Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 20

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 20
18 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006 Bjami Ólafsson Ræða á Sjómannadaginn 2005 í Ólafsvík Bjarni Ólafsson var ræðumaður í Sjómannagarðinum. Fánaberi á myndinni er Sævar Gíslason. Ljósmynd: Sigurjón Bjarnason Kæru sjómenn og aðrir hátíðar- gestir. Til hamingju með daginn. Það er mér mikill heiður að fá að ávarpa ykkur á þessum hátíðar- degi. Það þykir einhverjum ef- laust standa á haus, að gamall sveitakarl sé fenginn til þess arna. En þeir Egilsmenn eru svo frjáls- lyndir að þeir fara út fyrir sínar raðir og þannig á það líka að vera, stétt með stétt. Hér áður fyrr voru menn úr sveitunum kallaðir til þegar mikill afli barst á land og bjarga þurfti verðmætum undan skemmdum. Þetta var áður en hið umdeilda kvótakerfi kom til sögunnar með sína kosti og galla eins og öll mannanna verk. Þá var líka eitt- hvað til sem hét að fara á vertíð og mátti þá hver vinna sem hann gat. Þegar ég byrjaði að vinna hér í Ólafsvík sem ungur maður, þá var suðurgarðurinn gamli aðal hafnar- svæðið. Þá voru bátarnir margir hverjir smáir og bómurnar stuttar þannig að ekki náðist að hífa löndunarmálið upp á bílinn eða kerruna og varð því að setja aflann á bryggjuna og henda síðan upp á farartækið. Þetta þótti ekkert til- tökumál, menn löguðu sig eftir aðstæðum. Nú, ef við förum lengra aftur í tímann þegar árabátarnir voru allsráðandi og engin tækni til komin, þá var hvalbeinum raðað í fjöruna og kjölnum á bátnum rennt eftir þeim. Þetta voru rif- bein úr hvölum svona ca. 1.50 m á lengd. Eg tók þátt í þessu sem unglingur, þegar faðir minn reri á árabát sem Sigurður bróðir smíð- aði og var honum róið frá Hauka- brekku. Þetta var ekki gert í at- vinnuskyni heldur til að afla mat- ar fyrir heimilið. Þar voru margir munnarnir svangir. Þá var skakað á borðstokknum, enda engar rúllur komnar til sög- unnar. Þegar línuútgerðin stóð sem hæst hér frá Ólafsvík, fannst manni alltaf nöturlegt þegar bát- arnir voru að fara út á kvöldin, svona um eða eftir miðnættið í misjöfnu veðri og myrkri, þegar hinir voru að skríða upp í bólin sín og fara að sofa. Þetta við- gengst ennþá en bátarnir eru orðnir stærri og betur útbúnir. Það er ánægjuleg þróun hér í Snæ- fellsbæ núna. Það er verið að byggja bæði íbúðarhús og at- vinnuhúsnæði. Þetta eykur bjart- sýni hjá fólki og hefur jákvæð áhrif. Mér finnst Leifur Halldórsson sýna gott fordæmi, hann var ekk- ert að gefast upp og fara með sínar „millur“ suður eins og margur hefur gert og gleymt sínum upp- runa. Ég vil bera fram þá ósk að handhafar fiskveiðiheimilda hér í Snæfellsbæ sjái sér fært að gera út áfram en grípi ekki til þess ör- þrifaráðs að selja kvótann og þar með lifibrauð fólksins á staðnum. Sjómannastarfið stöðugt hefur staðið okkur nær. Lífið sem að Guð oss gefur gildi margfalt fær. Þar sem hættur löngum leynast við lífsbjörgina að fá. Hugir okkar bljúgir beinast að bátar allir landi ná. Þegar vetrar vindar hvína vonleysið oft grípur menn. Ut í kófið kvíðnir híma kemur þá upp bænin senn. Almættið sem öllu ræður um okkar lífsins braut. Stöndum saman systur bræður siglum fram í Drottins skaut. Að lokum vil ég óska ykkur öll- um alls hins besta á komandi tíð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.