Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 51

Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 51
51Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 REYKJAVÍK GARÐABÆR 590 5100 klettur.is Bókaðu dekkjaskiptin tímanlega í vetur HAFNARFJÖRÐUR en 11% eiga allar jarðirnar. Þetta er mjög mikil eignasamþjöppun, bæði miðað við Ísland í dag en líka önnur lönd á þessum tíma,“ segir hann. Þéttbýlissvæði allvíða Guðmundur segir ýmislegt hafa komið á óvart eftir því sem línur skýrðust á vinnslutíma bókarinnar. Til dæmis hin gríðarmikla samþjöppun eigna. Einnig að þéttbýli hafi verið talsvert á Íslandi á þessum tíma. „Við ímyndum okkur að Ísland í gamla daga, í bændasamfélaginu svokallaða, hafi almenna reglan verið dreifð byggð stakra býla. En í ljós kemur að allmörg svæði voru þéttbýl, aðallega vestanlands. Á Snæfellsnesi var stærsta þéttbýlið á landinu, þar voru hátt í 500 manns búsett á nokkrum lögbýlum á Hellissandi og Rifi. Einnig var þéttbýlt á Stapa og fleiri jörðum þar um slóðir og sömuleiðis á Seltjarnarnesi. Það voru þannig nokkrir staðir á landinu þar sem fólk skipti hundruðum. Íslendingar hafa þó ekki kallað þessi þéttbýli bæi af því að þetta er allt innan lögbýla, heldur fremur hverfi,“ segir hann enn fremur. Konur áttu 36% prósent jarðeigna Þá hafi verið forvitnilegt að sjá stöðu kvenna varðandi eignir. Konur hafi yfirleitt ekki staðið fyrir búi nema þær væru ekkjur eða ógiftar. Aðeins 11% kvenna hafi verið húsráðendur en engu að síður hafi konur átt talsverðar eignir. Erfðalög voru á þann veg að synir erfðu tvo þriðju en dætur þriðjung. „Konur áttu um 36% allra jarðeigna. Þær sem voru efnum búnar létu eiginmanninn um fjársýslu búsins og forsvar. Konan hafði ekki fjárræði og ákvæði voru um hversu hún mátti eyða miklu af eignum búsins á ári. Kona gat þannig átt eignir en ekki ráðstafað þeim að vild,“ útskýrir Guðmundur. Einstakt á alþjóðavísu Um það hvort einhverjar fyrri alda hafi verið kortlagðar á sambærilegan hátt segir Guðmundur svo ekki vera og kveður verkefnið einstakt. „Þetta er einstakt og er bókin ein nákvæmasta lýsing sem gerð hefur verið á lífsháttum í gamla bændasamfélaginu fyrir tíma þjóðfélagsbreytinganna á 19. og 20. öldinni. Ég held að margar þjóðir myndu öfunda okkur af þessum upplýsingum. Við höfum nákvæmari upplýsingar um svo marga hluti í samfélaginu sem ekki eru fyrir hendi frá þessum tíma í nálægum löndum. Til dæmis var ekki tekið manntal í Danmörku fyrr en 1769, en það var ekki með nöfnum,“ segir hann. Flókið og yfirgripsmikið Guðmundur segir þetta flóknasta sagnfræðiverkefni sem hann hafi unnið að um sína daga. Það kostaði mikla yfirlegu að smíða gagnagrunninn en einnig að tengja á milli manntalsins og jarðabókanna. Óskar Guðlaugsson og Ólöf Garðarsdóttir eiga mestan heiðurinn af því. Kvikfjártalið sé líka einstakt, að hafa skrá yfir allar skepnur á bújörðum og þar er jafnvel ástandi dýranna lýst. Um 37% kvikfjárskýrslna hafa ekki varðveist og eru jarðabók Múlasýslna og Skaftafellssýslna glataðar, eyðilögðust líklega í brunanum mikla í Kaupmannahöfn 1728 þegar nokkur hluti af safni Árna Magnússonar brann. Höfundarnir höfðu þó sínar aðferðir til að afla gagna úr öðrum áttum til að fylla í eyðurnar. Mörg mannár liggja að baki bókinni. Sjö hafa unnið að þessu viðamikla verkefni sem staðið hefur með hléum frá árinu 2017. Eru það, auk Guðmundar, Sigríðar, Óskars og Ólafar, þau Árni D. Júlíusson, Björgvin Sigurðsson og Ingibjörg Jónsdóttir. Myndaritstjóri er Inga Lára Baldvinsdóttir. Útgefandi er sem fyrr segir Sögufélag. Bókin er 440 bls. 1703.is Útbúinn hefur verið vefur sem ber heitið 1703.is og var opnaður seint í september. „Vefurinn er öllum opinn núna en er enn í vinnslu. Hver og einn getur opnað þennan vef og flett upp í honum Jóni og Gunnu árið 1703, hvar þau eru og hversu margir eru á heimilinu, hversu margar skepnur, hver dýrleiki bæjarins er og svo framvegis. Í vefnum er kortasjá þar sem sjá má öll lögbýli í landinu árið 1703. Við vonum að sem flestir skoði og njóti. Vonandi kviknar áhugi einhverra á að skoða sína sögu og heimaslóðir, forfeður og formæður. Síðan er í framtíðinni áformað að tengja yngri manntöl og jafnvel jarðatöl við þennan stóra gagnagrunn þannig að við höfum ekki bara einn punkt í sögunni heldur getum skoðað þróunina í tíma,“ segir Guðmundur Jónsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.