Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Side 4
2
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
Pétur Steinar jóhannsson
Lesendur góðir!
Frá síðasta Sjómannadegi hefur
margt breyst til hins betra í mál-
efnum sjávarútvegsins hér í Snæ-
fellsbæ. Nýir og öflugir bátar hafa
bæst í flota okkar og stærri bátar
eru að koma í stað nokkurra
þeirra sem fyrir eru. Þá var á síð-
asta ári reist stórt fiskvinnsluhús í
Olafsvík og annað hús er í smíð-
um í Rifi. I maí sl. var skrifað
undir stofnun á Rannsóknarsetri
um lífríki sjávar í Breiðafirði sem
staðsett verður í Ólafsvík. Engin
vafi er að þessi starfsemi mun
auka mjög þekkingu manna á líf-
ríkinu í sjónum og sjómenn
munu væntanlega koma þar mikið
að máli með sinni reynslu. Að
þessu rannsóknarsetri koma hags-
munaaðilar í sjávarútvegi á Snæ-
fellsnesi og víðar. Þó margt gott sé
framundan eru þó blikur á lofti
þar sem Hafró hefur boðað skerð-
ingu á aflaheimildum á næsta fisk-
veiðiári. Vonandi er þó að því
verði ekki.
Á sl. ári voru bundin inn þau
Sjómannadagsblöð Snæfellsbæjar
sem út hafa komið og eru þau í
tveimur bindum. I fyrra bindi eru
blöð frá 1987 til 1999 og í seinna
bindi eru blöð frá 2000 til og með
2005. Þetta eru mjög eigulegar
bækur og afar gott að hafa þennan
fróðleik sem í þeim er á einum
stað. Eg vil hér með þakka Skúla
Alexanderssyni fyrir mjög góðan
stuðning við þetta verkefni, en
það var Páll Halldórsson þyrlu-
flugmaður sem vann þetta verk.
I þessu blaði sem þið nú sjáið er
byrjað á hugvekju eftir sr. Magnús
Magnússon í Ólafsvík. Viðtal er
við Sveinbjörn Benediktsson fyrr-
verandi póst- og símstöðvarstjóra
á Hellissandi, en hann lést á sl.
vetri. Hann tók m.a. þátt í útgerð-
arrekstri með hinum fræga afla-
manni Sigurði Kristjónssyni, en
saman gerðu þeir út Skarðsvíkina
SH205.
Sveinbjörn segir skemmtilega og
einlæglega frá sínum störfum í
viðtali við Inga Dóra Einarsson.
Asgeir Jóhannesson tekur saman
upphaf að starfsemi Hraðfrysti-
húss Ólafsvíkur en það hóf starf-
semi 1939. Rekstur þess olli breyt-
ingum á starfsháttum sem urðu til
mikilla framfara í Ólafsvík Viðtal
er við Skúla Alexandersson fv.
oddvita í Neshreppi utan Ennis og
þingmann Vesturlandskjördæmis.
Skúli hefur frá mörgu að segja en
hann kom á Hellissand 1952.
Hann tók mikinn þátt í uppbygg-
ingu staðarins og var þar í forystu
í langan tíma. Grein er úr bókinni
Saga Ólafsvíkur, fyrra bindi eftir
Gísla Agúst Gunnlaugsson
sagnfræðing, en þar segir frá upp-
hafi vélbátaútgerðar í Ólafsvík.
Viðtöl eru við ýmsa menn s.s. Elí-
as J. Róbertsson sem rekur vél-
smiðju í Ólafsvík og Heiðar
Magnússon skipstjóra en hann er
einn af hinum ungu og upprenn-
andi útgerðarmönnum í Snæfells-
bæ. Þá er skemmtileg grein eftir
Þorkel Guðbrandsson,en þar segir
frá vertíðarstemmingu í frystihúsi
Dagsbrúnar í Ólafsvík árið 1956.
Gissur Tryggvason í Stykkishólmi
skrifar um hið merka félag Báta-
tryggingu Breiðafjarðar sem starf-
aði í rúm 60 ár. ÖIi Sverrir Sigur-
jónsson apótekari í Ólafsvík segir
frá síldarúthaldi í Norðursjó. Þá
eru ýmsar greinar og frásagnir, að
ótöldum myndum sem safnað
hefur verið. Eg vil að lokum
þakka öllum þeim sem lögðu til
efni, myndir og fleira. Síðast en
ekki síst þakka ég þeim er auglýstu
í blaðinu og styrktu það á ein-
hvern hátt. Ég óska sjómönnum
og fjölskyldum þeirra gleðilegs
sjómannadags.
EFNISYFIRLIT
3 Ahættudjúpið
Sr. Magnús Magnússon
4 Sveinbjöm Benediktsson
Ingi Dóri Einarsson
13 Bréf skrifað af Hinrik Konráðssyni
Pétur S. Jóhannsson
15 Upphaf Hraðfiystihúss Ólafsvíkur h.f.
Asgeir J óhannesson
18 Ræða á sjómannadegi í Ólafsvík
Bjarni Ólafsson
20 Gamlar myndir úr HÓ
Þórður Þórðarson
21 Síldveiðar í Norðursjó
Óli Sverrir Sigurjónsson
24 Upphaf vélbátaútgerðar í ólafsvík
Gísli Ágúst Gunnlaugsson
27 Bátatrygging Breiðafjarðar
Gissur Tryggvason
29 Minningabrot frá Ólafsvík
Þorkell Guðbrandsson
33 Myndir ffá sjómannadegi í Gmndarfirði 2005
34 Rækjan kemur og rækjan fer
Kristján Guðmundsson
35 Spurningar til sjávarútvegsráðherra
Einar Kristinn Guðfinnsson
37 Skúli Alexandersson
Pétur S. Jóhannsson
40 Myndir frá sjómannadegi á Hellissandi
ogRifi 2005
41 Myndir frá sjómannadegi í Ólafsvík 2005
48 Myndir frá sjómannadegi í Stykkishólmi 2005
50 Ræða á sjómannadegi á Hellissandi 2005
Konny B. Leifsdóttir
52 Minni sjómanna
Jóhanna Jónasdótdr
54 Sjómannadagurinn í Ólafsvík 2005
55 Ymsar myndir
56 Fyrsta sjóferðin
Þorsteinn Jakobsson
59 Iðni og athafnasemi
Magnús Magnússon
63 Lét slag standa
Pétur S. Jóhannsson
66 Myndir úr safni Hinriks Konráðssonar
67 Sjómannadagspredikun
Gunnar Örn Gunnarsson
71 Betri í dag en í gær
Guðmundur Smári Guðmundsson
73 Ætlaði að verða bifreiðasmiður
Jóhann Pétursson
77 Rannsóknarsetur
Kristinn Jónasson
78 Sjómannadagurinn á Hellissandi og Rifi 2005
Stefán Jóhann Svansson
79 Varðskipið Óðinn
Ásdís Ósk Guðbjörnsdóttir