Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Side 19
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
17
Sr. Magnús Guðmundsson var í íyrstu stjórn
Bolinder gerð og vélgæslumaður
var Guðjón Sigurðsson og síðar
Sigurður Tómasson. Þá tóku við
Þórður Þórðarson og Bárður Jens-
son og enn síðar Kjartan Þor-
steinsson og Eyjólfur Magnússon.
Allir þessir menn störfuðu að vél-
gæslu á 5. áratugnum. Margir
Ólsarar væntu þess að fá vinnu í
frystihúsinu er það tók til starfa,
en það olli miklum vonbrigðum
að karlar voru nánast eingöngu
ráðnir til starfa í frystitækjunum
en kvenfólk í flest önnur störf
vegna þess að kaup þeirra var að-
eins 50% af launum karla.
Mikil kolaveiði
I framhaldi af stofnun Hrað-
frystihúss Ólafsvíkur h.f. stórjókst
dragnótaveiði Ólafsvíkurbáta sem
var fyrst og fremst veiði á kola
sem var stutt að sækja á mið út af
Ólafsvík. Veiði var oft ágæt og
annaði ekki frystihúsið að vinnu
úr öllum þeim kola sem barst að.
Varð því stundum að flytja til
annara verstöðva umframafla, eða
selja í skip er komu að safna sam-
an fiski er til sölu var. Arið 1951
var lokað fyrir dragnótaveiði við
Breiðafjörð og kippti það stoðum
undan kolavinnslu í frystihúsinu
og því lokað yfir hásumarið sem
áður hafði verið helsti vinnslutími
hússins. En eftir það stórjókst afli
á vetrarvertíð, hafnarskilyrði
bötnuðu og aðalvinnslutími
frystihússins var á veturna og hrá-
efnið bolfiskur.
Erfiður rekstur
Innan fárra ára frá stofnun
Hraðfrystihúss Ólafsvíkur h.f.
mun rekstur þess hafa orðið erfið-
ur heimamönnum og þeir leitað
eftir viðbótar hlutafé utan Ólafs-
víkur og svo er komið á aðalfundi
23. sept. 1945, að þrír aðilar bú-
settir utan Ólafsvíkur koma inn í
stjórnina. Þeir Richard Thors,
framkvæmdastjóri í Reykjavík,
Þórður Ólafsson, útgerðarmaður í
Reykjavík og Oddur Helgason út-
gerðarmaður í Reykjavík, en
áfram sitja heimamennirnir Eliní-
us Jónsson og Jónas Þorvaldsson.
- Hlutafé er aukið á þessum fundi
úr kr. 90.200 upp í kr. 250.000
og öll hlutafjáraukningin innborg-
uð.-
Guðjón Sigurðsson stjórnarmaður í HÓ.
En hverjir voru þessir nýju for-
ustumenn Hraðfrystihúss Ólafs-
víkur h.f.
Hinn nýi formaður Þórður
Ólafsson kom ungur maður ofan
úr Borgarfirði til Reykjavíkur og
lærði söðlasmíði, en smám saman
fór hann að snúa sér að viðskipt-
um og útgerð. Gerðist hluthafi í
togurunum Belgum og Ask.
Sjómenn!
Tií fiamiruj ju með daginn
Eleníus Jónsson var fyrsti stjórnarformaður HÓ
Einnig stofnaði hann Kolasöluna í
Reykjavík, og 1938 Lýsi h.f. með
Tryggva bróður sínum. Þórði
mun hafa litist vel á miðað við
hans aðstæður að fjárfesta í hluta-
bréfum frystihússins, og taka þar
við formennsku.
Richard Thors var bróðir Thors
Thors og kom inn sem hluthafi
eftir brottför bróður síns til sendi-
herrastarfa í Ameríku.
Oddur Helgason fékkst við tog-
araútgerð í Reykjavík um þessar
mundir. Hann fékkst við ýmis-
konar viðskipti og faðir hans
Helgi Magnússon rak hina stóru
hreinlætis- og pípulagningaversl-
un „Helgi Magnússon og Co“.
Þessir aðilar voru í viðskipta-
eða vinatengslum við Thorsarana,
sem væntanlega hafa hvatt þá til
þátttöku í útgerð og rekstri á Snæ-
fellsnesi, en þaðan var móðir
þeirra upprunnin.
Hér með líkur fyrrihluta um
sögu Hraðfrystihúss Ólafsvíkur.
Það er ætlun rtistjóra að framhald
verði í næsta blaði. Ásgeiri Jó-
hannessyni eru þökkuð þessi góða
samantekt. Það er afar mikilvægt
að halda þessum heimildum sam-
an en þeim mönnum fer fækkandi
sem þekkja upphaf þessa þýðing-
armikla hluta í atvinnnusögu
Ólafsvíkur, sem bygging og rekst-
ur hússins hafði.
SEAFOOD