið um leið að miðla
slíku með viðburði sem þessum.
Það er feiknagaman að fylgjast með
flottum rúningi.
Skráning á mótið fer fram á
netfangið steinthor99@gmail.com
eða í síma 858-1999 til og með
þriðjudagsins 22. október.
Á Haustfagnaði FSD eru einnig
lambhrútasýningar og á þeim
jafnvel gripir boðnir til sölu, veitt
eru verðlaun fyrir góðan árangur
í ræktunarstarfinu auk þess sem
félagið stendur um þessar mundir
fyrir ljósmyndasamkeppni með
þemað „Sauðkindin á óvæntum
stöðum“. Allt þetta verður hægt
að finna í reiðhöllinni í Búðardal
fyrsta vetrardag ásamt markaðnum
„Matur er mannsins megin“, þar
sem matur úr héraðinu verður í
fyrirrúmi ásamt handverki. Rúsínan
í pylsuendanum er svo sviðaveislan
að Laugum í Sælingsdal í samvinnu
við Dalahótel. Þar verða á
boðstólum svið, reykt og söltuð,
með tilheyrandi og góð skemmtun
undir stjórn Gísla Einarssonar, auk
þess sem Tindatríóið kemur fram
og hagyrðingar munu fara um víðan
völl.
Sauðfjárbændur í Dölum hlakka
því innilega til helgarinnar, sem er
sannkölluð uppskeruhátíð og eru öll
önnur áhugasöm um sauðfé, rúning,
mat og eða mannfögnuði hvött til að
mæta og eiga góða stund.
Höfundur er formaður Félags
sauðfjárbænda í Dalasýslu.
Íslandsmót í rúningi
Steinþór Logi
Arnarsson.
HVERNIG VÆRI AÐ
FARA FREKAR INN
UM GLUGGANN?
Liftroller er lausn sem auðveldar allan flutning á byggingarefni á færibandi
inn og út af verkstað. Þannig minnkar álagið á starfsfólki.
www.byko.is/leiga | leiga@byko.is | 515 4020
LEIGUVARA