Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 57
57Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024
Setja skal inn tölur frá 1-9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Erfinginn:
Þórdís Laufey
Tvö Íslandsmót í bridds fóru fram um
síðustu helgi. Annars vegar var keppt í
sveitakeppni eldri spilara og hins vegar
tvímenningi í sama aldursflokki.
Tvímenninginn unnu Björn Eysteinsson
og Guðmundur Sv.
Hermannsson.
Sveitakeppnina vann sveit
Gauksins, þau Aðalsteinn
Jörgensen, Sverrir Gaukur
Ármannsson, Svala
Pálsdóttir og Rosemary
Shaw. Aðalsteinn og Sverrir
unnu einnig bötlerinn.
Í flokki 70 ára og eldri
vann ML-sveitin gullið líkt
og um langt árabil. Liðið er skipað gömlum
nemendum úr ML og tveimur fyrrverandi
skólameisturum svo nokkuð sé nefnt!
Í lokaumferðinni reyndu liðsmenn Gauksins,
þær Svala og Rosemary, að vinna fjögur hjörtu,
skásta geimið á 4-3 fittið.
Svala spilaði spilið og eftir að vörnin tók þrjá
fyrstu slagina í tígli var skipt yfir í spaða. Svala
hugsaði sig aðeins um en setti svo ás. Svínaði
laufi og það gekk. Nú þurfti ekki annað en að
trompið lægi 3-3 til að 420 stig lægju á borðinu.
4-2 legan þýddi þó að spilið fór niður.
Sagnir afhjúpuðu veikleika í tígli og 4 hjörtu
er mun skárra geim en 3 grönd, sem væru nánast
vonlaus jafnvel í 4-3 legunni. Þótt báðar svörtu
svíningarnar myndu heppnast sem þær gera
ekki.
Þeir sem spila hálitageim á 4-3 fitt í
sambærilegum höndum eru iðulega lengra
komnir. Byrjendur hafa vonandi gagn að svona
pælingum.
Umsjón: Björn Þorláksson,
bjornthorlaksson@gmail.com
ML-sveitin ósigrandi í keppni eldri borgara
Björn
Þorláksson.
Tómas Veigar Sigurðarson, nemi við
Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, tók
þátt í opna Íslandsmótinu í skák á Akureyri
árið 2019.
Á mótinu tefldu nokkrir
erlendir skákmenn, bæði
stórmeistarar og keppendur
af öllum styrkleikum. Tómas
hafði svart gegn Þjóðverja
nokkrum að nafni Ansgar
Barthel sem þá var nokkuð
stigahærri en Tómas, en það
kom ekki að sök.
Íslandsmót skákfélaga
Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fór fram í
Rimaskóla í Reykjavík helgina 4.–6. október.
Skákfélög af öllu landinu taka þátt í mótinu
sem er með deildarskiptu fyrirkomulagi, ekki
ósvipað og tíðkast í boltaíþróttum.
Sterkustu liðin eru í Úrvalsdeild og svo
eru 4 aðrar deildir. Alls tóku þátt um 450
skákmenn þátt í mótinu á öllum aldri og
er þetta einn af hápunktunum í íslensku
skákstarfi. Fjallað verður um það mót í næsta
skákpistli.
Ef lesendur Bændablaðsins luma á
áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.
Umsjón: Hermann Aðalsteinsson,
lyngbrekku@simnet.is
Svartur á leik. 33…..Df5 skák…og hvítur gafst upp.
Það er sama hvert hvíti kóngurinn fer. Ef hann fer á
h2 kemur skák með riddara á f3 og drottning hvíts
fellur í næsta leik. Ef hann fer á g3 eða g2 kemur
skák frá hrók á g1. Hvítur getur vissulega drepið
hrókinn með drottningu en þá fellur hún í staðinn
og eftirleikurinn verður auðveldur fyrir svartan
enda þá með drottningu og riddara gegn hrók.
Öruggur sigur án vandræða
Hermann
Aðalsteinsson.
Nafn: Þórdís Laufey Ragnarsdóttir.
Aldur: 4 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Akureyri.
Skemmtilegast í skólanum: Leika.
Áhugamál: Perla, lita og spila.
Tómstundaiðkun:
Ég æfi dans.
Uppáhaldsdýrið:
Máttur og Vinur,
hestarnir hans afa
Jonna.
Uppáhaldsmatur:
Makkarónugrautur.
Uppáhaldslag:
Lagið um það
sem er bannað.
Uppáhaldslitur:
Bleikur.
Uppáhaldsmynd:
Sing og Madagascar.
Fyrsta minningin:
Ég veit ekki.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
hefur gert?: Fara í stóra flugvél til
útlanda.
Hvað langar þig að verða þegar þú
verður stór?: Vinna á sjúkrahúsi og
flugkona.
Létt Miðlungs Þung Þyngst
Viltu taka þátt ? Hafðu samband.
sigrunpeturs@bondi.is
Tómas Veigar Sigurðarson.
SUDOKUÞRAUTIR
HUGARÍÞRÓTTIR
Norður
AQJ75
A765
J84
5
Vestur
1064
84
AKQ109
842
Austur
K932
10932
53
KJ7
Suður
8
KQJ
762
AQ10963
Vestur gefur/enginn á hættu:
Sigursveit Gauksins. Gunnar Björn Helgason
veitti verðlaunin.
ML-sveitin sýnir og sannar að aldur er engin fyrirstaða er kemur að keppnisbridds. Mynd / AJ