Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 17
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
15
Ásgeir Jóhannesson ^
Upphaf Hraðfrystihúss Olafsvíkur h.f.
Byggt á frásögn Eyjólfs Magnússonar og upplýsingum úr hlutafélagaskrá.
Lengst af fyrra hluta 20. aldar
höfðu þorskveiðar fyrst og fremst
verið stundaðar frá Ólafsvík, fyrst
á árabátum og seglskipum en síðar
á vélknúnum smábátum, en vegna
lélegra hafnarskilyrða var ekki um
að ræða sjósókn á stærri bátum.
Aðallendingarstaður bátanna var
við Gilið og þar var fiskurinn
þveginn og búinn undir sölu.
Tveir kaupendur voru þá að fiski í
þorpinu. Kaupfélag Ólafsvíkur og
Finnbogi Lárusson, er þar rak
verslun í eigin nafni. Var fiskur-
inn verkaður í salt og þurrkaður á
stakkstæðum til útflutnings.
Um 1934 hófst dragnótaveiði á
miðum Ólafsvíkinga og kom Sig-
urður faðir þess fræga skipstjóra
Einars Sigurðssonar, sem kenndur
var lengi við bát sinn Aðalbjörgu
frá Reykjavík, vestur og leiðbeindi
mönnum um dragnótaveiði.
Byrjuðu þá útgerðarmenn að setja
spil í vélknúna báta sína til að
stunda dragnótaveiðina.
Halldór fiskiloðs
Skömmu síðar kom fyrrgreind-
ur Einar vestur til Ólafsvíkur á
báti sínum Víkingi sem Halldór
Jónsson útgerðarmaður í Ólafsvík
keypti síðar. Gerðist Halldór
fiskilóðs hjá Einari einhver ár og
lærði þar hina tæknilegu hlið á
dragnótaveiðinni. Aflinn sem var
fyrst og fremst koli í dragnótina
var seldur, mest í erlend fisktöku-
skip - einkum frá Belgíu - sem
komu upp á Ólafsvíkurhöfn til
fiskkaupa. Ennfremur hafði
Kaupfélag Stykkishólms komið
sér upp frystihúsi á þessum árum
og keypti kolann af bátum frá
Ólafsvík ef þeir fluttu hann inn
eftir. Einstaka bátar sigldu jafnvel
frá Ólafsvík með afla sinn til
Reykjavíkur til sölu.
Bygging hússins
Við þessar aðstæður hófust um-
ræður í hreppsnefnd Ólafsvíkur
um byggingu frystihúss í Ólafsvík
til að vinna kolann á staðnum til
útflutnings. Leiddu þær umræður
til þess að þverpólitísk samstaða
virðist hafa náðst innan nefndar-
innar um það mál og hafist var
handa um framkvæmdir á árun-
um 1938-1939. Bauð stórkaup-
maður að nafni Ingólfur Espholín
fram byggingarefni, sem var asbest
og talið mjög ódýrt og gott. Mis-
jöfn varð þó reynslan af þessu
byggingarefni. Byggingarstjóri var
aðkomumaður, kallaður „Jón á
öllum fjörðum“ og mun hafa
unnið verkið í ákvæðisvinnu.
Eyjólfur Magnússon var vélstjóri hjá HÓ
Hraðfrystihús Ólafsvíkur h.f.
tók svo til starfa fyrstu daga sept-
embermánaðar árið 1939 um það
leyti sem Þjóðverjar réðust inn í
Pólland og síðari heimsstyrjöldin
hófst, en dagsetning formlegs
stofnfundar er 29. október 1939.
Stofnendur félagsins
Skráðir stofnendur eru: Kaupfé-
lag Ólafsvíkur, Sparisjóður Ólafs-
víkur, Ólafsvíkurhreppur, sr.
Magnús Guðmundsson, Jónas
Þorvaldsson, Thor Thors (alþing-
ismaður), Magnús Jóhannsson,
Eggert Jóhannsson, Guðmundur
Björnsson, Lárus Sveinsson, Berg-
þór Steinþórsson, Jón Skúlason,
rrv~) Óskum sjómönnum í Snæfellsbæ
og fjölskyldum þeirra
til hamingju
Brauðgerð Ólafsvíkur ehf. með daginn!