Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Síða 29
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
27
Gissur Tryggvason
Bátatrygging Breiðafjarðar
Að beiðni Sjómannadagsblaðs
Snæfellsbæjar tók Gissur
Tryggvason fv. framkvæmda-
stjóri Bátatryggingar Breiða-
fjarðar saman sögu þess sem
spannar rúm 60 ár.
Föstudaginn 22. júli 1938 var
samkvæmt áðurgengnu fundar-
boði og auglýsingu í útvarpi,
haldinn fundur meðal mótor-
bátaeigenda við innanverðan
Breiðafjörð, í þeim tilgangi að
stofna bátaábyrgðarfélag fyrir
svæðið frá Búlandshöfða um inn-
anverðan Breiðafjörð til Brjáns-
lækjar. Fundurinn var haldinn í
samkomuhúsinu í Stykkishólmi.
Sigurður Ágústsson kaupmaður
setti fundinn og tilnefndi sem
fundarritara Guðmund Jónsson.
Fundarstjóri Sigurður Agústsson
las því næst frumvarp að lögum
fyrir félagið og skýrði það lið fyrir
lið. Var samþykkt að félagið
skyldi heita Bátatrygging Breiða-
fjarðar og ná yfir svæðið frá Bú-
landshöfða um innanverðan
Breiðafjörð til Brjánslækjar.
Heimili félagsins og varnarþing er
í Stykkishólmi. Lagafrumvarpið
var því næst borið undir atkvæði
eins og það lá fyrir og var það
samþykkt í einu hljóði.
Tillaga kom fram frá Guð-
mundi Jónssyni um að stjórnar-
kosning sú er nú færi fram á
fundinum gilti aðeins eitt ár eða
til næsta aðalfundar. Var tillagan
borin undir atkvæði og samþykkt
með samhljóða atkvæðum. Fór
því næst fram kosning í stjórn
fyrir félagið. Var kosning leynileg
og féllu atkvæði þannig: Sigurður
Ágústsson hlaut 12 atkvæði, Sig-
urður Steinþórsson hlaut 11 at-
kvæði, Guðmundur Jónsson
hlaut 9 atkvæði. Voru þeir þar
með kosnir í stjórnina. Nokkrir
aðrir fengu fáein atkvæði. í vara-
Sigurður Ágústsson var stjórnarformaður í 35
ár.
stjórn voru kosnir: Óskar Níels-
son Svefneyjum, Kristmann Jó-
hannsson Stykkishólmi, Oddur
Valentínusson Stykkishólmi.
Endurskoðendur voru kosnir: Is-
leifur Jónsson og Ólafur Stur-
laugsson Stykkishólmi. Til vara:
Guðmundur Bjarnason og Ágúst
Pálsson Stykkishólmi. Fleira gerð-
ist ekki á fundinum og var hon-
um því næst slitið.
Sig. Ágústsson fundarstjóri
Guðmundur Jónsson fundarrit-
ari
Þannig hljóðaði hin fyrsta
fundargerð Bátatryggingar
Breiðafjarðar. Samkvæmt áður
fengnum heimildum þá var það
Sigurður Ágústsson kaupmaður
síðar þingmaður, sem var aðal
hvatamaður að stofnun þessa fé-
lags, enda setur hann fundinn og
stjórnar.
Félagssvæðið stækkað
Eins og fram kemur í fundar-
gerðinni þá var flotinn ekki stór á
þessum tíma, eða aðeins mótor-
bátar, en flotinn átti eftir að
stækka og tryggingarsvæðið
einnig. Undir rekstrarlok félags-
ins þá var tryggingarsvæðið ótil-
greint og einnig stærð skipa. Sig-
urður Ágústsson var fyrsti stjórn-
arformaður félagsins eða frá
stofnun 1938 til ársins 1973 eða í
35 ár og var því stjórnarformaður
lengur en nokkur annar í sögu fé-
lagsins. Við formennsku af Sig-
urði tók Víglundur Jónsson út-
gerðarmaður í Ólafsvík en hann
var áður búinn að sitja í stjórn fé-
lagsins frá 1955. Víglundur var
formaður til ársins 1981 eða í
átta ár en sat í stjórn félagsins í
26 ár. Við formennsku af
Víglundi tók Sofifanías Cecilsson
útgerðarmaður í Grundarfirði og
var hann formaður til ársins 1998
eða í sautján ár. Soffanías sat sam-
fellt í stjórn og varastjórn félags-
ins í 36 ár og hefur enginn félags-
maður setið lengur í stjórn fé-
lagssins. Við formennsku af Soff-
aníasi tók Guðmundur Kristjáns-
son framkvæmdarstjóri í Rifi, en
Víglundur Jónsson.Formaður frá 1973 til
1981